Frúin - 01.03.1963, Page 33
sem merkt er lokufelling á teikning-
unni, er merkt með C í báðum efri
hornunum og D í neðri hornunum,
og CD á stykkinu fest við samsvar-
andi D á pilsinu. Brjótið línuna CF
á lokufellingunni eftir línunni CF á
pilsinu og pressið fellinguna.
Kraginn: Brjótið kragann í tvennt
þannig, að A komi á móti B, og
saumið saman endana.
Blússan: Saumið brjóstlekin, axla-
sauma og hliðarsauma. Leggið inn
á armveginn. Leggið við hálsmálið
og festið kragann á milli leggingar-
ræmunnar (og blússunnar). Krag-
inn er festur við með krókum. Saum-
ið blússuna við pilsið og saumið
rennilásinn í að aftan.
Beltið: Þegar búið er að sauma
beltið, er það 2y2 cm á breidd. Brjót-
ið beltisstykkið í tvennt eftir lengd-
inni, saumið það saman en hafið
annan endann opinn. Snúið beltinu
við og pressið það þannig, að saum-
urinn liggi eftir miðju á röngunni.
Ef betur þykir fara að hafa beltið
þykkara, má leggja inn í það þykkt
rifsband. Saumið fyrir opna endann.
Reiknið með iy2—2 cm fyrir smell-
um á beltisendunum. Slaufan er bú-
in þannig til, að bæði slaufustykkin
eru brotin saman og saumuð eins og
beltið, en pressuð þannig, að saum-
urinn liggi á efri kanti en ekki í
miðju. Leggið styttri lengjuna ofan
á þá lengri, og saumið efnisræmu
utan um þær í miðju. Festið slauf-
una við beltið.
Ath. vel: Hver reitur í teikning-
unni er 2% cm á hern veg. CF tákn-
ar miðju á framstykki. CB er miðja
á bakstykki.
Merkja verður við línurnar á
teikn. þar sem standa bókst. A-B,
C-D, CF og CB.
Nýjasta iivíí Irá
Uandarikíuiium
Undirpils-buxurnar undir samkvæm-
iskjólinn. Þær sem myndin sýnir,
eru úr þunnu rósóttu efni kantaðar
meS tvöfaldri röð af hvítri blúndu.
Silkibönd þrædd í götin á blúndunni
og lítil silkislaufa á hvorri skálm.
Þetta undirfat er nú fariS að fást í
verzluniun hér heima, en ef þér haf-
ið hug á að sauma þær sjálf, getið
þér sniðið þær eftir sokkabuxum,
haft skálmarnar víðari og í réttri
sídd, — rétt ofan við hné. Þetta verð-
ur áreiðanlega undirfatatízkan í sum-
ar hjá ungu stúlkunum!
Skemmtileg
strákalnifa
Stærð: 6—8 (10—12) ára.
Efni: 100 g sportgarn, og 50 g í
andstæðum lit.
Mál: Höfuðvídd 50 (53) cm. Prjón-
ar nr. 4. Prjónfesta: 24 lykkjur á
kanti = 10 cm.
Rendurnar eru prjónaðar á eftir-
farandi hátt: 4 umferðir í andstæð-
um lit, 6 umf. í grunnlit, 4 umf. í
andst. lit.
Fitjið upp 122 (130) lykkjur, og
prjónið uppbrotið á húfunni 2 1. slétt-
ar og 2 1. brugðnar. Þegar búið er
að prjóna 20 (22) cm, er prjónuð
rönd í andst. lit. Ath. vel, að ávallt
er byrjað á röndunum á réttunni.
Þegar búið er að prjóna 2 ljósar rend-
ur, eru prjónaðar 4 umferðir, síðan
byrjað að taka úr: ★ 2 sl. saman,
2 br. saman ★ Endurtekið frá ★ til
★ út umferðina, og endið hana á 2
sl. saman. Næsta umferð prjónuð til-
baka án úrtöku. Næsti prjónn er
prjónaður 2 saman sl. út alla um-
ferðina, endað á 1 sl.. Næstu 2 um-
ferðir prjónaðar á sama hátt. Síð-
asta umferð með úrtöku endar á
1 sl. Síðasta umf. á röngunni prjónuð
brugðið. Bandið slitið og dregið í
gegnum lykkjuna og gengið vel frá
henni.
Húfan saumuð saman og kantur-
inn að neðan brotinn hálfur inn á
rönguna og saumaður þar við. Stór
skúfur búinn til úr sama garni og
notað er í rendurnar.
FROlN
33