Harmoníkan - 30.05.1991, Side 7
i
Ríkharður Jóhannsson
kvenfélagið Fjóluna og eru fleiri
fyrirhuguð í þeim dúr. Nokkrar
æfingar hafa verið í vetur og hefur
Guðbjartur Björgvinsson verið
leiðbeinandi.
Félagið hélt dansleik 13. októb-
er s.l. og komu félagar úr H.U.V. í
heimsókn. Nokkrir félagar léku á
árshátíð Harmoníkufélags
Reykjavíkur og einnig spiluðu
nokkrir félagsmenn á skemmti-
fundi Félags Harmoníkuunnenda
í Reykjavík. Ekki er fyrirhugað
ferðalag á vegum félagsins í sumar
en heimsóknir milli félaga er eitt
af því sem ætti að gera oftar til að
auka kynni og vináttu félagsfólks.
Harmoníkufélagið Nikkólína
verður 10 ára í nóvember og ætlar
halda veglega upp á afmælið og er
þar kjörið tækifæri fyrir önnur fé-
lög að koma í heimsókn.
Með bestu kveðjum
Ríkharður Jóhannsson,
formaður.
Harmoníkufélag
Vestfjarða
Harmoníkufélag Vestfjarða var
stofnað 16. nóvember 1986 og
voru stofnfélagar 19 en félagar á
þessu ári eru 52 talsins. Stjórn
Harmoníkufélags Vestfjarða
skipa:
Ásgeir S. Sigurðsson formaður
Sæmundur Guðmundsson ritari
Pétur Bjarnason gjaldkeri
Guðfinnur Þórðarson með-
stjórnandi
Jón Sigurpálsson með-
stjórnandi
Æfingar eru að jafnaði alla
sunnudaga yfir vetrarmánuðina
og var árshátíðin haldin í vetrar-
byrjun.Félagar léku við ýmis tæki-
færi s.s. þegar kveikt var á jólatré
á Austurvelli, undirleik á tónleik-
um Sunnukórsins og á jólatré-
skemmtunum á ísafirði og á Súða-
vík. Spilað var á útiskemmtun á
Seljalandsdal í skíðaviku um
páskana, í svæðisútvarp Vest-
fjarða og í þættinum „Laufskál-
inn” á rás eitt. Eins var leikið fyrir
dansi á árshátíð Kvenfélags Bol-
ungarvíkur og á allnokkrum dans-
leikjum eldri borgara á Isafirði og
í Bolungarvík. Þá stendur til að fé-
lagið leiki fyrir dansi í Turnhúsinu
í Neðstakaupstað 17. júní n.k. en
þá verður á Isafirði norrænt vina-
bæjamót.
Tónleikar fjögurra sænskra
harmoníkusnillinga verða hér 24.
júní n.k. og formannafundur
Sambands Islenskra Harmoníku-
unnenda næsta haust.
Áhugasamir félagar á Þingeyri
og nágreni, tíu talsins, koma sam-
an vikulega yfir vetrarmánuðina,
en vegna samgönguerfiðleika eig-
um við of fá tækifæri til að hitta
þá. Sama gildir um félaga á sunn-
anverðum Vestfjörðum. Þess-
vegna fyrirhugar félagið sumar-
ferð á Rauðasand og nágreni til að
hitta félaga okkar þar.
Harmoníkukennsla hefur verið
við Tónlistarskóla ísafjarðar s.l.
þrjú ár. Áhugi og velvild skólans
lýsti sér í skjótum viðbrögðum við
bréfi frá harmoníkufélaginu þar
sem hvatt var til að tekin yrði upp
kennsla á harmoníku við skólann.
Félagið studdi málið með gjöf á
tveimur harmoníkum til skólans
og ein harmoníka var gefin til
skólans í Bolungarvík, en þar
lærði m.a. Hrólfur Vagnsson og
mun þar hafa verið fyrst kennt á
harmoníku í tónlistarskóla hér á
Vestfjörðum. Kennari var þáver-
andi skólastjóri Ólafur Kristj-
ánsson.
Nú eru 12 nemendur við nám í
harmoníkuleik í Tónlistarskóla
Isafjarðar á aldrinum 8-60 ára,
kennari er Messíana Marsellíus-
dóttir.
Harmoníkufélag Vestfjarða
sendir öllum harmoníkuunnend-
um sumarkveðjur.
Ásgeir S. Sigurðsson formaður
Ásgeir S. Sigurðsson
Félag Harmoníkuunnenda
við Eyjafjörð
F.H.U.E. er stofnað 5. október
1980 og voru stofnfélagar 40 tals-
ins en fjöldi félaga nú er 109.
Stjórn F.H.U.E. starfsárið
1990-1991 er Þannig skipuð:
Sigurður Indriðason formaður
Jóhannes Jónsson vara-
formaður
Jóhannes B. Jóhannsson ritari
Filippía J. Sigurjónsdóttir
gjaldkeri
Guðmundur Sigurpálsson með-
stjórnandi
Varastjórn skipa:
Kristján H. Þórðarson
Davíð Jónsson og
Þórdís Elísdóttir Fulltrúi í
S.Í.H.U. Sigurður Indriðason og
Hannes Arason varamaður
Dansleikir á vegum félagsins
síðan á aðalfundi hafa verið fjórir
auk árshátíðar, en þá var einnig
dansleikur á eftir. Einnig hafa ver-
ið haldnir tveir dansleikir í sam-
vinnu við H.F.Þ. annar hér á Akur-
eyri en hinn austur í Bárðardal.
Einnig hafa félagar leikið á lokuð-
um dansleik fyrir félagsskap hér í
bænum.
Þess skal getið að félagar í
F.H.U.E. leika fyrir dansi á öllum
dansleikjum félagsins án endur-
gjalds og er þetta aðal tekjulind fé-
lagsins. Einu sinni hefur verið
haldin sunnudagsskemmtun á
vegum félagsins í vetur, þar sem
félagar léku á harmoníkur og á
7