Fréttir - Eyjafréttir - 25.05.2000, Qupperneq 22
22
Fréttir
Fimmtudagur 25. maí 2000
Velheppnaður skóladagur í Hamarsskóla
Knattspyrna: Meistaraflokkur karla
Skóladagur Hamarsskóla var sl.
laugardag. Aðsókn að honum var
öllu minni en verið hefur undanfarin
ár enda var mikið um að vera í
bænum þessa helgi. Auk
hefðbundinna sýninga var boðið upp
á skemmtidagskrá með
leiksýningum, tískusýningu, dansi og
fleiri atriðum. Þá er skóladagurinn
einnig fjáröflunardagur 6. bekkinga
fyrir skólaferðalag næsta árs. Þar
var hlutavelta en einnig var boðið
upp á minigolf og pílukast svo að
eitthvað sé nefnt. Kaffihlaðborð var
fyrir gesti allan daginn og var mjög
vinsælt.
Myndirnar voru teknar á
skóladeginum.
Fjösur stis úr tvcimur leikjum
Refsað fyrir mistök
Karlalið ÍBV spilaði sinn fyrsta leik
í Landssímadeildinni hér í Eyjum á
lostudaginn. Leikurinn átti upp-
haflega að fara fram á fimmtu-
deginum en var frestað vegna
veðurs. Leikurinn einkenndist af
því að ÍBV sótti látlaust en Fylkir lá
aftarlega og beitti hættulegum
skyndisóknum.
Nokkur vorbragur var á leik lið-
anna, en Hásteinsvöllur kemur frekar
illa undan vetri og átti það sinn þátt í
að gæði leiksins urðu ekki mikil. En
úrslitin urðu Eyjamönnum frekar
óhagstæð, jafntefli 2-2 gegn nýlið-
unum og ljóst að ÍBV verður að
skerpa leik sinn nokkuð ef liðið ætlar
sér í toppbaráttuna f sumar.
Fyrri hálfleikur var nokkuð bragð-
daufur til að byrja með. Liðin
þreifuðu fyrir sér og léku varfæmis-
lega. Fljótlega tók þó ÍBV öll völd á
vellinum og leikurinn varð þeirra.
Þrátt fyrir það gekk liðinu illa að skapa
sér afgerandi færi, meira var um
hálffæri og langskot sem gengu illa í
þetta skiptið. Besta færi IBV í fyrri
hálfleik fékk vamarmaðurinn Kjartan
Antonsson en skot hans fór hátt yfir.
Rétt áður hafði Allan Mörköre átt
ágætis skot sem góður markmaður
Fylkis varði í hom.
Þrátt fyrir nokkurn sóknarþunga þá
vom það gestimir sem skomðu fyrsta
og eina mark fyrri hálfleiks og var þar
að verki Sverrir nokkur Sverrisson,
fyrrverandi leikmaður ÍBV, eftir að
boltinn hafði fengið að leika lausum
hala í teig IBV nokkum tíma. Fylkis-
menn vom yfír 0-1 í hálfleik og met
IBV, í flestum leikjum ósigraðir á
heimavelli, í hættu.
Það var strax ljóst í seinni hálfleik að
leikmenn ÍBV ætluðu að berjast eins
og ljón það sem eftir lifði leiks.
Fremstir fóm þar í flokki Guðni Rúnar
Helgason og Bjami Geir Viðarsson
sem áttu báðir skínandi leik. Það var
svo eftir að ÍBV hafði pressað Fylki út
um allan völl að stíflan brast og eftir
hræðileg vamarmistök gestanna
skoraði Allan Mörköre fyrsta mark
ÍBV á tímabilinu og jafnaði leikinn I -
1. Aðeins þremur mínútum síðar
skoraði Steingrímur annað mark IBV
eftir glæsilega sendingu Guðna
Rúnars og IBV komið yfir 2-1. Eyja-
menn héldu áfram pressunni og stuttu
síðar skoraði Bjami Geir þriðja mark
ÍBV sem var dæmt ólöglegt vegna
rangstöðu og sýndist sitt hverjum.
Eftir það jafnaðist leikurinn nokkuð en
IBV hafði þó alltaf undirtökin enda
unnu miðjumenn IBV einvígi miðju-
mannanna í leiknum. Slæm mistök
urðu svo til þess að Fylkismenn bmn-
uðu í skyndisókn og skyndilega voru
þeir orðnir einum til tveimur fleiri en
vamarmenn IBV og niðurstaðan gat
nánast aðeins orðið ein, Fylkismenn
jöfnuðu leikinn fimm mínútum fyrir
leikslok og 2-2 jafntefli niðurstaðan.
Reyndar gátu leikmenn IBV
þakkað Sveni Sverrissyni fyrir stigið
því hann fékk kjörið tækifæri á að
stela sigrinum, en skallaði framhjá úr
sannkölluðu dauðafæri.
ÍBV spilaði ágætlega á köflum,
miðjan var sterk hjá liðinu og stendur
frammistaða Bjama Geirs nokkuð upp
úr. Guðni Rúnar átti einnig stórgóðan
leik og nokkuð ljóst að mikill sjónar-
sviptir verður að honum. Liðið spilaði
ágætlega á köflum, sérstaklega fyrstu
20 mínútumar í seinni hálfleik en liðið
verður að halda úti góðu köflunum
lengur lil að verða meðal þeirra bestu.
Mörk ÍBV: Allan Mörköre 59. mín.,
Steingrímur Jóhannesson 62. mín.
Sigur gegn nýliðunum
IBV spilaði sinn annan leik á stuttum
tíma síðastliðið mánudagskvöld og
var leikið gegn Stjömunni hér í
Eyjum. Allar aðstæður til knattspymu
vom afar erfiðar, austan strekkingur,
gekk á með skúmm og hrollkalt ásamt
því að Hásteinsvöllur á töluvert í land
með að verða leikfær.
En engu að síður tókst IBV að spila
boltanum ágætlega megnið af leiknum
og tryggja sér svo þrjú dýrmæt stig í
lok leiksins.
Enn hékk ÍBV í sama farinu og
gegn Fylki, liðið var hugmyndasnautt
þegar kom að vítateig andstæðinganna
og fá færi litu dagsins ljós. Aðeins átti
IBV fimm markskot að marki Stjöm-
unnar á 45 mínútum og segir það
meira en mörg orð. Þrátt fyrir það þá
var sóknarþungi liðsins nokkur, en
allar aðgerðir stoppuðu á fimm manna
vamarlínu gestanna. Steingrímur
komst í besta færi fyrri hálfleiks eftir
að Ingi og Allan höfðu splundrað vöm
gestanna þá var Steingrímur kominn
einn inn fyrir en náði ekki að leggja
boltann fyrir sig og Stjömumenn
björguðu í hom.
Seinni hálfleikur virtist ætla að vera
á sömu nótum og sá fyrri. Þrátt fyrir
að Stjörnumenn yrðu einum færri
þegar tíu mínútur vom liðnar af hálf-
leiknum þá virtust gestimir enn ráða
vel við sóknaraðgerðir Eyjamanna.
En þolinmæði er dyggð, stendur
einhvers staðar, og það átti svo
sannarlega við á mánudaginn. Smám
saman jókst sóknarþungi IBV aftur og
síðustu fimmtán mínútumar buldi
hvert skotið á eftir öðm á marki
gestanna. Þegar 10 mínútur vom eftir
braust Hjalti Jóhannesson upp vinstri
kantinn og átti glæsilega fyrirgjöf,
beint á kollinn á varamanninum
Jóhanni Möller sem lét veija ífá sér en
fylgdi vel á eftir og boltinn lá í netinu.
Afram hélt sókn IBV og nú komu
færin loksins. Allan fékk góða
sendingu inn í teig þar sem hann fékk
góðan tíma til að leggja boltann fyrir
sig og skjóta að marki, en markvörður
Stjömunnar varði með tilþrifúm í
hom. Það var einmitt eftir slíka
íyrirgjöf sem Ingi Sigurðsson náði að
skalla fyrir markið á 88. mínútu, en
boltinn fór í hönd vamarmanns og víti
dæmt. Allan skoraði svo örugglega úr
vítinu og 2-0 sigur ÍBV í höfti.
Yfirburði ÍBV í leiknum vom
algjörir. Dugir að glugga í tölfræði
leiksins þar sem ÍBV fær m.a. 22
homspymur meðan gestimir fá aðeins
tvær. En betur má ef duga skal, flestar
vom þessar homspymur lélegar og
engin hætta skapaðist upp við mark
Stjömunnar úr þeim. IBV gat fyrst
núna stillt upp þeim hópi sem mun
standa í baráttunni í sumar, þeir
félagar Goran Aleksic og Momir
Mileta komu til Eyja á mánudaginn og
fengu báðir að spreyta sig. Goran átti
frekar erfitt uppdráttar en Momir
komst vel frá sínu og Ijóst að hér er á
ferð sterkur og leikreyndur leikmaður.
Aðrir leikmenn IBV stóðu sig
ágætlega, Hjalti Jóhannesson átti
hættulegar rispur upp vinstri kantinn,
Páll Guðmundsson var traustur á
miðjunni sem og miðverðimir Hlynur
Stefánsson og Kjartan Antonsson.
Mörk ÍBV: Sjálfsmark og Allan.