Frúin - 01.03.1963, Page 34

Frúin - 01.03.1963, Page 34
I IfllllSllllldlBIII Mynd úr mósaiksteinum. Myndin (hér er það bátar) fyrst teiknuð á teiknipappír í stórum, skýrum dráttum. Þessi mynztur- teikning er síðar teiknuð í gegn á tréplötu. Takið 10 mm spónplötu, 40X40 cm stóra, og málið hana svarta eða dökkbláa, því að ljósir steinarnir njóta sín betur á dökkum grunni. Færið síðan útlínur mynztursins greinilega yfir á plötuna og strjúk- ið yfir einn og einn flöt í einu með lími, t. d. UHU. Stráið stein- unum yfir á fletina og þrýstið þeim vel niður. Þegar límið er þornað, hristið þér lausu steinana af plötunni og bætið steinum aftur í ef með þarf. Að lokum er strokið yfir myndina með glæru lakki til þess að hlífa henni fyrir ryki. EVGEHIIA ái i ’Éaáta (eiáaradrottnina ddralliandí Yeturinn 1847—48 hittust ungur karl og kona í London í fyrsta skipti. Hann var bróðursonur Napo- leons mikla, og hét enda í höfuðið á honum, en lifði sem flóttamaður og nánast í sárri fátækt. Hún var af spænskum ættum, en meðal forfeðra hennar voru einnig tignar, skozkar aðalsættir, svo og franskt blóð — og hún hét Evgenia de Montijo, og var dóttir spænsks greifa. Hún bjó á ýmsum stöðum í Evrópu ásamt móð- ur sinni, og vakti hvarvetna athygli. Napoleon varð ástfanginn af henni og bað hennar — en hlaut hryggbrot — því að hin fagra ungfrú de Monti- jo leit svo á, að hann gæti ekki boð- ið henni nægan munað. Það kom þó í ljós, er frá leið, að meira var í hann spunnið en hún hafði gert ráð fyrir, og þegar þau hittust aftur veturinn 1851—52 við hátíð eina mikla í Par- ís, var hann orðinn — Frakkakeis- ari! Skyldi hún nú sjá eftir, að hún 34 FRÚIN

x

Frúin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.