Fréttir - Eyjafréttir - 25.05.2000, Síða 6
6
Frettir
Fimmtudagur 25. maí 2000
Kóraveislur í Eyjum:
A vængjum söngsins inn í sumarið
Skólakórarnir
Einn skemmtilegasti og ánægju-
legasti viðburðurinn í tónlistarlífi
Eyjamanna eru tónleikar skóla-
kóranna, en þann hóp fylla Kór
Hamarsskóla, Kór Barnaskólans og
Sönghópur Rauðagerðis.
Síðastliðinn fimmtudag héldu skóla-
kóramir vortónleika sína í Safnaðar-
heimilinu. Það er skemmst frá því að
segja að krakkamir stóðu sig
frábærlega og alveg ljóst að bestu og
virtustu manna sögn, að í kómnum
em margir efnilegir söngvarar, ekki
síður en leikarar, því fátt er bömum
eðlilegra en að tjá sig í hinu
ómeðvitaða látbragði þegar þau
standa fyrir framan áheyrendur í
stómm sal. Það er og líka tilfellið að
fáir kórtónleikar í Eyjum em eins vel
sóttir og tónleikar skólakóranna, enda
skín þar einlægnin úr hveiju andliti og
það kunna áheyrendur vel að meta
Það er mikið og athyglisvert braut-
ryðjendastarf, sem stjómendur
skólakóranna em að vinna í skólunum
með þessum hætti og eiga Bára
Grímsdóttir, Michelle R.D. Gaskell
og Eyvindur I. Steinarsson mikla
viðurkenningu og þakkir skilið fyrir
framlag sitt á þessum vettvangi.
Efnisskráin var mjög fjölbreytt að
vanda og sungin lög eftir erlenda og
innlenda höfunda. Og að sjálfsögðu
var sungið eitt Eyjalag sem að þessu
sinni var Sigling eftir Oddgeir
Kristjánsson og Áma úr Eyjum. Og
samkvæmt efnisskrá var lokalagið,
Lóan er komin, sem kóramir þrír
sungu allir saman. Enda vel við hæfi
á vortónleikum að fljúga inn í sumarið
við lóusöng, með von um að söngur
bamanna fylgi okkur inn í sumarið.
Það má margt af þeim læra, en til þess
að það sé hægt verða þeir sem eldri
em líka að kunna að hlusta.
Galdrasöngur af Ströndum
Kór Strandamanna er blandaður
kór rammgöldróttra afkomenda
Strandamanna, en Átthagafélag
Strandamanna mun hafa stofnaö
kórinn árið 1958 og hefur hann
sungið nær samfellt síðan.
Það er skemmst frá því að segja að
kórinn söng sig með miklum galdri
inn í hjörtu Eyjamanna, sem fylltu sal
Tónlistaskólans. Efnisskrá tónleik-
anna var fjölbreytt og söng kórinn lög
eftir innlend og erlend tónskáld,
hverju öðru betra, enda skein
sönggleðin úr hverju andliti. I hléi
léku feðgininVédís Guðmundsdóttir á
flautu og Guðmundur H. Guðjónsson
á píanó Chant D'oiseau eftir Wilhelm
Popp og var flutningur þeirra hinn
frambærilegasti og gott innlegg í
tónleikana. Eftir hlé hóf svo Stranda-
mannakórinn aftur upp raust sína og
söng úrval erlendra laga í léttari
kantinum, allt frá Summertime
Gershwins til Bohemian Rhapsody
eftir Freddie Mercury. Allt flutt af
miklum metnaði og aðstandendum
sínum til mikils sóma. Eyjamenn hafa
alltaf verið miklir söngmenn og gott
tíl þess að vita að kórar annars staðar á
landinu leggi metoað sinn í að syngja
fyrir Eyjamenn, sem kunnu vel að
meta téð sönginnlegg þessa helgi.
Meira af slíkum heimsóknum.
Flottur bankakór
Á föstudaginn söng íslandsbankakórinn í anddyri íslandsbanka í Vest-
mannaeyjum. Var þetta góð byrjun á mikilli kórahelgi, að ekki sé minna
sagt, því kór Strandamanna hélt og góða sönghátíð í tónleikasal
Tónlistarskóla Vestmannaeyja á laugardeginum fyrir fullu húsi þakklátra
áheyrenda.
íslandsbankakórinn er skipaður starfsfólki útibúa bankans í Reykjavík og var í
sinni fyrstu reisu tíl Eyja. Það var vel tíl fundið að láta kórinn syngja í afgreiðslu
bankans, enda ekki annað að sjá og heyra en að viðskiptavinir bankans kynnu
og vel að meta í asa föstudagssíðdegisins. Kórinn stóð sig með miklum sóma
og söng af innhfún fjölbreytt lög af ýmsu tagi. En ekki nóg með það heldur mun
kórinn og hafa sungið á Vori í Eyjum og á Hraunbúðum við góðar undirtektir.