Frúin - 01.03.1963, Blaðsíða 6

Frúin - 01.03.1963, Blaðsíða 6
á því bera eða hafa það í hámæli. Það hafði áður varðað jafnvel við lög. Ástarjátning gat kostað dauðarefs- ingu. „Ef maður yrkir mansöng um konu, og varðar það skóggang", stendur í Grágás, — lögbók Gunnars á Hlíðarenda og Guðrúnar Ósvífurs- dóttur. Það er ekki ofsögum sagt af ofdirfsku íslenzkra skálda í þá daga. Þegar skáldskapur var ein helzta út- flutningsvara íslendinga, þá var sá atvinnuvegur ofsóttur með furðulegri refsilöggjöf. Hálf vísa gat kostað menn lífið að lögum. — Það voru skáldastyrkir og útflutningsuppbæt- ur Ijóðasmiða á dögum Egils og Snorra og annarra heimsfrægra skálda íslenzkra. — En nú var öldin önnur. 3. Jómfrúin gleður menn allar stundir. Þegar Ólöf ríka er í heiminn bor- in, þrútna menn og springa af ástar- harmi einum saman, því að oftast voru einhverjir meinbugir á ráði elskendanna. Tristran snerist til veggjar, svo hart hann stakk: heyra mátti mílur þrjár hans hjarta sprakk. íslendingar höfðu loks kynnzt hinni einu, sönnu, eilífu ást, sem nær út yfir gröf og dauða; — og elskend- urnir fá stundum að hvíla hlið við hlið í gröfinni, þótt þeim hafi verið meinuð svo náin sambúð í lifenda lífi. Hún gekk sig að steininum, þar Knútur undir lá. Þegar hún hafði minnzt þar við, þá lá hún þar dauð hjá. Þar var meiri harmur en þar var gaman, bæði fóru þau ungu hjón í eina steinþró saman. — Hvað syrgir þú, liljan, svo sáran? En allt var gert til þess að stía þeim Tristran og ísodd sundur lifandi og dauðum. Til orða tók hún svarta ísodd, hún sór við trú: „Þið skuluð ekki njótast dauð, megi eg nú“. Ausin voru þau moldinni fljótt og ótt. Sínu megin kirkjunnar lá þá hvort. Runnu upp af leiðum þeirra lundar tveir, upp af miðri kirkjunni mættust þeir. — Þeim var ekki skapað nema að skilja. Höfðingi á dögum Lofts ríka. 6 FRÚIN

x

Frúin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.