Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.12.2003, Blaðsíða 30

Fréttir - Eyjafréttir - 18.12.2003, Blaðsíða 30
30 Fréttir/ Fimmtudagur 18. desember 2003 | Þrekmeistarinn: Vel heppnað en þátttaka hefði mátt vera meiri Aðeins sekúnda skildi á milli liðanna Á laugardaginn var haldið Þrek- meistaramót í Hressó. Er þetta í annað sinn í vetur sem slíkt mót er haldið. Þrekmeistaramót sem þetta fer þannig fram að annaðhvort er keppt í liðakeppni eða einstaklingskeppni. Fimm skipa hvert lið og skipta þeir með sér tíu ælingastöðvum en í einstaklingskeppninni klárar einn aðili allar tíu stöðvamar. Klára þarf hverja stöð en æftngamar eru mismunandi. Brautin er svo farin á tíma og það lið eða einstaklingur, sem fer hana á skemmstum tíma, vinnur keppnina. Keppnin um helgina var mjög skemmtileg, sérstaklega í kvenna- keppninni þar sem fjögur lið tóku þátt en í karla- og einstaklingskeppninni var aðeins eitt lið og einn einstak- lingur. Þó að samkeppnina hafi vant- að, þá vantaði ekki keppnisskapið hjá þátttakendum því markmiðið er auðvitað alltaf að klára brautina og keppa við sjálfan sig en bæði karlasveitin og Guðrún Bjamý Ragnarsdóttir, sem tók þátt í einstak- lingskeppninni, klámðu brautina af krafti. Karlasveitina skipuðu þeir Þorvarður Þorvaldsson, Guðmundur Sveinsson, Valdimar Pétursson, Elías Friðriksson og Smári Harðarson. Kvennakeppnin var hins vegar opin og skemmtileg en þrjú lið skráðu sig til leiks auk þess sem „Gullömm- umar“ eins og þær vom kallaðar, fóm brautina en þurftu ekki að gera jafn margar endurtekningar. Rauðu djöflamir, sem tóku þátt í íslands- mótinu á Akureyri um daginn vom sigurstranglegasta liðið. Keppnin var hins vegar æsi- spennandi og þegar upp var staðið munaði ekki nema einni sekúndu á sigurliðinu og Rauðu djöflunum. Sigursveitina skipuðu þær Júlíana Bjamadóttir, Hafdís Kristjánsdóttir, Dagmar Skúladóttir, Björg Guðjóns- dóttir og Anna Dóra Jóhannsdóttir. SIGURLIÐIÐ, Björg, Anna Dóra, Júlía, Dagmar og Hafdís. HRIKALEG átök, Emma í róðrinum. GULLÖMMURNAR, Unnur Jóna, Kristjana, Emma, Lilla og Þurý fagna góðum árangri. | Frjálsar: Jólamót yngri flokkanna Krakkarnir náðu frábærum árangri á landsvísu Jólamót UMF. Óðins í frjálsum íþróttum í flokki átta ára og yngri, níu til tíu ára og 11-12 ára stelpna og og stráka var haldið á sunnudaginn. Mæting var góð þó nokkur forföll hafi verið. Frábær árangur náðist á mótinu og má ætla, miðað við árangur mótsins að við eigum margar upprennandi stjömur hér í Eyjum. Indiana Kristinsdóttir fékk flest stigin í flokki stelpna átta ára og yngri þegar hún stökk 1,53m í langstökki án atrennu. Hún er bara sjö ára gömul og má geta þess að hún náði með þessu lengsta stökki ársins á öllu Islandi í sínum flokki. Aðeins þremur stigum á eftir var árangur Þóreyjar í 60 m hlaupi sem hún hljóp á 11,0 sek. í flokki 8 ára og yngri stráka var það Sigdór Kristinsson sem fékk flest stig í langstökki án atrennu er hann stökk l,58m sem er þriðji besti árangur á landinu í ár. Sindri Jóhannsson kom aðeins tíu stigum á eftir honum í 60 m hlaupi sem hann hljóp á 11,1 sek. sem er þriðji besti árangur í hans flokki á landinu í ár. í flokki níu til tíu ára bar árangur Kristínar Sólveigar hæst en hún vann allar sínar greinar og jafnaði Vest- mannaeyjametið í 60 m hlaupi í sínum flokki er hún hljóp á 9,3 sek. sem er annar besti tími ársins á landinu. Síðan stökk hún 1,97 m í langstökki án atrennu og kastaði kúlu 4,97 m. Bylgja Sif Valsdóttir er ung og efnileg hlaupadrottning og gerði sér lítið fyrir og hljóp á sínu fyrsta móti 60m á 10,3 sek. sem er frábær árangur. 1 flokki níu til ára stráka var það árangur Símonar Henryssonar sem gaf flest stigin en hann er aðeins níu ára gamall og vann 60 m hlaupið á 10,0 sek. sem er annar besti tími ársins á landinu. Einnig sigraði hann í langstökki án atrennu er hann stökk 1,84 m sem er fjórða besta stökkið á landinu í ár.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.