Harmoníkan - 01.05.2001, Blaðsíða 9
Harmonikusafn á ísafirði
Hið glœsilega harmonikusafn Asgeirs S.Sigurðssonar á Isafirði. Frá því að þessi mynd var
tekin liefur safnið vaxið og dafiiað. Safnið verður opnað, formlega á nœsta ári, þegar
landsmótið verður á Isafirði.
Einhvem tímann lofaði ég því að festa
á blað fáein orð unt þann vísi að hamon-
ikusafni sem ég hef verið að koma upp á
undanförnum árum.
Það mun hafa verið kringum 1990 að
kona hér á Isafirði gaf mér harmoniku
sem eignimaður hennar, látinn fyrir all-
mörgum árum hafði átt. Harmonikan er
af Soprani gerð með bognu nótnaborði
og sennilega framleidd á árunum milli
1930 og '40. Var harmonikan mjög illa
farin, belgurinn ónýtur, vantaði nótur og
svo framvegis. Með framlagi góðra
manna er þessi harmonika nú spilahæf.
Einu eða tveimur árum síðar var mér
gefin Scandalli harmonika sem fannst hér
á ruslahaugunum. Búið var að jafna mold
yfir svo að aðeins sást í hluta af nótna-
borðinu. Athugull starfsmaður Ahalda-
hússins bjargaði henni á síðustu stundu.
Þegar hér var komið fór ég að fá áhuga
fyrir að safna harmonikum og fór að bera
mig eftir þeim. Hafði ég þá samband við
þá harmonikuleikara, sem mér datt í hug
að gætu átt slíka gripi. Það sem mér
finnst skipta ntiklu máli er að fá sem
bestar upplýsingar urn sögu hljóðfæris-
ins, hverjir hafa átt það og á hvaða tím-
um, hver hefur verið spilað á það, á ég þá
við byggðarlög eða sveitir. Gott dæmi
um slíkt er Soprani Paola harmonikuna
sem ég fékk norðan úr Strandasýslu síð-
asta vetur. Með henni fylgdu ótrúlega
miklar upplýsingar og ber hún þess
merki að hafa haldið uppi dansleikjum á
sínu svæði. Eg held að ég hafi aldrei séð
jafn ntikið spilaða harmoniku.
Dæmi um harmoniku sem hefur fengið
sérlega góða meðferð er einföld harmon-
ika sem ég fékk nú í sumar. Hún er keypt
til landsins árið 1920 og hefur aðeins ver-
ið í eigu tveggja manna áður en ég eign-
aðist hana, ótrúlega vel með farin.
Ég hef mikið velt fyrir mér hvort þess-
ar 30-40 harmonikur sem ég hef eignast
geti talist safn, hvort þær eru nógu marg-
ar eða merkilegar til þess. Til baka verður
ekki snúið og safn skal þetta verða,
hvenær svo sem það verður formlega
opnað.
Að endingu vil ég segja að það hefur í
ótrúlega mörgum tilvikum verið á síðustu
stundu sem ég hef frétt af harmonikum
sem hefur átt að fara að henda úr ein-
hverjum kjöllurum. Einnig veit ég um
a.m.k. þrjú tilvik þar sem merkilegum
safngripunt hefur verið hent. Þá hef ég
verið of seinn, og einu sinni munaði ein-
um degi.
Ég læt fylgja ntynd af safninu eins og
það var í sumar, en eitthvað hefur bætst
við síðan.
Asgeir Sigurðsson á Isafirði.
Skoskur harmonikuleikari á vegum S.I.H. U
Gary Blair Til íslands
Gary Blair er skoskur
harmonikuleikari, þekkt-
ur víða unt heim. Hann
hefur víða farið til tón-
leikahalds, ýmist einn
eða með hljómsveit
sinni. Meðal landa sem
hann hefur leikið í eru Bandaríkin,
Kanada, Belgía, Sviss, Dubai og Kúveit.
Hann leikur ekki aðeins skoska tónlist,
heldur hefur tónlist hans mjög vítt svið.
Hann er fenginn til að spila við öll
möguleg tækifæri heima fyrir, við brúð-
kaup, á ceilid dansleikjum, tónleikum og
á harmonikuhátíðum víðs vegar um Bret-
landseyjar, þar sem hann þykir
ómissandi. Hann er búinn að spila á
harmoniku í nærri 30 ár, lærði í „The
Jimmy Blair Accordion school’* sem for-
eldrar hans ráku. Auk spilamennskunnar
kennir hann á harmoniku í heimaborg
sinni, Renfrew í Skotlandi. Hingað kem-
ur Gary í byrjun júlí n.k. á vegum
S.Í.H.U.
Hann mun ferðast um landið með að-
stoð hinna ýrnsu harmonikufélaga og
halda tónleika.
Óli Tlt.
9