Frúin - 01.03.1963, Side 23

Frúin - 01.03.1963, Side 23
A LLIR kannast við hinn óviðjafn- anlega José Greco, sena álitinn er fremstur í sinni röð af öllum dönsurum heims. José Greco kom til Reykjavíkur með dansflokk sinn í septembermánuði síðastliðnum, og má með sanni segja, að hann kom, sá og sigraði. Mestallt árið ferðast José Greco með dansflokk sinn land úr landi og heldur danssýningar. Alls staðar er hann hin stóra stjarna dansins, sem heillar og hrífur þegar hann stígur dansinn um ástina. Síðast þegar hann lagði Stokkhólm fyrir fætur sér, náði blaðakonan Britt Hamdi viðtali við hann, og seg- ist henni svo frá: Hann lætur bíða eftir sér í stund- arfjórðung, áður en hann birtist eins og konungur í hótelanddyrinu, og minnti það áberandi á tignarlega reisn hans, þegar hann tók á móti hylli áhorfenda kvöldið áður. Fyrst komu fordansararnir, síðan hópdans- ararnir, þá kom dálítið hlé, mettað spennu, og skyndilega birtist í einu stökki inn á leiksviðið sjálfur José Greco svartur á brún og brá, ósvikinn Spánverji, kattliðugur, ó- viðjafnanlegur og án alls efa ein- valdur dansins! Manni liggur við að hrópa „01é“ og klappa ósjálfrátt þegar hann gengur inn í anddyrið. Sviðssetning- in er fullkomin, — enda þótt klæð- skeri hr. Grecos gæti margt lært af kolleganum, sem saumar dansbún- ingana. Klæðnaður hans minnir helzt á kvikmyndaleikarann og dans- arann George Raft, sem var upp á sitt bezta í kringum 1930 (þykkir axlapúðar — víðar buxnaskálmar). Hamingjuóskum mínum yfir að hafa sigrað hjörtu Stokkhólmsbúa kvöld- inu áður, tekur hann með konung- legri ró, virðist þó gjarnan vilja heyra rætt meira um sigurinn, og meðan ég tala, baðar hann við og við höndunum og brosir af hógværð, sem sannast að segja er dálítið bros- leg, hún er svo ósannfærandi. Við borðum saman hádegisverð, og milli þess, sem hann þambar bjór (en af honum verður hann að drekka 7 flösk- ur á dag til þess að halda við vigt- inni), segir hann: „Ég játa, að mér hættir alltaf við, að leika stjörnuhlutverk og haga mér eins og dekruð stjarna, en ég spyrni samt alltaf á móti því. Hér fyrr var ég alveg niðurbrotinn mað- ur, ef einhver úr flokknum fékk meira lófaklapp en ég ...“ „Meinið þér, að nú gleðjist þér yfir því, af því að nú lítið þér á dans- sýninguna sem samvinnu flokksins?" sagði ég hriíin yfir því að sjá þarna dæmi þess, að maðurinn getur sigr- azt á sjálfum sér. „Gleðst! Eruð þér alveg gengin af göflunum! Ég kvelst eins og hel- sært dýr, en ég er þó búinn að gera mér ljóst, af hvaða ástæðum það er. José, segi ég við sjálfan mig, fólk kemur til þess að sjá þig dansa, af því að þú ert heimsfrægt nafn, en það ætlast til og krefst þess, að þú sért góður. Sú staðreynd, að nafnið er frægt, gefur enga spennu. En ef áhorfendur sjálfir uppgötva nýjan hæfileikamann í stórum flokki, ó- þekkt nafn, og lyfta honum, ef svo mætti segja, og bera hann áleiðis til frægðar með hrifningu sinni og hylli, finnst þeim þeir hafa verið virkir þátttakendur í sýningunni á annan og óvenjulegri hátt. Það er ákaflega mikil fullnæging í þessu fyrir áhorf- endurna. Já, ég skil þá, og í raun- inni er ég auðvitað þakklátur, því að það var einmitt á einu slíku kvöldi, rétt eftir stríðslokin, að þeir uppgötvuðu mig. Ég hafði komið frá Ameríku, en þar hafði ég í fleiri ár dansað með La Argentinita. La Arg- entinita var dáin, en systir hennar, Pilar Lopez var orðin stjarna. Enn sem komið var, var ég aðeins aðstoð- ardansari. En þetta kvöld í Vevilli, eftir að fyrsta dansi okkar var lokið, lifði ég undrið.....óralöng þögn, og svo brauzt út stormur, nei, hvirf- ilvindur af lófaklappi, og svo nafnið mitt, Greco ..., Greco ..., Greco ... hrópað hvað eftir annað af áhorfend- um, sem stóðu uppi á bekkjunum og ætluðu aldrei að fást til þess að hætta. Þetta kvöld var hamingju- samasta kvöld, sem ég hafði lifað á ævinni. Annars er „hamingjusamt“ hræðilega ófullnægjandi orð yfir slka upplifun!“ Hann heldur áfram að segja mér frá ævi sinni. Orðin koma út úr hon- um snöggt og hratt, hann talar lit- skrúðugt mál, en fyllist jafnan óþol- inmæði, ef honum tekst ekki að finna strax hið rétta orð til þess að lýsa hugsun sinni með. Það var eins og að hann talaði í takt við innri taktstokk, ef svo mætti segja, í hár- nákvæmum takt við smellina í kastanjettunum, en þess á milli renna upp úr honum orðin á hreimlausri FRÚIN 23

x

Frúin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.