Frúin - 01.03.1963, Qupperneq 40

Frúin - 01.03.1963, Qupperneq 40
Vat MONA LISA katl eía kcma? Mona Lisa. Það er sænskur listmálari og rithöf- undur, að nafni Torberg Ottosdottir, sem setur fram þessa athyglisverðu kenningu. Hún hefur gefið út rit, þar sem hún færir fram rök sín fyrir því, að konan með hið leyndardómsfulla bros hafi í raun og veru verið karl- maður! Fram að þessu — og við þá skoðun munu flestir listelskendur halda sig — hefur almennt verið álitið, að það hafi verið eiginkona Napolibúans Franceso del Giocondo, sem sat fyrir myndinni. Sögusögnin segir, að Leonardo da Vinci hafi í Madonnu Lisu fundið fyrirsætu, sem heillaði hann sökum hins seiðmagnaða leyndardóms, sem geislaði úr svip hennar. Hann vann að því að mála hana mikinn hlut- ann af fjórum árum, þ. e. frá 1503 —1506. og til þess að laða fram hið leyndardómsfulla bros, lét hann hljómlistarmenn leika rómantísk lög bak við tjöldin meðan hann málaði. En eftir því, sem ungfrú Ottos- dottir segir, þá er þetta ekki annað en sögusögn. Hún staðhæfir, að fyr- irsætan hafi verið óþekktur, ungur maður. Hún kollvarpar hefðbundn- um sögum um Monu Lisu með því að sýna fram á, hve sláandi líkur svipurinn sé á andliti Monu Lisu og málverkunum af Bakkusi, hinrym heilaga Jóhannesi og Ledu. Ekki er hægt að draga í efa, að drættirnir í andlitunum á þessum málverkum eru furðulíkir, og að það er næstum fullkomlega sannfær- andi, þegar myndirnar eru bornar saman, að fyrirmyndin er ein og sama persónan. Takið eftir sívalri hökulínunini, viðkvæmnislegufrn munninum, hinu langa, mjóa nefi og djúpum augunum. Þessir drættr einkenna andlitin á vínguðinum, dýrlingnum og — Monu Lisu! Ungfrú Ottosdottir minnir gagn- rýnendurna á hina sterku tilhneig- ingu da Vincis til sérvizku og stöð- ugt nýjar tilraunir hans í listinni. Hann teiknaði oft karlmannshöfuð á kvenmannslíkama og öfugt. Slíkar undarlegar teikningar hafa fundizt í mörgum af skissubókum hans. Það sé því ekkert óvenjulegt fyrirbrigði hjá da Vinci, segir hún, að teikna kvenmannslíkama, og á hann höfuð Heilagur Jóhannes. Leda. Málverkið af Monu Lisu er álitið óviðjafnanlegt listaverk. í Louvre dregur það að sér aðdáendur frá öll- um heimshornum, og guð má vita, hve margar endurprentanir prýða veggi ótal heimila út um allan heim. En var Mona Lisa í raun og veru Mona Lisa? Eða hvað finnst yður? T^ótt undarlegt megi virðast, hef- ur sprottið upp kenning, sem dregur í efa, að Madonna Lisa hafi verið fyrirmyndin að einhverju frægasta málverki veraldarinnar. Bakkus. imga mannsins, sem hann kallaði „djöfulinn“. Leonardo da Vinci tók pilt þennan að sér 10 ára gamlan, og er álitið, að hann hafi gengið honum í föðurstað. Pilturinn var fyrirsæta da Vincis í fjölda mörgum myndum hans. 40 FRÚTN

x

Frúin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.