Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 25.05.2000, Qupperneq 4

Fréttir - Eyjafréttir - 25.05.2000, Qupperneq 4
4 Fréttir Fimmtudagur 25. maí 2000 BokvHiar(kana Tek tarnir í lestri Það eru líklega ein 33 ár síðan ég var með Herði Jóns til sjós á Andvara og á þeim tíma sá hann til þess, þegar verið var á sjó, að ekki var mikill tími til bókalestrar og þegar stoppað var í landi hafði maður allt annað við tímann að gera en að liggja í bókalestri. Reyndar man ég eftir því að þegar verið var á trolli þá kom Hörður oftast klyfjaður af bókum og blöðum þegar verið var að leggja í'ann, þannig að einhvemtíma í túmum hefur hann fundið smá stund til lestrar. Ég á það reyndar sam- eiginlegt með Herði og fleirum að taka heim með mér talsverðan slatta af bókum, en ef mér líkar ekki við efnið þá er ekki lengi verið að afgreiða sumar þeirra. Bókasmekk minn á ég frekar erfitt með að skilgreina. Einna helst eru það bækur um sagnfræði og allan þjóðlegan fróðleik sem höfða til mín. Eins viðtalsbækur, ferðabækur og ævisögur hvers konar. Nánast „alæta“ ef þannig má að orði komast, þegar um bækur er að ræða. Einna síst falla Ijóðabækumar mér í geð. Frúin er í þeirri deild. Lestrinum hjá mér er nú þannig varið, að ég tek svona „tamir.“ Er þá þrælsprækur við lesturinn en svo koma líka tímar sem maður er hundlatur. Það er nú reyndar svo með mig að ef ég „dett“ niður á ákveðið efni, þá held ég áfram með það meðan ég finn eitthvað í Bókasafninu um það efni sem verið er að fjalla um hverju sinni. Get þar nefnt sem dæmi að fyrir nokkmm ámm „datt“ ég niður á bók um norsku andspymu- hreyfinguna og baráttu þeirra á seinni stríðsámnum, og það var ekki að sökum að spyrja, ég hélt áfram á meðan ég fann eitthvað um það efni. Ég man nú ekki hvenær þetta var, en líklega hefur þetta verið eftir að núverandi Herjólfur komst í gagnið og ég kannast eitthvað við staðina þar Sævaldur Elíasson er bókaunnandi vikunnar sem atburðimir áttu sér stað. Eins er það, að ef ég byrja á ákveðnum höfundi, þá er það segin saga að framhald verður á lestri á bókum hans. Skiptir þá ekki nokkm máli hvort um er ræða skáldsögur eða annað efhi. Eins og lesendur hafa eflaust séð, þá sæki ég mér lestrarefni að langmestu leyti í Bókasafnið okkar. Ég hef lítið gert af því að safna bókum, finnst langbest að geta leitað á safhið að einhverju til að lesa. Á ég þar ekki eingöngu við bækurnar, heldur líka blöðin og tímaritin, bæði innlend og erlend sem nóg er af og hægt er að fá eldri eintök lánuð heim ef menn vilja. Þá má ekki gleyma því að starfsfólkið á safninu er ávallt boðið og búið að aðstoða ef á þarf að halda. Ef ég á að nefna þær bækur sem ég hef nýlega verið með heima, þá var ég að lesa bók sem heitir Háspenna lífshætta og fjallar hún um ótrúlega ævi Sigurfinns rjúpnaskyttu á Sauðárkróki, sem missti aðra höndina í slysi, en hélt áfram að lifa lífinu nánast eins og ekkert hefði í skorist og gerir nánast allt sem hann langar til. Algjör harðjaxl. Ég er nýbúinn með annað bindi af ævisögu Einars Ben. eftir Guðjón Friðriksson. Afskaplega vel skrifuð bók og mikil vinna sem Guðjón hefur lagt á sig til þess að nálgast efnið. Þetta er greinilega það sem hann kann. Samt fannst mér fyrra bindið einhvem veginn skemmtilegra aflestrar, ef ég ber þau saman svona fyrir sjálfan mig. Þá er þar nýleg ferðabók um London eftir Dag Gunnarsson. Fínasta ferðahandbók fyrir þá sem em á leið þangað og þar sem hún er skrifuð af Islendingi þá passar hún betur fyrir landann, en þær sem em skrifaðar fyrir alþjóðlegan markað í huga. Loks er að geta tveggja bóka eftir Gísla Hjartarsonar á Isafirði sem báðar nefnast Hundrað og ein ný vestfirsk þjóðsaga. Em þetta bindi No. 1 og 2. Á ég von á því að framhald verði á útgáfunni samkvæmt því. Ég hafði vemlega gaman að lestri þeirra beggja, og kom það oft fyrir að ég skellti upp úr og vel það meðan á lestrinum stóð. Algjörlega hrekklausar sögur og hin besta lesning. Skemmtilegast finnst mér að Gísli nafngreinir flest, ef ekki allt fólkið sem fyrir kemur í sögunum sem margar hverjar em alveg óborganlegar. Gísli segir skemmti- lega frá og ég leyfi mér að koma þeirri hugmynd á framfæri að svona útgáfu þyrfti að koma í gang í okkar bæ. Nóg er til af sögunum. Ef t.d. væri tekið gostímabilið og safnað saman því sem þar kom upp á, áður en það verður orðið of seint. Ég ætla að halda mig á slóðinni og skora á skipsfélaga minn síðasta aldarfjórðunginn, Gísla Sigurð Eiríksson, um að mæta með næsta pistil. Nýfæddir * vestmannaeyingar Þann 5. apríl eignuðust Helena Levísdóttir og Hermann Ingi Hermannsson (junior) son. Hann vó 17 merkur og var 52,5 cm að lengd. Hann hefur fengið heitið Hermann Ingi og er hér á mynd með pabba sínunr og stóru systur, Karen. Hann fæddist á fæðingardeild Landsspítalans í Reykjavík. Fjölskyldan býr í Reykjavík Þann 14. apríl eignuðust Heiða Björk Höskuldsdóttir og Ranny Ramsdal son. Hann vó 14 14 mörk og var 51 cm að lengd. Hann hefur verið skírður Sigurvin Marinó Ramsdal. Hann er hér á mynd með systrum sínum fv. Heiðu Ingibjörgu og Anitu Mary. Ljósmóðir var Guðný Bjamadóttir. Málari í sumar Á laugardag útskrifuðust 15 stúdentar frá Framhaldsskólanum. Þar meó fór fjöldi útskríf- aðra stúdenta frá skólanum á fimmta hundraðið. Davíð Egilsson er400. stúdentinn sem útskrífast frá FÍV og hann er Eyjamaður vikunnar. Fullt nafn? Davíð Egilsson. Fæðingardagur og ár? 24. janúar 1981. Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar. Fjölskylduhagir? Bý með kærustunni minni, Eyrúnu, I foreldrahúsum. Menntun og starf? Stúdent frá FÍV og málarí i sumarteyfinu. Laun? Erfiðisins! Bifreið? Daihatsuinn henna mömmu. Helsti galli? Nenni ekki að taka til i herbrginu minu. Helsti kostur? Samviskusamur. Uppáhaldsmatur? Taccos og Subway langlokur. Versti matur? Ég er mikill mathákur og fátt * sem ég ekki kann að ^ meta. Það væri þá helst eitthvað súrt, hrútspungar ' eða svoleiðis. Uppáhaldsdrykkur? Kók, Coca Cola® Uppáhaldstónlist? Allt sem Metallica spilar er snilld og sömuleiðis R. E. M. Svo erfulltaf góðum islenskum hljómsveitum (þá er ekki veríð að tala um Skimó og co). Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Horfa á Sindra Viðars og Atla Jóhanns komast I ham, frændurna Elias og Magga borða og hlusta á Unnar Hólm röfla i dómaranum. Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Taka til i herberginu minu. Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti? Fara í gott fri til fjaríægra landa og verja afgangnum til háskóianáms. Uppáhaldsstjórnmálamaður? Þeir eru allir snillingar, það væri synd að velja einhvern einn úrhópnum. Uppáhaldsíþróttamaður? Islandsmeistarar ÍBV í hand- boltanum. Einnig eru Dabbi Hall og Valli, málararmeð meiru, algjörir snillingar i öllu sem þeir taka sér fyrír hendur (þeir lofuðu að vera góðir við mig i sumar ef ég segði þetta). Ertu meðlimur i einhverjum félagsskap? ÍBV iþróttafélagi. Uppáhaldssjónvarpsefni? Þar sem ég er mikill sjónvarps- glápari er að mörgu að taka. Það sem stendur upp úr er Friends, Southpark, X-Files, Fóstbræður og Nýjasta tækni og vísindi. Uppáhaldsbók? Ekki erþað bankabókin um þessar mundir. Ætli það sé ekki bara Ferð Eiriks til Jötunheima og Lord of the Rings. Hvað meturþú mesti fariannarra? Heiðaríeika, ósérhlifniog almenna kurteisi. Hvað fer mest I taugarnar á þér I fari annarra? Sérhlifni, sjálfselska, hroki og frekja. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Svæðið í kríngum Litlahöfða er einstaklega fallegt I góðu veðri. Hefur þetta verið strangt og erfitt nám? Því er ekki hægt að neita. Ef maður ætlar sér að ná góðum árangri þarf maður að leggja mikið á sig og það er ekkert öðruvisi I FlV frekar en annars staðar. Er FÍV góður skóli? Hann hefur sina kosti og sína galla. Á heildina litið erþetta góður skóli en oft vantar metnað hjá nemendunum sjálfum til þess að gera vel. Stefnirþú á frekara nám? Já, ég ætla að taka mér fri frá námi næsta vetur en held siðan ótrauður áfram i Háskólann. Hvað verðurþú að gera í sumar? Ég mun starfa sem málari i hinu virta málarafyrirtæki Viðars „nýkvænta“ Einars- sonar. Eitthvað að lokum? Ég vil þakka kennurum og samnemendum mínum i FÍV fyrír gott samstarf og kynni siðustu árin og óska þeim til hamingju meö áfangann. Svo vil ég sérstaklega óska nýstúdentum fyrir samstarfið á önninni sem varað liða. Á dofinni 4* 25. maí Guðmundur Oddur Magnússon heldur fyridesiur í Rannsóknasetrinu um myndarsköpun 25. maí Bingó i Þórsheimilinu kl. 20.30 27. maí Sigurdís Amarsdóttir opnar sýningu ó verkum sínum ó Myndlistarvori íslands banka í Gallerí Áhaldahúsinu kl. 17.00 27. maí Handavinnusýning og kaffisala ó Hraunbúðum 27. maí íþróttadagur ÍSÍ 27. - 4. júní Ljósmyndasýning Islenska myndasafnsins í Ásgarði 29. maí Skólaslit Bamaskólans 30. maí Benni tattoo kemur í bæinn og tattooar Eyjamenn að Heimagötu 28. 2. júní Iþrótta og leikjanómskeið Heklu og ÍBV 3. - 4. júní Sjómannadagshelgin 10.-11. júní Sjóstangaveiðimót SjóVe haldið með glæsibrag ó miðunum kringum Eyjar 17. júní Þjóðhótíðardagur Islendinga og Vestmannaeyinga (hm).

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.