Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2000, Síða 9
Fimmtudagur 2. mars 2000
Fréttir
9
Páskar á Kanarí
Brottfarar- og homudagar
5. 4. - 19. 4.
12. 4. - 22. 4.
12. 4. - 1. 5.
19. 4. - 1. 5.
4 4
URVAL-UTSÝN
EYJABÚÐ
Augnlæknir
Gunnar Sveinbjörnsson augnlæknir verður á
Heilbrigðisstofnuninni dagana 6. - 9. mars.
Tímapantanir 3. mars kl. 9.00 -14.00 í síma 4811955
Heilbrigðisstofnunin íVestmannaeyjum
Aðalfundur
Vestmannaeyjadeildar RKÍ
verður haldinn í húsi félagsins Arnardrangi v.
Hilmisgötu laugardaginn 4. mars kl. 4 e.h.
Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórnin
göfuauglýsingar
Sími 481 3584 eða 898 6448
Sjá
Lundinn
rni Tryggva og félagar
föstudags- og laugardagskvöld.
Bjarni byrjar með uppistand kl. 22.00.
Frítt inn til miðnœttis og aðeins 500 kr. eftir það.
Sími 481 3412 eða 896 3426, allan sólarhringin
Verðlækkun!
- tauþurrkarar
Þurrkari m. barka 5 kg..........19.900 kr.
Þurrkari m. barkaskynjara 5 kg. . 29.900 kr.
Þurrkari barkalaus 6 kg.........39.900 kr.
Tölvunámskeið fyrir
atvinnulausa
í síðustu viku fór af stað tölvu-
námskcið fyrir atvinnulausa í
Vestmannaeyjum sem skráðir eru
hjá Svæðisatvinnumiðlun Suður-
lands (SVMS).
Námskeiðið er í samvinnu við
Tölvuskóla Vestmannaeyja og
SVSM, og var haldið í Athafnaveri
Vestmannaeyja. Elsa Reimarsdóttir
ráðgjafi hjá SVMS sagði að á döfinni
væri röð námskeiða fyrir atvinnulausa
á Suðurlandi á skrá hjá SMVS.
„Námskeiðið í Vestmannaeyjum var
fyrsta námskeið af þessu tagi í
Vestmannaeyjum, en það stóð yfir í
fimm daga, var 15 klst, eða þrír tímar
á dag. Tuttugu og tveir voru skráðir á
námskeiðið í Eyjum, en það fer eftir
fjölda á skrá hversu mörg námskeið er
hægt að bjóða upp á hveiju sinni."
Elsa sagði að námskeiðin væru
hugsuð sem grunnnámskeið og fyrsta
kynning.
„Það er kennt á tölvuna sjálfa og
ýmis atriði í tölvuumhverfinu. Þau
forrit sem farið er í em Word-
ritvinnsla, Intemetið og tölvupóstur,
en mest áhersla er lögð á ritvinnsluna.
Það hefur verið mjög góð aðsókn að
námskeiðunum og fólk verið mjög
ánægt með þau,“ sagði Elsa.
DAVÍÐ Guðmundsson í Tölvun við kennslu á námskeiðinu.
i •*< t K
W Æ ■ ’
f A, HfiBl
FRA verðlaunaafhendingu, frá vinstri: Sigurður Þór Sveinsson, formaður mótsnefndar sem afhenti
verðlaunin fyrir hönd bróður síns, Birgis Sveinssonar í Tvistinum, Sigurgeir Jónsson sigurvegari mótsins,
Jóhann Olafsson 2. sæti og Oskar Olafsson 3. sæti.
Billjardíþróttin á góðu gengi að
fagna víða um heim, aðallega sú
tegund hennar sem nefnist snóker.
Skemmst er að minnust frábærs
árangurs íslenska landsliðsins sem
sigraði glæsilega á nýafstöðnu
Norðurlandamóti, bæði í liða- og
einstaklingskeppni.
I Vestmannaeyjum hefur minna
borið á íþróttinni síðan Billiardstofan
Nova hætti rekstri. Þó er snóker
spilaður af kappi í tveimur félags-
heimilum bæjarins, Kiwanis og
Akóges en iðkunin að mestu bundin
við félagsmenn þeirra klúbba. Þriðji
klúbburinn, Oddfellow, mun ætla sér
að koma upp billjardborði á þessu ári.
Auk innanfélagsmóta hjá þessum
tveimur klúbbum leiða þeir einnig
saman hesta sína í sérstökum mótum.
Á föstudag lauk stærsta mótinu, Tvist
Open, en fyrirtækið Tvisturinn hefur í
sjö ár geftð verðlaun til þess móts. 44
keppendur tóku þátt í mótinu að þessu
sinni en Tvist Open er útsláttarmót
þar sem þeir falla úr keppni sem tapa
tvívegis leik.
I síðustu viku fóru fram undanúrslit
milli þeirra fjögurra sem þá voru eftir
en það voru þeir Jóhann Ólafsson,
Kristján Egilsson, Óskar Ólafsson og
Sigurgeir Jónsson. Undanúrslit fóru
þannig að Jóhann vann Óskar og
Sigurgeir vann Kristján. Á föstudag
fór svo úrslitakeppnin fram. í keppni
um þriðja sæti bar Óskar sigurorð af
Kristjáni með 3 vinningum gegn
tveimur eftir harða viðureign. Þeir
Jóhann og Sigurgeir börðust um fyrsta
sæti og var sú barátta ekki útkljáð fyrr
en í 5. leik á síðustu kúlu. Þar vann
Sigurgeir naumasta sigur sem unnt er
að vinna og fær því Tvistbikarinn til
varðveislu í eitt ár. Fram til þessa hafa
Kiwanismenn ævinlega verið í efsta
sæti á þessu móti en hér með er brotið
blað í sögu keppninnar þar sem
sigurvegarinn er í Ákóges.