Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2000, Qupperneq 13
Fimmtudagur 2. mars 1999
Fréttir
13
Stefán Jónasson skrifar um útboð á Herjólfi:
Að verja hagsmuni
Eyjanna eða ekki?
Á fundi í Ásgarði
laugardaginn 27.
nóvember síðast-
liðinn gerði Ámi
Johnsen alþingis-
maður grein fyrir
væntanlegum
ffamkvæmdum
hér í Eyjum á
næstu ámm. Það
er alltaf gaman
að sjá hvað er framundan í atvinnu-,
ferða- og menningarmálum Eyjanna.
I Fréttum 2. desember er sagt frá
fundinum og greint frá því sem ÁJ
hafði sagt. Ég saknaði aðeins eins
atriðis, sem skiptir okkur Eyjamenn
miklu máli að fá svör við, það em
málefni Herjólfs og útboð á rekstri
hans.
ÁJ er formaður samgöngunefndar
og hefði verið nauðsynlegt fyrir okkur
Eyjamenn að fá skoðun ÁJ á þessu
máli og hvað hafði breyst frá aðal-
fundi Heijólfs.
Það hefur oftar en einu sinni verið
sagt við mig að ÁJ bjargi öllu í Vest-
mannaeyjum. Ef að það gengur ekki
fyrirhafnarlaust er bara að að kýla á
það eða setja hrygg í málið. Og það er
einmitt það sem þarf að gera núna.
ÁJ, þú hefur oft sýnt myndir af
þeim verkum sem þú hefur komið
áfram og nú langar mig til að sjá hvað
gerist næst vegna útboðsins.
ÁJ sagði fyrir kosningar að staða
hans yrði sterkari á þingi fengi hann
góða kosningu. Þá gæti hann beitt sér
í málefnum okkar Eyjamanna. Þennan
stuðning fékk hann og um leið þau
völd sem hann fór fram á til að gæta
hagsmuna Vestmannaeyja. Meðal
þessara hagsmunamála eru að
Herjólfur verði rekinn á svipuðum
grundvelli og hingað til.
Þama hefur ÁJ ekki staðið sig því
búið er að ákveða að reksturinn verði
boðinn út. Reyndar hefur hann sagt að
þetta sé aðeins til að sýnast og að
embættismenn séu að skoða hlutina.
Þetta hefur ekki heyrst annars staðar
og ÁJ hefur líka sagt að aðeins hluti
rekstrarins yrði boðinn út, t.d. veit-
ingasalan.
ÁJ, þú fékkst víðtækan stuðning í
Eyjum og þú skuldar okkur svör því
að á aðalfundi Heijólfs hf. sagðist þú
efast um að rekstur Herjólfs yrði
boðinn út. Er nú svo komið að mig
langar til að fá að vita hvað ÁJ, for-
maður samgönunefndar, hefur gert
varðandi útboðsmál Heijólfs. Hann er
svo sem ekki einn því við eigum fimm
menn á Alþingi Islendinga, þar af er
einn ráðherra, Guðni Ágústsson og
Lúðvík Bergvinsson situr í samgöngu-
nefnd með ÁJ.
Fyrir skömmi svaraði Sturla Böðv-
arsson, samgönguráðherra, íyrirspum
Isólfs Gylfa Pálmasonar um málefni
Heijólfs. Það verður að segjast eins og
er að það kom mér á óvart hvað
Isólfur Gylfi var einmana í salnum því
hann var sá eini sem ræddi málið,
aðrir sunnlenskir þingmenn vom fjarri
góðu gamni. Er þetta e.t.v. staðfesting
á því að hinir fimm þingmennimir séu
búnir að gefast upp á að gæta hags-
muna okkar Eyjamanna?
ÁJ, verður það í þinni tíð sem for-
manns samgöngunefndar að rekstur
Heijólfs verður boðinn út? Ef fer sem
horfir þurfa menn nú að fara að taka til
hendinni, smúla dekkið og skella á
eins og einum lúkarsfundi um málið
með þingmönnum okkar, bæjarstjóm,
stjóm Heijólfs hf., samgönguráðherra
og fulltrúum Vegagerðarinnar. Staða
okkar hlýtur að vera sterk með for-
mann samgöngunefndar, annan full-
trúa í nefndinni og eitt stykki ráðherra.
Er ekki kominn til að þingmenn geri
kjósendum sínum grein fyrir því hvað
þeir hafa gert í málefnum Heijólfs þar
sem verið er að elta reglur EES um
útboð á feijum.
Þetta mál snýst um að fargjöld
hækki ekki við útboð. Hækki þau ekki
og batni þjónustan verður þetta í góðu
lagi en hækki fargjöld og ferðum
fækkar emm við í slæmum málum.
Það hefur verið boðað að ferðum
fækki ekki og jafnvel skuli bæta
þjónustuna með útboði. Þetta er sagt
um leið og fulltrúar Vegagerðarinnar
vilja sjá lægri rekstrarkostnað. Hvern-
ig vilja þeir spara? Hvar sér Vega-
gerðin óþarfa eyðslu í rekstri Herjólfs
í dag?
í dag er ekkert svigrúm til að gera
betur í rekstrinum nema að t.d. lögum
verði breytt um fjölda í áhöfn sem
verður að teljast mjög ósennilegt.
Laun, olía og tryggingar kosta
ákveðna upphæð sem ekki verður
breytt nema að dregið verði úr rekstri.
Ég fæ því ekki skilið hvemig Vega-
gerðin ætlar sér að græða á útboði
nema með því að hækka fargjöld.
Ég held að við Eyjamenn verðum
að hugsa alvarlega okkar gang í þessu
máli. Ég vil taka fram að þetta er ekki
skrifað í einhverju svartsýniskasti en
sumir hér í bæ flokka alla gagnrýni
sem svartsýni. Þetta er heldur ekki
persónuleg árás á einn eða neinn. Hér
er verið að fjalla um blákaldar
staðreyndir sem Vestmannaeyingar
geta séð sjálfir ef þeir líta upp og horfa
í kringum sig. Og ég vona að þessi
skrif skaði ekki Vestmannaeyjar út á
við.
Höfundur á sœti í stjóm Herjólfs hf.
Ármann Höskuldsson skrifar:
Ruslafötur
Rusl og úrgangur
er eitt helsta
vandamál mann-
kyns í dag. Lengi
vel var brugðist
við þessu vanda-
máli með því að
setja allt rasl í
sjóinn eða í ár
sem renna í
gegnum bæi. Mönnum þótti þetta
framan af hin besta Iausn einkum
vegna þess að þannig losuðu nátt-
úmöflin okkur við þá ófögra sýn sem
stórir raslahaugar vilja verða. Þannig
var lengi vel sturtað öllu rasli vestur af
hamri og beint ofan í íjöra. En allt rasl
sem þannig er losað eyðist náttúralega
ekki af sjálfum sér, heldur var borið
með sjávarstraumum til nálægra
stranda okkar sem megineyjunnar
Islands. Þessi lausn var ekki góð
heldur vegna þess að sjórinn og hafs-
botninn í kring safnaði í sig ýmsum
eiturefnum sem ekki teljast góð heilsu
manna þegar til langtíma er litið.
Seinni tíma leiðir era þær að grafa
rasl fjarri úthöfunum eða brenna í þar-
tilgerðum ofnum. Þessar leiðir
reyndust þó ekki fullkomnar einar sér
þar sem annars vegar krefst gröftur
mikils landflæmis og brennslan öflugs
síubúnaðar til að losa okkur við
eiturefni sem streyma frá brennslu-
ofnunum. Hin allra síðustu ár hafa
byggðasamfélög snúið sér í æ meira
mæli að því að flokka úrgang og nýta
þannig stóran hluta hans en grafa
afganginn.
Kosturinn er sá að umhverfi okkar,
og þar með við sjálf, losnum þannig
við flest eiturefni eða takmörkum
hættu af þeim stórlega. Einnig þá
nýtum við aftur það sem nýtanlegt er
og hlífum þannig alheimsumhverfinu.
En endurvinnsla er dýr smáum sam-
félögum þegar til langtíma er Iitið. Það
er því nauðsynlegt að sem mest af
henni eigi sér stað hjá neytandanum,
þ.e. í okkar eigin heimahúsi. Þannig
tökum við þátt í því að aðgreina raslið
á framstigi og flýtum fyrir flokkun
þess á sorpstöð.
Hér í Eyjum er okkur boðið upp á
að flokka rasl í heimahúsi með því að
halda almennu heimilissorpi sér,
aðskilið frá gleri og málmi. Á meðan
við stöndum okkar pligt í þessu lækk-
um við almennt kostnað við sorphirðu
(sem þýðir í raun að við höldum niðri
álögum í bænum).
Flokkun í sorpstöð og hjá fyrir-
tækjum hjálpar einnig við þessa
endurvinnslu og aðgreiningu sorps.
Ennfremur þá minnkar heildarmagn
þess sorps sem verður að grafa. Eitt
stærsta vandamál okkar Eyjamanna er
urðun sorps. I Eyjum er þegar nýtt um
85% alls landrýmis, þ.e. um 12
ferkílómetrar. Eftir standa því um 2
ferkílómetrar sem hámarksland til
urðunar. Ef við höldum áfram eins og
nú þá munum við líklega íylla þessa 2
ferkílómetra á næstu 100 áram. Þá
munu í Eyjum búa SORP og menn.
En ef við viljum spoma við þeim óhug
þá skulum við standa saman í flokkun
heima og heiman og leita sem fyrst
leiða til þess að koma því rusli sem
við þurfum að urða á stærri eyjuna.
Nýr verslunarstjóri á Tanganum:
Gott vöruúrval
og góð þjónusta
-verður meðal þess sem við
leggjum áherslu á
Nýr verslunarstjóri, Ásgeir Guð-
mundsson, hefur tekið við stjórn-
inni í versluninni KÁ-Tanganum
af Svanhildi Guðiaugsdóttur. Ás-
geir tók við sem verslunarstjóri
fyrir rúmum mánuði.
Ásgeir er lærður þjónn en síðustu
tæplega fimm ár hefur hann verið til
sjós. „Fyrst var ég á Þórunni Sveins-
dóttur VE, svo á Gígju og nú síðast á
Gjafari. Ég var mest háseti en leysti af
sem kokkur þegar þess þurfti. í sjálfu
sér kunni ég ágætlega við mig á
sjónum en fjarlægðin við fjölskylduna
er það versta við sjómennskuna. Þegar
túrinn er orðinn einn mánuður er
mann farið að langa að sjá fjöl-
skylduna. Að öðra leyti var þetta
ágætt og á sjónum kynntist maður
mörgum skemmtilegum mönnum,
sagði Ásgeir í viðtali við Fréttir."
Ásgeir sagðist hafa verið farinn að
líta í kringum sig eftir atvinnu í landi í
töluverðan tíma. „Ég var að leita að
starfi sem færi vel saman við menntun
mína sem þjónn. Þegar verslunar-
stjórastaðan á Tanganum var auglýst
ákvað ég að slá til. Ég hef ekki unnið í
matvöruverslun áður en það er margt
líkt með þessu starfi og þvf sem
kynntist sem þjónn. Ég lærði á Hótel
Holti og þar kynntist ég einu og öðru
sem lítur að rekstri og á Hótel Sögu sá
ég um rekstur á börum. Allt kemur
þetta að notum í nýju starfi.“
Ásgeir sagði að verslunarstjóra-
starfið legðist vel í sig. „Ég er búinn
að vera héma í rúmlega mánuð og ég
get ekki kvartað yfir viðtökunum. Þær
hafa verið jákvæðar og ég hlakka til
að takast á við nýtt verkefni."
Má búast við einhverjum nýjungum
hjá nýjum verslunarstjóra? „Ég er
ennþá að læra og fer hægt í sakimar til
að byrja með. Það verða nýjungar
þegar fram í sækir og við munum
keyra mikið á helgartilboðum. Mark-
miðið er að hafa sem mest vöruúrval,
góða þjónustu í fyrirrúmi og verð við
allra hæfi.“
Ásgeir er 29 ára gamall en verður
þrítugur í þessum mánuði. Hann er
kvæntur Sædísi Gígju og eiga.þan þiþi
börn og fjölskyldan hefur búið í
Vestmannaeyjum í átta ár. „Þegar við
fluttum til Eyja á sínum tíma ætluðum
við prófa að búa hér í eitt ár. Þau era
nú orðin átta þannig að það er ekki
hægt að segja að okkur líki illa,“ sagði
Ásgeir Guðmundsson nýr verslunar-
stjóri áTanganum.
Fjölmenni mætti á ferða- og vörukynningu sem útskriftarhópur
Framhaldsskólans stóð fyrir í sal skólans á iaugardaginn.
Samvinnuferðir- Landsýn vora með ferðakynningu og Sigríður Sigmarsdóttir,
umboðsmaður SL útdeildi ferðabæklingum þeirra auk bæklings frá
Ferðaskrifstofu stúdenta.
Nu Skin var með snyrtivörukynningu og verslanimar Do Re Mí, Eðalsport og
Smart vora með tískusýningar. Sjálfur var útskriftarhópurinn með Emmess-
ísleik í gangi, seldi öl og sælgæti og happdrættismiða og rennur ágóðinn í
útskriftarferð í vor. Margt var um góða vinninga. Stærstu vinningana fengu Inga
Hjálmarsdóttir sem fékk gjafabréf frá Smart, Sigríður Gísladóttir fékk gjafabréf
frá Eðalsport, Kristín Magnúsdóttir fékk gjafabréf frá Do Re Mí og
aðalvinninginn, Flugferð fyrir tvo til London með Samvinnuferðum-Landsýn
fékk Lilja Rut Sæbjömsdóttir.
Kynningin þótti takast vel í alla staði og er áætlað að um 140 manns hafi mætt
í Framhaldsskólann á laugardaginn. Á myndinni era Sigmar Georgsson og
Sigríður í bás Samvinnuferða-Landsýnar.