Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2000, Side 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 2. mars 2000
Herjólfsdal
Vestmannaeyjar 2050 - Fr<
Tölvuhópurinn, sem hafði aðsetur í
Athafnaverinu, fékk það verkefni
að vinna með hugmyndina „Vest-
mannaeyjar árið 2050“. Nem-
endum var skipt í fjóra hópa. Einn
hópur valdi valdi að vinna með
„ferðaþjónustu“, tveir hópar völdu
að vinna með „opin svæði“, og einn
hópur valdi að vinna með
„verslun“.
I ljósi umræðu um framtíð Vest-
mannaeyja og bjartsýni og svartsýni í
þeirri umræðu er mjög athyglisvert að
kynna sér hugmyndir nemenda Bama-
skólans um framtíðina. Það er ekki
annað að sjá en að nemendur séu
vægast sagt stórhuga og séu fullir
bjartsýni á stórvirkar framkvæmdir í
Eyjum í framtíðinni. Það vekur þó
athygli að ekkert er minnst á fisk og
fiskvinnslu í þessari framtíðarsýn,
nema sem sýningaratriði í ferða-
mennsku og ekki er að sjá að nem-
endur sjái fyrir sér tækifæri utan hefð-
bundins umhverfís í Eyjum, nema í
skipulagi, hvar þeir sjá fyrir sér
heilmikla Kringlu eða Smára í anda
Stór-Reykjavíkursvæðisins. Hér fara
á eftir hugmyndir nemenda tölvu-
hópsins eins og þær eru kynntar á
heimasíðu Bamaskólans.
Ferðaþjónusta eftir 50 ár
Fljúgandi rútur sem ganga fyrir lofti
(gott til þess að rúnta uppi á hrauni).
miðasölu þjóðhátiðar, en þetta verður
ekki lokað svæði, aðeins verður byggt
yfir en ekki neinir hliðarveggir.
A Stórhöfða verður komin full-
komnari veðurathugunarstöð og þar
munu vinna fullt af fólki og mun
skapa atvinnu fyrir um 50 manns.
Þetta mun verða fullkomnasta veður-
athugunarstöð í veröldinni og líka sú
dýrasta.
Það verður komið nýtt, betra og
stærra íþróttahús. Og lfklegt er að það
mun rísa vestan við það gamla og mun
þetta verða tvöfaldur salur. Stúka
verður komin við Hásteinsvöll þá, og
mun hún rúma 2500 manns.
Herjólfsdalur: í Herjólfsdal mun
Þjóðhátíð ennþá verða ár hvert.
Dalurinn verður yfirbyggður og þakið
mun opnast er flugeldasýninginbyijar.
Það verður einnig hægt að halda góða
tónleika og Eurovision. Brennan mun
halda sínum stað og hún verður mun
öflugri og stærri. Það verður vifta í
þakinu til þess að halda hreinu lofti í
dalnum. Nokkrir stórir kastarar munu
vera í þakinu til að halda birtu í
dalnum. Kostnaður þessarar yfír-
byggingar mun vera nokkrir milljarðar
króna.
Malarvöllur: A Malarvellinum verð-
ur stærðar fótboltavöllur lfkt og í
Englandi. Það verður stúka og sæti og
það verður þak yfír gestunum. það
komast u.þ.b. 50.000 manns á völlinn
og væri hægt að nota hann fyrir
landsleiki og heimaleiki ÍBV. Sætin
verða úr plasti en samt þægileg. Hann
mun heita ÍBV-Stadium. Undir
stúkunni verður búningsaðstaða fyrir
leikmenn. Þar verður heitur pottur og
sjónvörp og dvd tæki og sjálfsali fyrir
drykki.
Stakkagerðístún (Stakkó): í fram-
tíðinni verður á Stakkagerðistúni stór
verslunarmiðstöð með fullt af búðum
og veitingastöðum. Verslunarmið-
stöðin verður á mörgum hæðum,
svona sex til sjö. A jarðhæðinni verður
bflastæði og það verða líka bflastæði í
næsta nágrenni. Fólk getur eytt
deginum þama út af því að þar mun
verða bíó.veitingastaðir, verslanir og
bamapössun. Það verða stórverslanir
eins og Elko, BT, Bónus, Rúmfata-
lagerinn og fleiri stórverslanir.
Verslun: Um hugmyndir nemenda
sem veltu fyrir sér verslun
framtíðarinnar í Eyjum, verða þeir
sem skoða þá síðu að beita
ímyndunaraflinu með nokkmm krafti.
En á síðunni er ein ljósmynd af
tveimur einstaklingum á framtíðar-
veginum, þar sem vísað er til nokkurra
gmnnþarfa sem snúa að neytandanum
varðandi verslun. Þessar þarfir em
matur, vömr, föt og síðast en ekki síst
reikningar. Mjög frumlegt og smekk-
lega upp sett.
Eftir 50 ár verða þær ekki svo dýi
Notað verður vetni og í staðinn fj
mengun kemur bara tært vatn úr þe:
Kostnaður í dag á þýskum vetr
rútum er u.þ.b. 50 milljónir. Þá
reikna með verðbólgu í framtíðinni
Lazertag -salur inni í Heimakli
(ókeypis fyrir ferðamenn). Fra
kvæmdin verður erfið, það þarf
sprengja í bergið með dínamíti t
öðm öflugra. Kostnaður fer e,„.
tilboðum í verkið.
Brú milli lands og eyja
Ekki er vitað hvað brúin kemur til
með að kosta. Einnig kemur til greina
að gera göng sem em ömggari en
dýrari eða gera bryggju uppi á Bakka
sem Herjólfur kemst inn í. Aætluð
gerðjarðgangaer 15 milljarðar.
Neðansjávarsædýrasafn sem verður
á u.þ.b 35 m dýpi. Það verður inni í
STORRI glerkúlu. Þar verður hægt að
skoða fiska sem em ekki í búri, heldur
í sjónum. Mjög dýr framkvæmd.
Sýndarvemleikasprang í Klifinu og
Heimakletti fyrir lofthrædda ferða-
menn og alvöru sprang fyrir bijálaða
ferðamenn. Sýndarvemleikagleraugun
og tækin verða ekki dýr árið 2050.
Dalurinn: Verður byggt yfir hann
með gegnsæju harðplasti til þess að
það verði hægt að halda þjóðhátíð án
rigningar og alls vonds veðurs. Og
mun þetta verða borgað upp með
Ljósmyndasprettur
Foto og
Barnaskólans:
Halldór
Sævar
og Ágúst
sigurvegarar
í tengslum við þemadaga 2000
í Barnaskólanum var haldinn
Ijósmyndasprettur Fuji og
Foto. Nokkur lið tóku þátt í
sprettinum og fengu þau
ákveðin verkefni til þess að
Ijósmynda. Verkefnin voru
gæsla, fljótur og seinn,
samræming, blaðurskjóða, sá
ég spóa, heppni, út í óvissuna,
fræðsla, dýrt er drottins orðið,
rosalegt, hámark letinnar og
geymt en ekki gleymt.
Margar skemmtilegar
hugmyndir skiluðu sér á
sprettinum,en sigurvegarar
urðu Halldór Sævar Grímsson
og Ágúst Halldórsson, báðir
nemendurí 9. bekk. Fengu
þeir, sinn hvora myndavélina í
sigurlaun. Hér á síðunni má
sjá fjórar myndir sem
sigurvegararnir tóku á
sprettinum.
Sá ég spóa
Blaðurskjóða