Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2000, Blaðsíða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 2. mars 2000
frettir
Odtíurennádagskrá
Þrátt fyrir að Oddur Júlíusson hafi
formlega tilkynnt að hann sé hættur
að angra bæjaryfirvöld með beiðn-
um um upplýsingar um hin
aðskiljanlegustu mál, svífur þó andi
hans enn yfir vötnum á fundum
bæjarráðs. Á fundi bæjarráðs á
mánudag lá fyrir bréf frá félags-
málaráðuneytinu þar sem óskað er
eflir umsögn vegna kæru Odds.
Ragnar Óskarsson lét bóka að liann
vísaði til fyrri bókana sinna um
upplýsingaskyldu bæjarfélagsins.
Styrkirvegna
írlandsferðar
ogskákar
Starfsfólk grunnskólanna hefur
óskað eftir styrk frá bænum vegna
náms- og kynnisferðar til írlands í
júní nk. Þá hefur Skáksamband fs-
lands óskað eftir styrk vegna
þátttöku Bjöms í. Karlssonar á
Norðurlandamóti í skólaskák.
Bæjarráð vísaði fyrra erindinu til
skólamálaráðs en því seinna til
íþrótta- og æskulýðsráðs.
Næstufundir
Ákveðið hefur verið að næstu
fundir bæjarstjórnar verði haldnir
23. mars og 13. aprfl. Fundirnir
munu hefjast kl. 18.
Engustolið,ekkert
skemmt
I dagbók lögreglu voru aðeins 155
færslur skráðar eftir vikuna og er
það verulega minna en í síðustu
viku. Helgin var einnig mun ró-
legri en helgin á undan, eða 33
bókanir. Það má kannski telja til
tíðinda að enginn þjófnaður var
kærður til lögreglu í vikunni, engin
eignaspjöll og engin hlamsárás.
Lögregla hefur engar skýringar á
þessu en fagnar því að fækkun skuli
vera í þessum málaflokkum.
Sex brotlegír í
umferðinni
Sex ökumenn voru kærðir fyrir brot
á umferðarlögum í síðustu viku.
Þar af voru fjórir sem ekki virtu
umferðarmerki, einn ók gegn ein-
stefnu og einn var við akstur án
réttinda. Eitt umferðaróhapp kom
til kasta lögreglu. Á mánudag lenti
bifreið uppi á umferðareyju við
íslandsbanka. Ekki urðu slys á
fólki en bfllinn skemmdist nokkuð.
Spennið beltin
Lögregla vill minna fólk á að nota
þann öryggisbúnað sem er í bflum.
Ljóst er að hluta þeirra dauðsfalla,
sem orðið hafa í umferðinni í
byrjun ársins, má rekja til þess að
öryggisbúnaður var ekki notaður.
Því er ástæða til að hvetja fólk til að
spenna á sig öryggisbeltin þegar
það er í bifreið á ferð því að dæmin
sanna að beltin geta bjargað. Sér-
staklega enj ökumenn minntir á að
þeir bera ábyrgð á að börn noti
þann öryggisbúnað sem tilheyrir
þeirra aldri, þ.e. bamabflstól eða
bflapúða.
Akvörðun Islandsflugs um að hætta
innanlandsflugi vekur upp margar spurningar:
Dapurlegar fréttir
-segir bæjarstjóri - Rætt hefur verið við
Val Andersen um aukið flug
íslandsflug mun hætta áætlunar-
flugi til Vestmannaeyja, Akureyrar
og Egilsstaða frá og með 1. apríl
næstkomandi og leigja keppinaut
sínum, Flugfélagi Islands, báðar
ATR vélar félagsins. Er ástæðan
sögð tap á innanlandsflugi félagsins.
Um 30 starfsmönnum félagsins
hefur verði sagt upp störfum og,
þar af fimm í Vestmannaeyjum.
Islandsflug mun áfram fljúga á
Dorniervélum sínum til smærri
staða á landinu þar sem ekki ríkir
samkeppni. Segja forsvarsmenn
íslandsflugs að félagið muni leggja
meiri áherslu á þjónstu og viðskipti
á erlendum vettvangi og vonast til
að ná þannig fram hagnaði í rekstri
félagsins.
Guðjón Hjöleifsson sagði þetta
mjög dapurlegar fréttir. „Eg tel að
engum sé hollt að vera einn á þessum
markaði. Fordæmin eru fyrir því að
einokun hefur valdið hækkunum á
fargjöldum og minnkandi ferðatíðni.
Reynslan af Islandsflugi hefur verið
sú að þeir hafa verið að þjónusta
Vestmannaeyjar betur en Flugfélag
íslands, til dæmis hvað ferðatíðni
snertir."
Guðjón sagði að hann trúði því ekki
að Islandsflug væri að tapa á leiðinni
milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja.
„Sérstaklega í ljósi þess að íslandsflug
ætlar að halda áfram flugi til einhverra
smærri staða á landinu. Við munum
skoða þetta mál og það verður trúlega
rætt á bæjarráðsfundi næstkomandi
mánudag."
Valur Andersen hjá Flugfélgi Vest-
mannaeyja sagðist ekki vera hissa á
því hvemig hefði farið. „Maður var
hissa á því hvað þetta entist að tvö
félög væru að fljúga tveimur vélum
hingað þrisvar á dag hálftómum. Eg
held að þetta hafl bara verið spuming
um tíma, hvenær menn myndu gefast
upp.“
Hvað varðaði möguleika hans í
stöðunni sagði Valur að hugsanlega
gæti orðið meira að gera hjá honum.
„Það hefur verið mjög dapurt með
stóm vélina hjá mér og hún nærri
eingöngu notuð til sjúkraflugs."
Valur sagði að menn hafi rætt við
sig um möguleikana á að hefja flug
milli Vestmannaeyja og Reykjavfkur.
„Menn verða hins vegar að átta sig á
því að ekki þýðir að fara út í eitthvað
stærra af vanefnum. Slfkt þyrfti að
hugsa vandlega fram í tímann. Það
yrði nóg að gera fyrir stærri vél, en
það þýddi jafnframt að koma yrði upp
skýli og viðhaldsaðstöðu í Eyjum.
Þannig að það þýðir ekkert að blása
upp einhverja blöðm bara til þess að
sprengja hana á skömmum tíma,“
sagði Valur.
Guðmundur Sigurðsson forstöðu-
maður samkeppnissviðs Samkeppnis-
stofnunar sagði að í ljósi samkeppni
væri það augljóslega miður þegar einn
aðili hverfur að markaðnum. Spurður
hvort Samkeppnisstofnun myndi láta
fara frá sér einhverja yfirlýsingu,
vegna þeirrar stöðu sem Flugfélag
Islands hefði nú á þessum leiðum,
sagðist hann hafa átt fund með Omari
Benediktssyni framkvæmdastjóra
Islandsflugs efir hádegi sl. þriðjudag.
„Þar fórum við yfir aðdraganda þess
að Islandsllug ákvað að hætta þessu
innanlandsflugi, en á þessu stigi er
ekki að vænta neinnar yfirlýsingar frá
okkur.“
Guðmundur sagði að framkvæmda-
stjóri íslandsflugs hefði óskað eftir
þessum fundi. „Það er engin kvöð á
fyrirtækjum að funda með okkur undir
svona kringumstæðum, en í ljósi fyrri
samskipta og afskipta okkar af sam-
keppni í innanlandsflugi taldi hann
eðlilegt að leita til okkar. Einnig gerði
íslandsflug samning við Flugfélag
Islands og þegar tveir samkeppnis-
aðilar gera slíka samninga og annar
þeirra er að hætta höfum við vissulega
áhuga.“
Jón Karl Olafsson framkvæmda-
stjóri Flugfélags íslands sagði að í
sjálfu sér væri rétt að Flugfélag Islands
væri einrátt á leiðinni Reykjvík -
Vestmannaeyjar. „Hins vegar er
ekkert sem bannaði öðrum að fljúga á
þessari leið. Það er öllum frjálst og
opið, en í fljótu bragði sé ég ekki að
það sé freistandi fyrir tvö félög að slást
um þessa leið. Það er ljóst að bæði
félögin hafa verið að tapa á
innanlandsfluginu og þeir íslands-
flugsmenn ekki getað réttlætt það fyrir
sér lengur og því ákveðið að hætta."
Jón Karl sagði að engar grund-
vallarbreytingar yrðu á flugi Flug-
félags Islands að svo stöddu. „Við
höfum verið að fljúga þrisvar á dag til
Eyja og vorum á sama tíma og
Islandsflug á hlaðinu í Eyjum. En við
erum að vinna að því hvemig við
bregðumst við varðandi ferðatíðnina
til Eyja og að öllum líkindum munum
við bæta ljórðu ferðinni við. Verðlega
séð em engar breytingar áformaðar til
næstu framtíðar. Við sjáum fram á
aukningu í farþegafjölda og um það
hefur samkeppnin fyrst og fremst
snúist.“
Nú hefur mönnum verið sagt upp
hjá íslandsflugi í Vestmannaeyjum
vegna þessa, munið þið bjóða
einhverjum þeirra vinnu hjá ykkur?
,,Það getur vel farið svo að einhveijum
verði boðin vinna, en það yrðu aldrei
allir. Við munum hins vegar gera
okkar besta og halda uppi góðu
þjónustustigi við Eyjar á besta verði,“
sagði Jón Karl.
frettir
Frá Tónlistarskólanum:
Dagurtónlistar-
skólanna á
laugardaginn
Árviss dagur tónlistarskólanna í
landinu var sl. laugardag. Þann dag
stóðu flestir tónlistarskólar landsins
fyrir tónleikahaldi og ýmiss konar
kynningum á starfsemi sinni., Af
sama tilefni verður Tónlistarskóli
Vestmannaeyja með opið hús nk.
laugardag, þann 4. mars, í sam-
komusal skólans frá kl. 15.00. Þar
munu nokkrir lengra komnir nem-
endur skólans koma fram og Litla
lúðrasveitin mun leika nokkur lög.
Foreldrafélag sveitarinnar mun
selja kaffi og gæðameðlæti til
fjáröflunar í ferðasjóð. Það stefnir
sem sé í þessa fi'nu kaffihúsa-
stemmningu. Treystir foreldrafélag-
ið og kennaralið skólans á góða
mælingu allra velunnara skólans og
sveitarinnar. Verð fyrir fullorðna er
kr. 500 á mann og kr. 250 fyrir
böm. Þess má geta, að Litla
lúðrasveitin stefnir á sína aðra
utanlandsferð í vor, og nú til
Englands. Sveitin er með fjöl-
mennasta móti um þessar mundir
og það er reyndar skólinn líka, þar
sem aðsókn hefur aldrei verið meiri
frá upphafi.
Fréttakorn frá
KvenfélagínuLíkn
Kvenfélagið Líkn var með aðaltúnd
hinn 7. febrúar sl. þar sem fram
fóru venjuleg aðalfundfundarstörf.
Kosið var í stjóm og nefndir til
næsta árs.
Núverandi stjóm skipa Guðbjörg
Ósk Jónsdóttir formaður, Sigríður
Bragadóttir ritari, Svanbjörg Gísla-
dóttir gjaldkeri, Helga Guðjóns-
dóttir varaformaður, Elísabet Ein-
arsdóttir varagjaldkeri, Drífa Krist-
jánsdóttir vararitari og Sjöfn
Sigurbjömsdóttir meðstjómandi.
í Kvenfélaginu Líkn era nú 116
félagskonur og einn heiðursfélagi.
Allar þessar konur vinna saman að
hinum ýmsu störfum félagsins eftir
bestu getu og hentugleikum hverrar
fyrir sig.
Viljum við hvetja konur til að
ganga til liðs við okkur í Líkn. Það
gefur mikið að vera í félagi eins og
Kvenfélaginu Líkti, verkefnin eru
margbreytileg og flestar konur gela
fundið eitthvað við sitt hæfi. Einnig
myndast góður vinskapur á milli
félagskvenna.
Á síðasta starfsári gaf Kven-
félagið Líkn til ýmissa Ifknar- og
félagsmála fyrirkr. 2.213.630,-
Viljum við nota þetta tækifæri og
þakka bæjarbúum frábæran stuðn-
ing og velvild við félagið í gegnum
árin því án ykkar væmm við til
lítils.
Ágætu bæjarbúar, okkar bestu
þakkir fyrir samvinnuna. Óskum
ykkur alls góðs og guðs blessunar í
iramtíðinni.
Kvenfélagið Líkn.
Eyjaís hafði í síðustu viku selt 300.000 tonn af ís frá því fyrirtækið var stofnað árið 1986. Af því tilefni ákvað
stjórnin að gefa 300.000 krónur til Sambýlis fatlaðra, Meðferðarheimilisins og íþróttafélagsins Ægis. Magnús
Kristinsson, stjórnarformaður Eyjaíss afhendir Sæfinnu Sigurgeirsdóttur forstöðumanni Sambýlisins, Heru Ósk
Einarsdóttur formanni Ægis og Margréti Gunnarsdóttur frá Meðferðarheimilinu peningana. Sitjandi eru Viðar
Elíasson, Hilmar Rósmundsson, Lilja Alexandersdóttir og Laufey Sigurðardóttir.
FRETTIR
I
Utgefandi; Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Omar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481 -3310. Myndriti: 481 -
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Hetjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.