Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2000, Page 20
17
t/ Landflutningar
...FV
Daglegar
ferðir milli
londs og Eyjo
Rútuferðír-Bus tours
Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa
ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM
(3)4811909 - 896 6810 - fax 481 1927
Vilhjálmur Bergsteinsson
* 481-2943
* 897-1178
SENaireaMBÍLt.
FRÁ og með 1. apríl heyrir þessi sjón sögunni til en hún lýsir kannski ástæðunni fyrir því að annað
félagið verður að hopa af markaðnum, of mörg sæti fyrir of fáa rassa.
Erfiðast að hætta flugi til Eyja
Ómar Benediktsson framkvæmda-
stjóri Islandsflugs segir að í raun
hafi verið erfiðast að hætta fluginu
til Eyja.
„Við vorum að áorka hvað mestu á
þeirri leið. Þegar við settum ATR
vélina inn með þrjár ferðir á sínum
tíma vorum við að vinna á. Um
veturinn þegar við notuðum Domier-
vélamar og Flugfélagið var með
Metroinn, gekk okkur ágætlega líka
og í fyrrasumar ATR vél og Domier,
en þá bauð Flugfélag Islands þrjár
ferðir á dag með Fokker. Lykillinn
hjá okkur var því að sýna ATR vélina
oftar, þó að Domierinn hafi líkað vel.
Ómar sagði að íslandsflug hefði lagt
í töluverðan kostnað við markaðs-
setningu í innanlandsfluginu og
vissulega hefði það skilað nokkmm
ámgri. „Þrátt fyrir aukningu í far-
þegafjölda, þá skiluðu þeir ekki þeirri
tekjuaukningu sem við gerðum ráð
fyrir. Þess vegna ákváðum við að
hætta núna, vegna þess að kjara-
samningar em lausir og olíuverðs-
hækkun í sjónmáli. Þá vom fragt-
flugssamningamir við UPS lausir
líka,“ sagði Ómar að lokum. Bls. 2.
Búfjárhald á Haugunum án leyfis?
Búfjárhald á Haugasvæðinu hefur verið nokkur þyrnir í augum
bæjaryfirvalda um nokkurt skeið.
Landgræðsla ríkisins hefur sett að skilyrði að ekkert búfé verði haldið á
svæðinu ef áfram eigi að koma til kasta Landgræðslunnar með uppgræðslu
svæðisins. Þeir aðilar, sem þama eiga búfé, em með það í óþökk bæjaryfirvalda
og án leyfis en hafa að sögn þverskallast við og telja sig vera í fullum rétti. Þetta
mál mun nú komið til sýslumannsembættisins og að sögn heimildarmanna
blaðsins ætti að liggja fyrir á næstu dögum til hvaða ráða verður gripið til að koma
þessum óvelkomna búsmala burt af Haugasvæðinu.
Ekkert öskufall í Eyjum
Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í
Vestmannaeyjum sagði að al-
mannavarnanefnd Vestmannaeyja
hefði ekki verið kölluð saman vegna
gossins í Heklu sem hófst á
laugardagskvöld.
Hann sagði þó að menn hefðu allan
vara á sér vegna hugsanlegs öskufalls
í Eyjum. Að öðm leyti þyrftu Eyja-
menn ekki að hafa áhyggjur af Heklu,
eins og gosið hefði þróast undanfama
daga.
Líklega hefur engin aska borist til
Eyja úr Heklugosinu sem nú er í
rénun.
A mánudag var varað við hættu á
öskufalli í nágrenni Vestmannaeyja
og fóm flugsamgöngur m.a. úr
skorðum vegna þess. Ekki mældist
þó neitt öskufall það sinnið. í gær
þóttust menn sjá þess merki að
öskufall hefði verið um nóttina,
fíngert ryk lá þá hér yfir í litlu magni.
Óskar Sigurðsson, vitavörður og
veðurathuganamaður í Stórhöfða,
segir ekki unnt að greina hvort hér
hafi verið um ösku að ræða eða bara
venjulegt jarðvegsfok ofan af fasta-
landinu. Slíkt sé mjög algengt hér
eftir norðanáhlaup eins og var nú í
vikunni og sé jafnvel líklegra en að
hér hafi verið um ösku að ræða.
Óskar segir að hann hafi sett út bakka
strax og gosið hófst en ekkert haft sest
á hann af ösku um helgina. Aftur á
móti haft bakkinn ekki verið úti þegar
norðanveðrið gekk yftr enda hefði
hann sjálfsagt fokið burt í því veðri.
Ráðherra í heimsókn.í gær kom Árni Mathiesen, sjávarútvegs-
ráðherra í stutta heimsókn til Eyja.
Árni heimsótti nokkur fyrirtæki sem tengjast sjávarútvegi, þ.á.m.
Vinnslustöðina, ísfélagið, Sæhamar, Eyjaís og Atlantic Island. Að
auki átti hann fundi með fulltrúum útvegsmanna, sjómanna og
verkafólks. Þessi heimsókn er sú sjötta í röð heimsókna ráð-
herrans í kjördæmi landsins. Með Árna voru nafni hans Johnsen
og Drífa Hjartardóttir. Þau brugðu sér m.a um borð í loðnubát.
vikuna 1
mars
Oetker bollumix, 500 gr. 199 kr.
Mömmu jarðarberjasulta, krukka 400 gr. 168
Mömmu rabarbarasulta, krukka 400 gr. 168 kr.-
Mömmu rabarbarasulta,
sprauta 500 gr. 199 kr.-
Opíð: mán.- fös. 8-19, lau. 9-19, og sun. 10-19