Frúin - 01.03.1963, Page 17

Frúin - 01.03.1963, Page 17
af eigin reynslu. Ef ég hefði ekki verið gift og átt börn, hefði ég getað varið mínum tíma á annan hátt, t. d. til rannsóknarstarfa. — Hvernig finnst yður að eiga samstarf með íslendingum? — Það er oft ágætt. Mér finnst ís- lendingar hafa þann skemmtilega eiginleika, að vera „individualistar“, þótt það geti í sumum tilfellum ver- ið erfitt fyrir yfirmenn. Þjónslund er yfirleitt óþekkt fyrirbrigði hjá þjóð- inni, en það þarf samt ekki að vera neinn löstur á skapferli fólks. — Þér hafið ferðazt mikið um land- ið? — Já, ég hef komið í allar sýslur landsins og ferðast talsvert um ó- byggðir. Ég gekk fljótlega í Ferða- félag íslands, sem er ágætur félags- skapur og satt að segja hef ég lært mikla ferðamenningu af því félagi, til dæmis, að búa sig skynsamlega í ferðalög og útbúa viðeigandi nesti og margt fleira. Ég hef gengið yfir Ódáðahraun, einnig yfir Skeiðarár- jökul og ríðandi hef ég farið frá Hornafirði að Kirkjubæjarklaustri. Ég hef farið yfir Breiðarmerkurjökul og yfirleitt um flest öræfi hér, já ég hef farið gangandi og ríðandi um Hornstrandir og inn ísafjarðardjúp. Eitt það skemmtilegasta, sem ég geri er að ferðast um ísland. Landið er bæði fagurt og sérkennilegt. Ann- ars er ég mikið hætt að ferðast. Með- an ég var yngri dró það mikið úr ferðalögum mínum hérlendis, hve oft ég þurfti að fara í siglingar til annarra landa, varðandi starfið. Nú fer ég langtum sjaldnar í siglingar, læt aðra veðurfræðinga fara yfirleitt. Að vísu stendur til að ég fari nú eft- ir tvær. vikur á allsherjarráðstefnu veðurfræðinga í Genf. — En nú þegar þér eruð að láta af störfum, hafið þér hugsað yður að dveljast áfram á íslandi? — Ég hef sannarlega ekki hugsað mér að flytjast af landi brott. Ég er orðin íslendingur fyrir löngu. Ég ætla að heimsækja dóttur mína, sem búsett er í Ameríku og dveljast ef til vill einhvern tíma hjá henni. — En ekki látið þér af embætti sökum aldurs? — Nei, það geri ég ekki. En ég vil ekki hanga í embætti, eftir að ég er farin að þreytast. Þá er betra að aðr- ir yngri taki við, því þeirra er fram- tíðin. Nýi veðurstofustjórinn fær um margt að hugsa, hver sem hann verð- ur, og ég vona að honum takist vel að leysa úr þeim vandamálum, sem hans bíða. Að lokum sagði frú Teresía: Ég vona aðeins að ég kalki ekki, þótt ég hætti svona fljótt starfi, því myndi ég kvíða fyrir. En, bætti hún við, brosandi: ég vona þá að ég verði ekki vör við það og verði sæl í minni trú um andlegt heilbrigði. Blaðið vill bæta því við, að þess eru engin sýnileg merki, að frú Ter- esía haldi ekki óskertum kröftum sínum til líkama og sálar á næstu árum, en hún er spaugsöm og létt í tali um sjálfa sig. Hún hefur helgað íslandi starfskrafta sína og reynst því nýtur þjóðfélagsþegn í öllum skilningi. Það þökkum við henni fyr- ir af alhug og óskum henni góðs í framtíðinni. — M. Th. FRÚIN 17

x

Frúin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.