Frúin - 01.03.1963, Side 32
Tchclfa
Efni: Kretonne-efni, 40X11° cm> í
fallegu rósóttu mynztri. Jafnstór
stykki af einlitu kretonne eða lér-
efti í fóður. Vatt. Pappastykki.
Saumur: Sníðið 2 stykki úr kre-
tonne-efninu, 25 cm á lengd og 36
cm á breidd, og 1 stykki 17 cm á
lengd og 28 cm á breidd. Sníðið
jafnmörg stykki (3) bæði úr fóð-
urefninu og vattinu, en hafið vatt-
stykkin 2 cm minni á hvorn veg
en hin stykkin.
Klippið öll kretonne- og fóður-
stykkin í bogalögun, og er bezt að
klippa fyrst lagið á tehettunni -út
í pappír. Vattstykkin einnig klippt
ávöl, og enn sem fyrr látin vera 2
cm minni en hin stykkin. Minni kre-
tonne-stykkin eru klippt nákvæm-
lega eftir vattstykkjunum og öll
fjögur hornin á þeim höfð ávöl en
ekki oddmjó. Úr pappa er klippt
stykki jafnstórt vattstykkjunum.
Leggið vattstykkin 3 hvert um sig
ofan á hvert annað, og saumið kant-
ana saman með stórum sporum.
Botninn á tehettunni: Botnstykkin
(ávöl) úr einlita og mynztraða kre-
tonninu saumuð saman 1 cm frá kanti
rétta á móti réttu, en ein hliðin þó
ekki saumuð saman strax. Snúið yf-
ir á réttuna, setjið pappastykkið inn
í og þvínæst vattstykkið (á móti
fóðurstykkinu), og saumið síðan
vandlega fyrir opið. Fyrir pífurnar á
tehettunni eru sniðnar 2 ræmur, 7
cm á breidd og eins langar og efnið
er breitt. Ræmurnar lagðar saman
og síðan brotnar í fellingar, þar til
lengdin hæfir utan um hettuna.
Hliðarstykki og samsvarandi fóður-
stykki lagt með réttuna saman, píf-
unni stungið inn á milli stykkjanna
ca 1 cm, og saumuð föst við eftir
kantinum. Hliðarstykkin ekki saum-
uð saman að neðan, snúið við og vatt-
stykkjunum síðan stungið inn á
milli. Kanturinn að neðan brotinn
inn um 1 cm og síðan saumaður sam-
an í hendinni með smáum þéttum
sp|orum. Báðar hliðar tehettunnar
saumaðar við botninn að innan. I
böndin eru klipptar 2 ræmur, 5 cm
á breidd óg 45 cm langar, saumað-
ar saman á röngunni, síðan snúið
við. Annar endinn á böndunum
saumaður í horn, en hinir endarnir
festir innan við pífuna á miðri te-
hettunni.
Kjjnll á unga
slúlku
Saumið hann sem vorkjól úr ull-
arefni, en sem sumarkjól úr poplin
eða bómullarefni, og án kraga.
Kjóllinn á meðfylgjandi mynd er
saumaður úr þunnu tweedefni, blúss-
an er hvít- og rauðköflótt, pilsið og
kraginn einlitt rautt.
Efni: 2 m köflótt efni 140 cm
breitt, og 1% m einlitt efni. Renni-
lás (að aftan, í sömu sídd og blúss-
an). Krókapör og smellur.
Klippið tvö stykki eftir sniðinu
bæði af bakstykki blússunnar og pils-
inu. en eitt af öllum hinum. Hafið
2 V2 cm sauma á stóru stykkjunum en
helmingi grynnri sauma á þeim
minni. Þegar framstykkið er sniðið,
er efnið brotið í tvennt og klippt
þannig. Miðlína framstykkisins lögð
lóðrétt við brotið á efninu. Kraginn
er skásniðinn úr efninu, og leggingar
innan á hálsmál og handveg eftir
punktalínunum á teikningunni.
Saumur: Pilsið: Saumið CD við
CD og reiknið með rúmum centi-
metra í saum. Saumið faldinn að neð-
an. Ath.: Takið vel eftir, að stykkið,
32
FRÚIN