Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2000, Page 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 2. mars 2000
Landa-
KIRKJA
- lifandi samfélag!
Fimmtudagur 2. mars
Kl. 10.00. Foreldramorgunn.
Kl. 14.30. Helgistund á Heil-
brigðisstofnun Vestmannaeyja,
dagstofu 2. hæð.
Heimsóknargestir velkomnir.
Kl. 17.00. TTT- kirkjustarf 10-12
ára krakka.
Kl. 18.00. Kyrrðar- og bænarstund
með Taize söngvum. Öllum vel-
komið að leggja til fyrirbænarefni.
Föstudagur 3. mars
Kl. 12.30. Æfmg hjá Litlum
lærisveinum, eldri hóp. Mikilvæg
æfing fyrir kvöldið.
Kl. 13.15. Æfing hjá Litlum læri-
sveinum, yngri hóp, fyrir næstu
bamaguðsþjónustu.
Kl. 20.00. Alþjóðlegur bænadagur
kvenna. Samkirkjuleg helgistund
fyrir konur á öllum aldri. Bænar-
efni sent frá konum í Indónesfu.
Laugardagur 4. mars
Kl. 10.30. Útfararguðsþjónusta
Erlings Geirs Yngvasonar.
Kl. 14.00. Útfararguðsþjónusta
Jóns Ingólfssonar.
Sunnudagur 5. mars
Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar:
Kl. 11.00. Bamaguðsþjónusta.
Litlir lærisveinar mæta og syngja
með okkur og fyrir okkur.
Kl. 14.00. Æskulýðsguðsþjónusta
með léttum söng og mikilli
lofgjörð. Prelátar sjá um tónlistina
og ungt fólk annast ýmsa liði
messunnar.
Þriðjudagur 7. mars
Kl. 16.30. Kirkjuprakkarar, 7-9 ára
krakkar búa til andlitsgrímur og
æfa öskudagslag.
Miðvikudagur 8. mars
Kl. 11.00. Helgistund á Hraun-
búðum. Allir velkomnir.
Kl. 20.00. Opið hús hjá æsku-
lýðsfélaginu í KFUM&K húsinu.
Fimmtudagur 9. mars
Kl. 17.00. TTT- kirkjustarf 10 -12
ára krakka.
Kl. 18.00. Bænar- og kyrrðarstund
með Taizelagi.
Hvítasunnu
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20.30 Samkoma með Joshua
Jones ffá USA
Föstudagur
Kl. 20.30 Unglingamir á samkomu
með Joshua Jones.
Laugardagur
Kl. 20.30 Bænasamkoma
Kl. 23.00 miðnætursamkoma
Joshua Jones.
Sunnudagur
Kl. 15.00 Vakningarsamkoma
ræðumaður Joshua Jones
Samskot til trúboðsins.
Þriðjudagur
Kl. 17.30 krakkakirkjan með
kátínu
Allir velkomnir í
Hvítasunnukirkjuna
Aðvent-
KIRKJAN
Laugardagur 4. mars
Kl. 11.00 Biblíurannsókn.
Kl. 12.00 Guðsþjónusta
Gestur helgarinnar Eric Guðmundsson.
Allir velkomnir.
Góður endasprettur
meiri.
Ekki er vitað hvað Sigbjörn þjálfari
sagði við stelpumar í leikhléi, en það
virtist svo sannarlega virka því að
þegar aðeins fimm mínútur voru
liðnar af seinni hálfleik hafði IBV
skorað þrjú mörk gegn engu marki
gestannaog jafnað leikinn.'
Eftir það var leikurinn í jámum og
liðin skiptust á að skora eða allt þar til
að Andrea Atladóttir tók til sinna
mála og kom liðinu í tveggja marka
forskot 25-23 og um sex mínútur til
leiksloka. Elísa Sigurðardóttir, Eyja-
maðurinn í liði Vals, hélt þeim inni í
leiknum með því að skora tvö
mikilvæg mörk fyrir liðið á meðan
ÍBV skoraði eitt.
Staðan var því orðin 26-25 og
rúmlega 3 mínútur eftir af leiknum og
líklega einhverjar lengstu þrjár
mínútur sem undirritaður hefur þurft
að þola. Valsstúlkur fengu tvisvar
sinnum tækifæri á að jafna, en þær
klúðruðu vítakasti og svo varði Vigdís
úr dauðafæri á síðustu andartökunum
og sigurinn Eyjastúlkna 26-25.
Bestar í liði ÍBV voru þær Andrea
Atladóttir og Vigdís Sigurðardóttir
sem hreinlega fóm á kostum í
leiknum, en einnig var Ingibjörg
dugleg í vöm.
Mörk ÍBV: Andrea 8, Amela 7/5,
Ingibjörg 3, Anita 3, Mette 2, Guð-
björg 1, Hind 1, Anna Rós 1.
Varin skot: Vigdís 17, Lúsí 2.
Með sigrinum komst ÍBV í þriðja
sæti Nissandeildarinnar með 27 stig,
jafnmörg stig og FH sem er í öðru
sætienmeðbetramarkahlutfall. ÍBV
mætir svo Fram í 8-liða úrslitum og
hefur ÍBV heimaleikjaréttinn ef til
þess kemur.
Sigbjöm Óskarsson var ekki
ánægður í leikslok. „Þetta var allt of
erfitt. Við vomm bara alls ekki
tilbúin og lékum okkar lélegasta leik í
lengri tíma í kvöld. Ég er hund-
svekktur með frammistöðu liðsins en
get hins vegar ekki neitað því að ég er
ánægður með sigurinn og að ná þriðja
sætinu sem er mjög gott.“
Það hlýtur að vera erfitt að fá á sig 17
mörk í fyrri hálfleik, hvað sagðirðu
við stelpumar í hálfleik?
„ Já, já, ég var alveg brjálaður og
sagði þeim til syndanna. Við ákváð-
um hins vegar bara að laga hlutina í
okkar leik í staðinn fyrir að breyta
einhverju og það gekk upp. Nú em 8-
liða úrslit framundan og með þessa
áhorfendur hef ég að engu að kvíða.“
Á þríðjudagskvöldið var síðasta
umferð í Nissandeild kvenna. I
Eyjum áttust við ÍBV og nýkrýndir
bikarmeistarar Vals og var búist
við hörkuviðureign. Með sigri gat
ÍBV náð þriðja sæti sem væri besti
árangur liðsins frá upphafi, en
Valsstúikur gátu náð fimmta sæti
með sigri. Gestirnir höfðu yfir-
höndina í fyrri hálfleik 14 - 17 en
góður kafli í __ upphafi seinni
hálfleiks tryggði ÍBV sigur 26 - 25.
Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir
ÍBV. Gestimir skomðu fyrstu tvö
mörkin og náðu þannig forskoti sem
þær létu ekki af hendi út hálfleikinn.
Amela var tekin úr umferð og fyrir
vikið varð sóknarleikur stelpnanna
ansi stirður. Mestur varð munurinn
fjögur mörk í fyrri hálfleik, en með
smábaráttu náði IBV að minnka
muninn niður í þrjú mörk fyrir leik-
hlé.
Staðan var hins vegar afleit, liðið
hafði fengið á sig hvorki meira né
minna en 17 mörk í einum hálfleik
sem segir meira en mörg orð um
varnarleik liðsins. Það var stelpunum
til happs að Valur spilaði líka lélegan
vamarleik og því varð munurinn ekki
ÍBV-stelpurnar áttu góðan endasprett og höfðu oft ástæðu til að fagna. Andstæðingar þeirra í úrslitum eru Fram
og þar stendur ÍBV betur að vígi með heimaleik ef til oddaleiks kemur. Mynd Páll Marvin.
Guðjón os Katrín
íslandsmeistarar
Hér á árum áður þóttu Eyjamenn
fremstir landans í að stökkva
stangarstökk og voru ófá afrekin
sem við gátum státað okkur af þá.
Undanfama áratugi hefur þessi
göfuga íþrótt ekki verið æfð í Vest-
mannaeyjum, þar til fyrir um 2 ámm
að Guðjón Ólafsson hóf æfingar við
fmmstæðar aðstæður. Aðstaðan er nú
orðin mjög góð og árangurinn lætur
ekki á sér standa. Guðjón gerði sér
lítið fyrir og varð íslandsmeistari
unglinga í stangarstökki, en hann og
Katrín Elíasdóttir kepptu á
Meistaramóti íslands fyrir 15-22 ára,
en Katrín varð einnig Islandsmeistari í
þrístökki unglinga.
í samtali við Fréttir sagði Guðjón að
sér hefði gengið framar öllum vonum.
„Ég keppti í tveimur greinum, kúlu og
stöng og bætti mig í báðum greinum.
1 kúlu endaði ég í 2. sæti, kastaði
10,90 metra og bætti mig um næstum
hálfan metra. I stöng átti ég best 3.75
en fór svo yfir 3.92 um helgina en
felldi þrisvar 4.02. Makmiðið er að
sjálfsögðu að komast yfir fjóra
metrana og það gerist í sumar. Annars
er ég mjög sáttur við veturinn, ég er 4.
besti stangarstökkvarinn á landinu
eins og er, endaði í 4. sæti í
Islandsmeistaramóti Islands fyrir um
þremur vikum en auðvitað stefni ég
lengra."
Katrín Elíasdóttir keppti einnig á
mótinu um helgina og var með í
þremur greinum, þrístökki, langstökki
og kúlu. Katrín sagðist vera mjög
ánægð með árangurinn. „Ég æfði
mjög lítið síðasta sumar vegna
meiðsla, þannig að ég er mjög ánægð
með árangurinn um helgina. Þetta er í
fyrsta skipti sem ég keppi í þrístökki
með atrennu þannig að betri byrjun er
ekki hægt að óska sér. Ég stökk í
þrístökki 10,36 metra og í langstökki
4,56 metra. Veturinn er búinn að vera
nokkuð góður og ég hef æft vel, en í
sumar ætla ég að leggja áherslu á
þrístökk og langstökk, kannski líka
kúlu.“ sagði Katrín að lokum.
KSTRÍNU og Guðjóni var vel tekið við heimkomuna af Ungmennafélaginu Óðni, ÍBV-héraðssambandi
og Vestmannaeyjabæ. F.v. Árný Heiðarsdóttir frá Óðni, Ásmundur Friðriksson formaður IBV og Sigrún
Inga Sigurgeirsdóttir formaður bæjarráðs.
Handbolti kvenna: IBV endaði í 3. sæti í deildinni eftir sigur á bikarmeisturum Vals