Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2000, Side 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 2. mars 2000
BókvitiðT
11, _
askana
í flugi með englum alheimsins
Það er auðvitað sannur heiður að
taka við bókvilinu úr penna tengda-
mömmu minnar Jessýjar frá Hól.
Ekki veit ég hvort ég stend undir
heiðrinum, en sitthvað hef ég lesið
um ævina, þótt fátt af því teljist
merkilegt. Eg er alæta á bækur eins
og tónlist, sem ég hef ekki sfður
gaman af. Mest hef ég þó líklega
lesið af barnabókum, enda hafði ég
það fyrir sið að lesa alltaf á kvöldin
fyrir stelpumar mínar. Nú er
bamabarn mitt og nafni farinn að
hlusta á afa sinn þegar tækifæri gefst.
Uppáhalds höfundur minn er án efa
Astrid Lindgren og uppáhalds bók
okkar nafnanna í dag er Örkin hans
Nonna eftir Brian Pilkington.
Nú nýverið las ég bókina sem
Aðalsteinn Ingólfsson skráði um
listmálarann Eirík Smith, mjög
áhrifamikill listamaður. Þá fékk ég í
jólagjöf frá Magneu ævisögu Stein-
gríms áritaða af honum sjálfum. Eg
hafði gaman að mannlýsingum Stein-
gríms er hann fór í sín fyrstu
kosningaferðalög um Vesttjarðar-
kjördæmi.
Eftirminnilegasta bók æsku minnar
er Víkingablóð eftir Ragnar Stefáns-
son frá Höfðabóli, örlagasaga drengs
sem missti ungur föður sinn, en faðir-
inn týndist í siglingu fiskiskips til
Englands. Drengurinn sætti sig aldrei
við föðurmissinn og trúði því að
pabbi hans væri á lífi í útlöndum.
Sagan fékk farsælan endi, feðgarnir
hittust á ný og ég fékk gæsahúð og
táraðist.
Önnur mjög sérstök bók sem ég las
fyrir nokkru er saga Ibn Saud araba-
konungs, sem tóksl loks að sameina
ólíka hópa arabískra hirðingja í eitt
ríki; Saudi Arabíu.
I fyrrasumar vorum við Magnea á
ferðalagi norður í Skagaftrði. Þar
rákumst við inn á menningarhelgi í
Lónkoti sem er risastórt tjald á
Siglufjarðarleið. Þarna voru rit-
höfundamir og nafnamir Einar Kára-
son og Einar Már Guðmundsson að
lesa upp úr verkum sínum. Við
hjónin hrifumst mjög af frásagnar-
snilld þeirra félaga. í framhaldi af
þessu keypti ég bókina Engla al-
heimsins. í flugferð sem ég fór í sl.
haust las ég svo bókina, byrjaði við
flugtak og það stóð á endum þegar
flugvélin lenti var bókin búin. Þetta
er vafalaust skemmtilegasta flugferð
mín hingað til.
Eins og margir Eyjapeyjar er ég
bátasjúkur (reyndar líka sjóveikur).
Bátar og skip hafa ávalt heillað mig.
Eg var mikið á bryggjunni þegar ég
var peyi ásamt fóstbróður mínum og
frænda Jóel Andersen, þess vegna em
bækur Jóns frá Bólstaðarhlíð „íslensk
skip“ oft á borðum hjá mér. Sama er
að segja um Atlasinn minn, ég þarf
oft að fletta upp í honum til að athuga
hvar hinn og þessi atburður hafi gerst
í heiminum.
Ein er sú bók sem ég bíð eftir með
óþreyju, en það er ömefnabók
æftngafélaga míns Ólafs Týs Guð-
jónssonar, sem hann er búinn að
vinna að í nokkur ár. Eg sé það á Óla
að hann er að komast í feiknarform,
svo ef til vill styttist í bókina.
Hún tengdamamma mín kastaði
boltanum til mín, svo það er best að
ég skalli hann til baka til yngri dóttur
hennar, Maríu Traustadóttur. Hún
hlýtur að geta sagt frá einhverju
skemmtilegu sem hún hefur lesið.
Rosalega góður dagur
Hlaupársdagur var á þriðjudag, 29.
febrúar. Þeir sem fæddir eru á þeim
degi eiga því í raun ekki afmæti nema á
fjögurra ára fresti þó svo að ekki sjáist á
þeim meiri æskumerki en öðrum
„jafnöldrum“ þeirra, þ.e. þeim sem
fæddir eru á sama ári. í Vestmanna-
eyjum munu búa fjórirsem fæddireru á
hlaupársdegi og við fengum einn þeirra
sem Eyjamann vikunnar í tilefni
hlaupárs.
Fullt nafn? Ólina
Jónsdóttir.
Fæðingardagur
og ár? 29. febrúar
1968.
Fæðingarstaður?
Selfoss
Fjölskylduhagir?
Gift Valdimar Osk-
arssyni. Viðeigum
tvö börn.
Menntun og starf?
Menntunin er aðallega í skóla
lífsins. Fiskvinnslukona.
Laun? Alltoflág.
Bifreið? Mitsubishi L 300.
Helsti galli? Óþolinmóð.
Helsti kostur? Læt aðra um að
finna þá.
Uppáhaldsmatur? Kjúklingur.
Versti matur? Hassý.
Uppáhaldsdrykkur? Vatn.
Uppáhaldstónlist? Eiginlega öll
tónlist. Síst þungarokk og rapp.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir? Að hafa það gott.
Hvað er það leiðinlegasta sem
þú gerir? Ég man bara ekki eftir
neinu leiðinlegu.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í
happdrætti? Borga skuldir.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Enginn.
Uppáhaldsíþróttamaður? Enginn.
Ertu meðlimur íeinhverjum félagsskap? Aglow í
Vestmannaeyjum.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Fréttir og gamanmyndir.
Uppáhaldsbók? Biblían.
Hvað metur þú mest í fari annarra? Jákvætt
viðmót og bros.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra ? Ég
reyni að láta fólk ekki fara f
taugarnará mér.
Fallegasti staður sem þú
hefur komið á? Vestmanna-
eyjar.
Hefur hlaupársdagurinn eitt-
hvað ruglað afmælishald hjá
þér hingað til? Nei, ekkert.
Milli hlaupára hef ég haldið
upp á afmælið þann 28.
febrúar.
Er það kostur eða ókostur
að vera fæddur á þessum
degi? Það er rosalega mikill
kostur. Þetta er svo góður
dagur, alveg eins og aðrir
dagar.
Hélst þú upp á daginn að
þessu sinni? Já,já.
Og fékkst afmæiisgjöf? Já,
já.
Hvenær átt þú næst afmæli ?
Hlýturþað ekki að vera 2004.
Eitthvað að lokum? Lifðu
lífinu lifandi.
Nýfæddir
* Vestmannaeyingar
Þann 20. desember eignuðust Helga Steinunn Þórarinsdóttir og Snorri
Páll Snorrason dóttur. Hún vó 14 merkur og var 52 cm að lengd. Hún
er hér á rnynd með bræðrum sínum og ömmu. Fv. Snorri Páll, Hulda
Hjálmarsdóttir og Þórarinn Ljósmóðir var Guðný Bjamadóttir.
Um næstsíðustu helgi fór fram í Tónabæ í Reykjavík íslandsmótið í
freestyledansi. Þrír hópar úr Eyjum tók þátt í keppninni, Senjoritas,
Squibb og Gloss. Allir hóparnir stóðu sig með ágætum samkvæmt
upplýsingum aðstandenda og var þeim vel fagnað af áhorfendum
sem troðfylltu Tónabæ. Alls tóku 19 hópar þátt í keppninni en
sigurvegari var X 2000 úr Reykjavík. Stelpurnar í Glosshópnum
langar til að þakka styrktaraðilum stuðninginn en þeir voru: Féló,
Apótekið, Bragginn, OIís, Esso, Strípan, Vilberg, Foto, Eyjablóm,
Kútmagakot, Straumur, Nethamar og búningahönnuðurinn, Þórey
Friðbjarnardóttir. Glosshópurinn, f.v. Erla Ásmundsdóttir, Jessý
Friðbjarnardóttir, Ásta S. Guðjónsdóttir og Sara B. Ágústsdóttir.
Á döfinni 4*
2. mars ÍBV-Bingó í Þórsheimilinu kl.23.30
2. mars Árgangur '61 ætlar að hittast ó Lundanum kl. 21.00
3. og 4. mars Höfðinn. Erótískur listdans bæði kvöldin.
3. og 4. mars Bjami Tryggva og félgar ó Lundanum Þægilegt tilboð ó Fjörunni
3. mars
4. mars Hljómsveitin Gildrumezz ó Fjörunni
4. mars Herrakvöld IBV um borð í ms. Herjólfi. SkipiB opnað kl. 19.00
6. mars Bolla, bolla, bolla og bolluvendir.
7. mars Sprengidagur og allir úða / sig saltkjöti og baunum
8. mars Öskudagur. Kötturinn sleginn úr tunnunni kl. 14.00 og grímuball í Félókl. 15.00
13. mars Aðalfundur Kvenfélags Landakirkju í safnaðarheimilinu kl 20.00
19.-20. maí Vor í Eyjum 2000