Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2000, Page 15
Fimmtudagur 2. mars 2000
Fréttir
15
lands og Eyja:
er óháður heildarlengd ganganna og
getur hæglega numið einum milljarði
króna.
Að vegnum forsendum telja
skýrsluhöfundar skynsamlegt að
reikna með að kostnaðurinn geti verið
8 til 10 milljarðar á hvem km og
heildarkostnaður við 13, 5 km botn-
göng milli lands og Eyja þvf áætlaður
110 til 140 miljarðar.
Flotgöng
Ný aðferð við vegtengingar yfir vötn
og höf eru svo kölluð flotgöng. Er þar
um að ræða hólk eða rör úr stáli
og/eða steypu sem flýtur undir yfir-
borðinu og er stagaður niður í hafs-
botninn eða haldið föstum með
stórum flotholtum. Flotgöng hafa
ekki enn þá verið byggð í heiminum
en fyrsta verkefnið af þessu tagi er
tilbúið til útboðs í Noregi. Þar er um
að ræða 14 km langa þverun Högs-
íjarðar sem er lygn innljörður skammt
frá Stavanger. Astæða þess að menn
hafa fyllst áhuga á þessri tegund
ganga og nýstárlegu lausn er ma. sú
að hún gæti hentað betur þar sem dýpi
er mikið eða meira en 50 metrar og
vegalengd yfír I km og þar sem
umhverfisþættir eru mikilvægir, enda
þykir lausnin einkar umhverfisvæn.
Aðferðin er lítið háð dýpi, hindrar
ekki umferð skipa og báta, veglína er
nánast lárétt og nær engar tak-
markanir vegna lengdar. í raun meta
skýrsluhöfundar þessa lausn á þann
veg að hún opni möguleika á
samgöngumöguleikum sem hingað til
hafa verið álitnar óffamkvæmanlegar.
Þessi lausn er oft nefnd „brú
Arkimedesar“ þar sem hún nýtir
uppdrifskraftana sem bera í raun
mannvirkið uppi.
Flotgöng milli lands og Eyja
myndu að mati skýrsluhöfunda vera
lögð í nær beina línu frá Heimaey og
upp á Landeyjasand. Landtaka í
Eyjum er hvað hagkvæmust þar sem
mjög aðdjúpt er við ströndina, t.d. í
Viðlagafjöru og í nýja hrauninu á
norðaustanverðri Heimaey. Lega
slíkra flotganga yrði svipuð og lega
núverandi vatnsleiðslu. Lengdin yrði
um 12.5 km og þar af yrðu a.m.k. 2
km steyptir uppi á landi. Einn ókostur
við þessa staðsetningu er að hún er
mjög nærri hinni virku gosrein sem
liggur frá Surtsey norðaustur um
Hellisey og Heimaey, norður í Alinn
og stefnir upp á land.
Gert er ráð fyrir að flotgöng séu
byggð úr einingum á svipaðan hátt og
botngöng. Einingamar eru smíðaðar
á landi og síðan fleytt á sinn stað og
sökkt og þær tengdar saman. Enn-
fremur hefur verið skoðaður sá mögu-
leiki að tengja einingamar saman á
landtökustað og ýta lengjunni smám
saman út eða byggja lengjuna smám
saman án hefðbundinna eininga og
ýta henni jafnóðum út. Oftast er gert
ráð fýrir að göngin mari í kafi á um 30
til 40 metra dýpi þar sem öldu gætir
lítið. Helsti ókostur flotganga er sá að
þessi lausn er afar dýr og nefna
skýrsluhöfundar sem dæmi að Högs-
fjarðargöngin em talin kosta tíu
sinnum meira en hefðbundin jarð-
göng í góðu bergi. Heildarkosmaðar-
áætlun Norðmanna fyrir flotgöngin í
Högsfirði hljóðar upp á 5.4 til 7,2
milljarða á km.
Skýrsluhöfundar segja að aðstæður
á sundinu milli lands og Eyja séu
mjög erfiðar með tilliti til veðurfars
og ölduhæðar og tenging við sand-
ströndina í landi afar kostnaðarsöm.
Gert er ráð fyrir að framkvæmd við
flotgöng tæki um 10 til 12 ár.
í skýrslunni er talið eðlilegt á þessu
stigi að reikna með því að flotgöng
milli lands og Eyja gætu kostað 10 til
12 miljarða á km og að heildar-
kostnaður við 12.5 km löng flotgöng
því áætlaður 120 til 150 miljarðar.
Meistaraflokkar ÍBV leika á Hásteinsvelli að öllu óbreyttu:
Framkvæmdaáætlun
skilyrði fyrir undanþágu
-Hertar reglur um Evrópuleiki nær útiloka félagsvelli
HLYNUR Stefánsson fyrirliði ÍBV skiptist á veifum við fyrirliða
andstæðinganna fyrir Evrópuleik á Hásteinsvelli. Hertar kröfur gera
það að verkum að Evrópuleikir á Hásteinsvelli heyra sögunni til við
óbreyttar aðstæður.
Jóhann Kristinsson, starfsmaður
mannvirkjanefndar KSI, segir að
Hásteinsvöllur hafi verið tekinn út
sfðastliðið sumar af nefndinni og við
þá úttekt hafi komið í ljós þrjú
atriði sem völlurinn þyrfti að
uppfylla til þess að vera samkvæmt
reglugerð sem samþykkt var fyrir
sex árum.
„Eftir þessa úttekt í haust fékk
knattspyrnudeild IBV, eins og öll lið
í Landssímadeildinni keppnisleyfi
miðað við vallaraðstæður þegar völl-
urinn var tekinn út. Hásteinsvelli var
þar skipað í flokk D, sem eru þær
kröfúr sem gerðar em til liða í 2. deild.
Þær athugasemdir sem gerðar vom og
völlurinn þarf að uppfylla til að vera
hæfur í Landssímadeildinni em girð-
ing umhverfis völlinn, gæsla á leið
starfsmanna og leikmanna að vellin-
um og betri aðstaða fyrir áhorfendur
og þá er ég að tala um aðstöðu fyrir
500 áhorfendur, bekki, eða steypta
palla á varanlegu undirlagi. Ef þessi
atriði komast í lag færi völlurinn í
flokk B og völlurinn myndi fullnægja
þeim kröfum sem gerðar em sam-
kvæmt reglugerðinni."
Jóhann segir að stjóm KSI geti veitt
undanþágur frá reglugerðinni, enda
liggi þá fyrir staðfest framkvæmda-
áætlun. „Svo mér sé kunnugt hefur
ekki verið sótt um slíka undanþágu
vegna keppnistímabilsins næsta sumar
og við ekki séð neina framkvæmda-
áætlun. Hins vegar höfum við fengið
bréf frá stjóm knattspymudeildar ÍBV,
þar sem óskað er eftir áliti mann-
virkjanefndar. Þar er óskað eftir svari
við tveimur spumingum. Annars
vegar hvað myndi gerast að_ öllu
óbreyttu og hins vegar hvort KSI hafi
kynnt Vestmanneyjabæ stöðu mála.“
Jóhann segir að IBV sé ábyrgt fyrir
þátttöku sinni í mótinu, en ekki
Vestmannaeyjabær. „Það er ekki KSI
að ræða þessi mál við Vestmanna-
eyjabæ, heldur hýtur það að vera mál
ÍBV. Einnig segir það sig sjálft að
engar undanþágur verða veittar ef ekki
koma neinar óskir þar um frá IB V.“
Varðandi vallarkröfur í Evrópu-
meistaramótum og Evrópubikar-
mótum, segir Jóhann að gerð sé krafa
um sæti í þeim leikjum fyrir áhorf-
endur. „Samkvæmt nýjum og hertum
reglum UEFA sem kynntar vom
fjölmiðlum síðastliðinn þriðjudag
verða allir áhorfendur að hafa sæti á
Evrópumótum. Hásteinsvöllurinn
uppfyllir ekki þau skilyrði og ljóst að
slíkir leikir munu ekki fara fram á
vellinum.“
I tilkynningunni segir að allir vellir
þar sem Evrópuleikir fari fram verði
að hafa sæti fyrir áhorfendur og
aðstaða fyrir standandi áhorfendur
lokuð. I Evrópumeistaramótum verði
einnig að vera til staðar eftirlitsmynda-
vélar, bæði utan og innan vallar.
Bekkir hveiju nafni sem nefnast munu
ekki verða viðurkenndir og litið á þá
sem stæði. I skilgreiningu á nytja-
hlutnum sæti samkvæmt þessum nýju
reglum segir: „Sæti verða að vera föst
og aðskilin næstu sætum, vera með
baki og laga sig að sitjanda, auðkennt
með númeri og vera úr óbrjótanlegu
og óeldfimu efni.“
Laugardalsvöllurinn tekur 7000
manns í sæti, KR völlurinn og Akra-
nessvöllurinn með u.þ.b. 500 manns.
Þess má geta að ÍBV og Skaginn
munu taka þátt í Evrópubikarmótinu á
þessu ári, og KR mun taka þátt í
undankeppni Evrópumeistarakeppn-
innar.
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri
sagði að málið væri í biðstöðu og ekki
verið tekin ákvörðun um framhaldið.
Hann sagðist hafa rætt við knatt-
spymuráð IBV og framkvæmdastjóra
knattspymudeildar fyrir hálfum
mánuði og tjáð þeim að málið myndi
skýrast innan mánaðar. „Það kom
fram í framsögu minni vegna 3 ára
fjárhagsáætlunar að ekki hefði verið
tekin ákvörðun um stúkubyggingu."
Inngangur bæjarstjóra vegna þriggja ára áætlunar:
Lán greidd niður um 72m
Þriggja ára áætlun bæjarsjóðs var
lögð fram á síðasta bæjarstjórnar-
fundi og nær hún til áranna
2001-2003. Er hún unnin af meiri-
hluta bæjarstjórnar að því er kom
fram hjá bæjarstjóra og allar upp-
hæðir eru á verðlagi dagsins í dag.
„Miðað er við sömu tekjuforsendur
í þessari 3ja ára áætlun og síðastliðin
ár en þess ber að gæta að mismunur á
útsvarstekjum byggir á því að upp-
gjöri er lokið vegna staðgreiðsluupp-
gjörskekkju sem upp kom á sínum í
tíma,“ sagði Guðjón Hjörleifsson
þegar hann fylgdi áætluninni úr hlaði.
„Helstu breytingar á rekstraráætlun
er að á árinu 2001 er gert ráð fyrir
rekstrargjöldum vegna nýs íþrótta-
salar og á móti fellur rekstur Týs-
heimilisins út. Rekstrartíminn miðast
við síðasta ársþriðjunginn árið 2001.
Sömu forsendur vegna íþróttasalar og
Týsheimilis em síðan á árinu 2002 og
þá er miðað við heilt rekstrarár.
Viðhald er fært sérstaklega á hverja
stofnun árið 2000 skv. tillögu
tæknideildar en sú upphæð getur
breyst og færst á milli stofnana á
hverju ári, en tæknideild kemur með
tillögur um það hveiju sinni.“
Guðjón sagði að þriggja ára gatna-
gerðaráætlun hafi ekki verið sundur-
liðuð. „Enda verða oft miklar breyt-
ingar á milli ára, m.a. vegna þess að
samvinna við Póst og Síma og
Bæjarveitur hefur orðið til þess að við
tökum þátt í endumýjun gangstéttar-
hellna eða farið er í yfirlög á götum
samhliða þeirra framkvæmdum. Þessi
samvinna er mjög hagkvæmur kostur
íyrir báða aðila.“
I eignfærðri fjárfestingu árið 2001
em framkvæmdir við íþróttamið-
stöðina og Týsheimili, ásamt sölu á
eignum bæjarins. I eignfærðri fjár-
festingu árið 2003 er gert ráð fyrir
áframhaldandi uppbyggingu Barna-
skólans.
Á árinu 2001-2003 er stærsti
liðurinn í gjaldfærðri gatnagerðar-
áætlun holræsaframkvæmdir upp á 25
milljónir (nettó) svo og gatnagerðar-
áætlun.
í þriggja ára áætluninni er gert ráð
fýrir niðurgreiðslu lána upp á tæpar 73
milljónir. „f eignfærðri fjárfestingu
hafa oft orðið breytingar á milli ára,
bæði hafa áherslur breyst eða
breytingar hafa orðið á lögum eða
reglugerðum sem hafa orðið til þess
að forsendur 3ja ára áætlunar hafa
breyst. Einnig ber að geta þess að
hlutur bæjarsjóðs í Menningarhúsi, ef
af yrði, gæti komið inn innan þessarar
áætlunar og ekki hefur verið tekin
ákvörðun með stúkumál við Há-
steinsvöll,“-sagði Guðjón að lokum.
Spurt er????
Setti að
þér ugg
eða ótta
þegarþú
fréttir að
byrjað
væri að
gjósa?
Hjálmfríður Sveinsdóttir skóla-
stjóri Barnaskólans:
„Nei það kom
enginn uggur í mig
vegna þessa goss.
Hins vegar gátu
stundum veðurhljóð
leitl hugann að gosi
hér áður fyrr, en nú
líður lengra á milli
|iess að ég kippi mér upp við slíkt."
Áki Heinz Haraldsson, starfs-
niaður á bæjarskrifstofuni:
„Nei, nei, ekki
nokkur uggur, þetta
var frekar spenn-
ingur samfara for-
vilni og ég beið |ress
vegna spenntur að
heyra frekar af
gosinu í fréttum
Ríkisútvarpsins klukkan 18.00. Eg
er nú með stúkuaðstöðu heima hjá
mér við norðurgluggann og mjög
góða yfirsýn í ált til Heklu. Ég leit
því út tim gluggann og sá slrókinn
og eldglóðina seinna um kviildið."
Guðmundur H. Guðjónsson
skólastjóri Tónlistarskóla Vest-
mannaeyja:
„Nei, nei og varð
ekki einu sinni hissa
og hrökk ekki
vitund við. Hekla er
á reginöræfum og
fólk ekki í neinni
hættu. Annars er
þetta fjórða Heklu-
gosið sem ég upplifi og skoðaði
gosið í Skjólkvíum 1970. Þóégsé
fæddur fyrir gosið 1947 sem var nú
mesta Heklugos á öldinni man ég
ekki eftirþví."
Kristín Haraldsdóttir starlsmað-
ur Sparisjóðs Vestmannaevja:
„Nei ég hugsaði
ekki um það. Ég
byggi ekki hérefég
væri alltaf að hugsa
um hvert einasta
eldgos sem ætti sér
stað, þá væri maður
í sílelldu hræðslu-
stressi. Ég pældi li'tið í þessu gosi."
Ásmundur Friðriksson fram-
kvæmdastjóri:
„Nei alls ekki. Ég
hlakkaði frekar til
að sjá gosið, ef
eilthvað var. Ég hef
lieldur ekki frétt af
neinum sem fylltist
ótta vegna þessa
goss í Heklu og veit
ekki annað en lílið hafi gengið sinn
vanagang hér í Eyjum."