Harmoníkan - 30.05.1991, Page 23
Árshátíð F.H.U.R. 1991.
Ekki verður annað sagt, en að
EH.U.R. hafi færst mikið í fang
varðandi tvær síðustu árshátíðir.
Það þótti djörf hugmynd árið
1990 að bjóða tveimur erlendum
snillingum að troða upp á hátíð-
inni. Sú hugmynd heillaði
skemmtinefndarmenn upp úr
skónum og því var áhætta tekin,
sem allir geta verið sammála um,
að var þess virði. Eftir að nýr
skemmtinefndarformaður tók
við, fór enn að bera á líkum ein-
kennum og árið áður, jafnvel
djarfari því rætt var við helstu
stórsnillinga Svíaríkis. Þó fór svo
að lokum að Sigmund Dehli var
boðið að gista ísland, fjórða sinni
ásamt meðreiðarsveini, engum
minni, en Tormod Vasaasen,
margföldum meistara tvöföldu
nikkunnar.
Skemmtinefndin sýndi þá
djörfung að tefla á tvær hættur og
lagði í heilmikinn kostnað við að
auglýsa hátíðina, en þrátt fyrir
það komu ekki eins margir nú og í
fyrra t.d. mun færri utan af landi.
Árshátíðin var engu að síður vel
heppnuð og tókst með ágætum.
Grettir Björnsson lék fyrir matar-
gesti af sinni alkunnu snilld, þá
flutti Friðjón Hallgrímsson, for-
maður skemmtinefndar annál og
skaut léttum skotum á félags-
menn. Leikir og annað glens var
hóflega um hönd haft. en há-
punktur skemmtidagskrárinnar
var einleikur erlendu gestanna.
Vonandi haf eyru (og augu)
manna lokist upp fyrir tvöföldu
nikkunni, því Tormod er í algjör-
um sérflokki á því sviði. Sigmund
þekkja allir fyrir hans snilli. Dans
var svo að lokum stiginn fram á
nótt við undirleik þeirra tveggj a og
til liðs við sig fengu þeir Pétur
Urbancic og Karl Lilliendahl á
bassa og gítar, Sigurður Björgvins-
son lék einnig fyrir dansi ásamt
fleirum.
Fólk á áreiðanlega góðar minn-
ingar frá árshátíðinni og skemmti-
nefndin er reynslunni ríkari.
Leikið fyrír dansi, Pétur Urbancic, Tormod Vasaasen, Sigmund Dehli og Kari Lilliendahl
í Rúgbrauðsgerðinni Borgartúni 6. Tormod leikur á einfalda og tvöfalda, eins og sjá má
á myndinni einnig fimmfalda. Tormod Vasaasen býryfir ótrúlegri tœkni og hefur feikna
vald á hljóðfœri sínu, hann er og góður lagahöfundur.
Öþarfa misskilningur.
Ótrúlega oft verðum við varir
við þann misskilning hjá fólki að
blaðið Harmoníkan sé runnið
undan rifjum og gefið út af Félagi
harmoníkuunnenda í Reykjavík.
Upplýst skal að F.H.U.R., á enga
aðild þar að, er ekki í meiri tengsl-
um við útgáfuna en önnur félög,
við höfum gott samstarf við F.H.
U.R. eins og öll önnur félög í land-
inu. Slíkt hið sama hefur verið
álitið með harmoníkumótið í
Galtalækjarskógi. Undirritaðir
eru að öllu leiti upphafs, ábyrgðar-
menn og útgefendur tímaritsins
Harmoníkan, ásamt mótinu í
Galtalækjarskógi. Einu ári eftir
útkomu blaðsins hófumst við
handa með áðurnefnt skipulagt
harmoníkumót þar sem fólk úr
öllum félögum landsins var hvatt
til að vera þátttakendur.
Við lítum á þetta sem framlag
okkar til almennings að auka
þekkinguna á harmoníkunni og
njóta ánægju og gleði í návist
hennar.
Hilmar Hjartarson
Þorsteinn Þorsteinsson
Heyrst hefur að Karl Jónatans-
son sé að undirbúa útgáfu á
hljómplötu og hafi þegar lokið við
hljóðritun á nokkrum lögum. Þeir
sem vitað er um að hafa verið með
Karli í hljóðveri eru Edvin Kaaber,
Ingi Karlsson og Pétur Urbancic.
Norski harmoníkuleikarinn og
söngvarinn Freddy Kristoffersen
varð fyrir því óláni nýlega að brot-
ist var inn á heimili hans á meðan
hann og konan hans fóru í öku-
ferð. Stolið var frá honum m.a.
tveimur harmoníkum að verð-
mæti 80.000,- norskum krónum og
stóru safni geisladiska.
23