Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 25.05.2000, Síða 18

Fréttir - Eyjafréttir - 25.05.2000, Síða 18
18 Fréttir Fimmtudagur 25. maí 2000 Skólaslit Framhaldsskólans: Stúdentar komnir yfir 400 SALURINN í Félagsheimilinu var þéttsetinn. Fremst á myndinni er Lóa Skarphéðinsdóttir ásamt útskriftarnemendum á sjúkraliðabraut. F.v. Lóa, Ásta Gústafsdóttir, Sigríður Gísladóttir, Elsa Gunnarsdóttir og Jóhanna Svanborg Jónsdóttir. Ávarp Baldvins Kristjánssonar aðstoðarskólameistara: Baldvin Kristjánsson, aðstoðar- skólameistari, ávarpaði útskrifar- nema að þessu sinni en þeir voru ýmist að ljúka námi til starfs- réttinda eða að fá í hendur eins- konar áfangaskírteini á lengri leið til slíkra réttinda. „Hvort heldur er, þá sjáum við nú á bak flestum þessara nemenda, þó ég útiloki ekki að einhverjir þeirra eigi eftir að setjast á skólabekk hjá okkur aftur. Slíkt hefur þá áður gerst og minnist ég a.m.k. eins nemenda, sem hefur útskrifast frá okkur þrisvar og fjöldinn allur hefur gert svo tvisvar," sagði Baldvin. „En hvað flest ykkar varðar, sem nú voruð að útskrifast, þá er þetta ákveðin kveðjustund og á kveðjustundum þá falla gjama vam- aðarorð hverskonar. Ég kann fullt af slíkum: Passaðu þig á bílunum! Mundu eftir að hlusta vel og líta til beggja átta áður en þú ferð yfir götu! Gættu þess að ...og fleira í þessum dúr. En hér á þetta e.t.v. ekki við. Ég veit að skólameistari, sem bað mig skila kveðju sinni og hamingju- óskum til ykkar allra, mundi hér brýna fyrir ykkur að sýna öðmm virðingu. I öllum hans kveðjuorðum til útskrift- amema hefur virðing við samborgara og þá samferðafólk okkar í lífinu gengið sem rauður þráður. Og undir það get ég vissulega tekið. Ef eitthvað ætti að vera rauður þráður í mínum kveðjuorðum þá trúi ég að hollusta og tryggð við þá sem þú umgengst og það sem þú ert að gera á hverjum tíma kæmu þar mjög við sögu. Með því á ég við að menn leitist við að rækja skyldur sínar í leik og í starfi, eða námi, vegna þess að þannig held ég við náum best sátt við sjálf okkur og aðra. Sá sem ekki gerir hvað hann getur verður aldrei sáttur við sjálfan sig né verða aðrir sáttir við hann. Ég tala ekki um ef það lendir á samferðamönnunum að hreinsa upp eftir hann. -Vafalítið má hrekja þessa fullyrðingu með gildum rökum og mér koma strax í hug sálfræðileg rök sem t.d. gætu verið á þá leið að freudískir vamarhættir sálarlífsins gætu sem best jarðað alla sektarkennd eða samviskubit vegna slælegrar framgöngu á einhverju sviði. En ég þarf bara ekkert að hafa áhyggjur af slíku. Aldrei þessu vant þá er mér stætt á því að tala frá hjartanu og af tilfinningu og þarf ekkert ífekar en ég vil að styðja mál mitt tölulegum niðurstöðum kannana eða tilrauna. Ég er í svipaðri aðstöðu og næstum því alnafni sonar míns, sem játaðist glaður undir það að kenna eldvamir hjá okkur á kvöldnámskeiðum, þar sem þá gæfist honum það einstaka tækifæri að tala yfir hausamótum 30 kvenna í einu án þess þær fengju opnað munninn. Ég ítreka þess vegna, án nokkurra frekari röksemda, að ef þið viljið lifa í sæmilegri sátt við sjálf ykkur og aðra, gerið þá ávallt ykkar besta og ætlist ekki til að aðrir geri hlutina fyrir ykkur. Venju samkvæmt þá beinist at- hyglin hér að hópi útskriftamema öðmm fremur, enda er þessi hópur og á að vera miðpunktur dagsins. Ekki bara hjá okkur í skólanum heldur og hjá ykkur sem nær þeim standið. Ef einhverjum, sem ekki er útskriftar- nemi en er hér staddur, sámar afskiptaleysið, þá er bara fyrir hann að keyra á námið og verða útskriftamemi sem allt snýst um. Svona útskriftar- dagur á að vera, og verður held ég alltaf, svo merkilegur að við minn- umst hans um aldur og ævi. Ég vona einlæglega að hann verði ykkur út- skriftamemum og aðstandendum slíkur dagur. Ég vil svo að endingu þakka öllum þeim sem lögðu sitt að til að gera þessa athöfn og daginn ánægjulegan. Gefendum viðurkenninga fyrir þeirra framlag. Bæjaryfirvöldum og stú- dentsefnum íyrir blómin. Ykkur öllum fyrir komuna og að vera hér með okkur í dag. Að svo mæltu bið ég ykkur vel lifa og segi vorönn 2000 við Fram- haldsskólann í Vestmannaeyjum slitið,“ sagði Baldvin að lokum. Framhaldsskólanum var slitið sl. laugardag og útskrifaðist þá 21 nemendi, 15 stúdentar, tveir af vélst jórnarbraut og fjórir af sjúkraliðabraut. FÍV hefur nú útskrifað yfir 400 stúdenta. I lelga Kristín Kolbeins kennari og áfangastjóri rakti skólastartið á vorönn sem hófst á þrettándanum. Á önninni vom 230 nemendur skráðir í skólann. Það er heldur færra en á haustönn en þá voru 270 nemendur við nám í skólanum. „Það eru reyndar alltaf heldur færri nemendur á vorönn heldur en á haustönn og kom því fækkunin ekki á óvart, þó svo við vilduin gjarnan að nemendur væru töluvert fleiri,“ sagði Helga Kristín. „Skólastarf var með hefð- hundnuin hætti til 8. mars, að við lögðuin af hefðbundið skólastarf í þrjá daga til að hafa svokallaða opna daga. En á hverju ári er hefðbundnu skólastarfi hleypt upp og unnið að hvers kyns verk- efnum. Opnu dagarnir þóttu heppnast einstaklega vel þetta árið. Mæting var góð, frumkvæðið mikið og gleðin allsráðandi. Nemendur starfræktu útvarps- stöð, gerðu kvikmynd, gáfu út blað og margt fleira mætti nefna. Opnu dagarnir náðu svo hápunkti 10 niars. með árshátíð nemenda og frumsýningu á söngleiknum Itocky Horror,“ sagði Helga Kristín. Hún minntist þess að sunnu- daginn 12. mars syntu fimm nemendur skólans Guðlaugssund til að minnast þess afreks sem Guðlaugur Friðþórsson vann er hann synti til lands eftir að Hellisey VE sökk að kvöldi 11. mars 1984. Nemendurnir syntu sömu vegalengd og Guðlaugur, þrjár sjómílur, eða 225 ferðir í sundlauginni. „Þann 31. mars heimsótti okkur Björn Bjarnason, menntamála- ráðherra ásamt fylgdarmönnum. Hélt liann fund með nemendum, sem hlýddu kurteislega á framsögu ráðherra og spurðu síðan mjög skemmtilegra og áleitinna spurninga. Síðan var fundur með kennurum þar sem |ieir reyndu að fylgja eftir góðri frammistöðu nemenda,“ sagði Helga Kristín. I skólanum starfa um 30 kennarar ýmist í fullu starfl eða hlutastnrli. Um áramót bættist Guðmundur Elíasson aftur í hóp kennara, en hann annaðist kennslu í rafmagnsfræði. Lóa Skarphéðinsdóttir tók við kennslu í hjúkrunarfræði. Guðtinna Steinarsdóttir sneri aftur til kennslu að loknu fæðingarorlofi. „Skólinn hóf störf samkvæmt nýrri aðalnámskrá síðastliðið haust og samkvæmt henni ber öllum framhaldsskóium að gefa út sérstaka skólanámskrá. Unnu kennarar in.jög að undirbúningi námskrárinnar seinni part vetrar auk þess hafa tveir kennarar Áslaug Tryggvadóttir og Gunnar Þorri Þorleifsson verið í námi sam- hliða starll í skólanámskrárgerð. Nú í júní á að halda áfram við gerð námskrárinnar og vonandi verður tilbúin skólanámskrá þegar við hefjum aftur störf í haust,“ sagði Helga Kristín að lokum. DAVIÐ Egilsson er stúdent núnier 400 frá Framhalds- skólanum í Vestmanna- eyjum. Hollusta og tryggð

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.