Frúin - 01.03.1963, Side 3
FRÍIN
2. ÁRG. MARZ 1963 3. TBL.
TIL LESENDA
„Frúin" vill þakka þeim fjölmörgu konum, sem sent liafa
henni hlýjar kveðjur og hvatningarorð. Vonir þær, sem útg. þessa
blaðs gerðu sér um þær viðtökur, sem gott kvennablað myndi fá
hjá íslenzkum konum, hafa fyllilega rætzt. —- Iiins vegar hafa þær
lagt þá skyldu á lierðar útg. að gera þetta blað sem bezt úr garði.
í upphafi var tekið fram, að þetta væri tilraun til útgáfu
á góðu kvennablaði og var þá átt við að blaðið yrði sambærilegt
við vönduð erlend kvennablöð, sem gefin eru út í stórum upp-
lögum. Efnislega ætti það að vera hægt, ef konur koma sjálfar lil
móts við blaðið í útvegun íslenzks efnis. Hins vegar er ekki grund-
völlur fyrir jafn stór blöð hér á landi og annars staðar, vegna fólks-
fæðar. Ætlun útgefenda „Frúarinnar“ er þó sú að stækka blaðið
og lilprenta það i framtíðinni. Til þess þarf kaupendahópurinn að
verða stór, þar sem ætlunin er að stilla áwallt verði þess i hóf en
treysta á vinsældir og lcaupendaf jölda. Eins og er mun blaðið vera
einna ódýrast allra íslenzkra blaða miðað við stærð, efni og mynda-
kost. Verðið, kr. 15.00 á mánuði burðargjaldsfritt, lxrekkur lwergi
nærri fyrir útgáfukostnaði, nema að upplagið sé mjög stórt.
Fyrir því viljum vér vinsamlegast beina þeim tilmælum til
velunnara blaðsins og þeirra, sem kynnu að óska þess, að hér yrði
gefið út vandað kvennablað, sem jafnframt því að vera fróðlegt
og skemmtilegt, hefði bókmenntalegt gildi, að taka vinsamlega á-
skrifendasöfnun þeirri, sem nú fer fram. „Frúin" hefur ekkert við
að styðjast nema konurnar sjálfar og framtíð hennar er algjörlega
í þeirra höndum.
Huldur.
Djúpt í hafi
í höll af rafi
Huldur býr,
bjart er trafið,
blæjan skír;
oft í logni
á ljósu sogni
langspilið ‘hún knýr,
sindrar silfurvír.
Grímur Thomsen
Efnisyfirlit:
Efnisyfirlit: BIs
Til lesenda 3
Björn Þorsteinsson sagnfr.:
Ólöf Loftsdóttir hin ríka
og samtíð hennar 4
Viðtal við Guðrúnu frá Lundi 8
Konan með andlitin Jjrjú 10
Kristín Sigfúsdóttir:
Ein hugleiðing um ástina 14
Roði og fagurt hár 18
Læknisþáttur:
Menstruation-menopause 19
Svipmyndir úr tízkuheiminum 20
Dansinn um ástina 22
Hvað segir Ibsen um áfengið? 25
Hamingja og kóróna 26
Singapore, smásaga 28
Tízka 30
Handavinna 32
I tómstundum 34
Evgenia, síðasta keisaradrottn-
ing Frakklands 34
Matur er mannsins megin,
Sparnaðarréttir 36
Var Mona Lisa karl eða kona? 40
Matthías Jocliumsson:
Móðir mín 42
Helga Kolbeinsdóttir:
Undarlegir atburðir á Kjal-
arnesi. 43
Bréf og umsagnir 44
Hvíld og afslöppun 45
? og svar 45
Líkamsrækt 46
íslenzki iðnaðurinn 47
Verðlaunagetraun 10.000 kr.
teppi 47
Frá „Frúnni“ til frúarinnar 48
Vegir hins vitra 48
Krossgáta 49
Lausn á krossgátum 50
----------------------------------I
FRÚIN
3