Harmoníkan - 01.05.2001, Blaðsíða 14

Harmoníkan - 01.05.2001, Blaðsíða 14
sér vonir um málefnaleg skoðanaskipti á síðum blaðsins varð þeim tæplega að ósk sinni og er ekki við þá að sakast. Þar eig- um við, hin almennni harmonikuunnandi mesta sök. Grátlega hefur verið lítið um þess háttar í blaðinu en einhver hefði talið að þar gæti verið uppspretta hug- mynda. Nú gæti verið of seint í rassinn gripið, því þetta mun vera síðast tölublað Harmonikunnar og er það skarð fyrir skildi. Það eru gömul sannindi, að eng- inn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Það liggur að mínu mati alveg í augum uppi að harmonikulífið í landinu verður verulega fátækara, hverfi þessi tengilið- ur og tel ég það lífsnauðsyn að nýtt fólk taki við þessu blysi harmonikuunnenda og hlaupi með það næstu árin. Á síðast aðalfundi að Hrafnagili í Eyjafirði voru m.a. á dagskrá hugmyndir um keppni í harmonikuleik og komu þar fram sjónarmið fundarmanna varðand þetta mál. Ekki voru allir sammála, en þó hef ég á tilfinningunni að flestir hafi ver- ið þess fýsandi að keppnisfyrirkomulagið hentaði, ef stefna ætti að að framförum. Allir þeir fjölmörgu erlendu harmoniku- leikarar sem ég hefi rætt þessi mál við, hafa lýst því sem afdalamennsku að vilja ekki halda slíka keppni. Að mínu áliti er það öllum félögum landsins og ekki síst landsambandinu til skammar að í tuttugu ár hafi nánast ekkert gerst í þessum mál- um. Að lokum krefst ég þess að stjórn landsambandins svari á næsta aðalfundi spurningunni, hvort hún ætli að standa að slfkri keppni næsta vetur. Sé ekkert slíkt í farvatninu lít ég svo á að aðalverkefni þeirrar stjórnar sem nú situr, sé eitthvað annað en að auka virðingu fyrir harmon- ikutónlist. Fríðjón Hallgrímsson Styttu og myndasafn á Styttusafn Guðmanns erfjölbreitt og stœkkar með hverju árinu. úrklippubœkur og myndabœkurnar aftast. Guðmann við styttusafn sitt. Hver veit nema þessi stóra liljómsveit spili saman á nýársnótt. Safnarar af ýmsum toga finnast á landi hér. Þó leyfi ég mér að halda að ekki séu þeir ýkja margir meðal harmonikuáhuga- manna. Fyrst kemur ntanni í hug hið mikla hljómplötu- safn Sigurjóns Sam- úelssonar á Hrafna- björgum f Ögur- hreppi, harmoniku- safn Ásgeirs S. Sigurðssonar á Isa- firði, tónlistarsafn Jóns Kr. Ólafssonar, Melodíurminning- anna á Bíldudal og hljómplötu og hljóðsnældusafn Indriða Guðjóns- sonar í Kópavogi. Ámóta safnarar gætu leynst víðar og ör- ugglega eru þessir einstaklingar verndar- ar fjársjóða er tæpast verða metnir til fjár. fikureyri Á síðastliðnu sumri uppgötvaði blaðið einn safnara til viðbótar og er sá af æði sérstöku sviði sem tengist einmitt hlutum tengdum harmonikunni. Þessi safnari heitir Guðmann Jóhannsson og er búsett- ur á Akureyri. Hann hefur safnað alls- konar styttum eða fígúrum með harmon- iku og er safnið orðið all fjölbreytt. Þá safnar Guðmann öllum harmonikutengd- um myndum úr blöðum og tímaritum og límir inn í klippibækur ásamt tilheyrandi textum. Myndasafnið hefur að geyma ýmsar merkilegar heimildir sem ekki er auðhlaupið í nema af því að Guðmann hefur raðað því upp á skipulegan hátt. Víst er að margt af því sem þar er að finna væri annars glatað. Elstu myndim- arerufrá 1984. Guðmann byrjaði að safna styttum af harmonikufígúrum eftir 1983. Ein stytta varð til þess að hann hóf að safna í al- vöru. Sú var af trúð og eftir þá fjárfest- ingu fór hann að líta fleiri hýru auga og kaupa eina og eina til viðbótar. Nú hefur safn hans að geyma nokkra tugi stytta. Mynda- og úrklippusafnið lumar á ýms- um gullkornum og er safnið að 95 hund- raðshlutum íslenskt. Guðmann Jóhannsson fæddist á Ólafs- firði 1938. Sem ungur maður fluttist til Keflavíkur þar sem hann bjó í 17 ár. Það- an flutti hann til Reykjavík þar sem hann dvaldi næstu þrjú árin, en fluttist síðan til Akureyrar 1980. Þá var nýbúið að stofna F.H.U.E. og gekk hann strax til liðs við félagið. Hefur hann leikið í hljómsveit félagsins og síðar meir í danshljómsveit- um þess. Hann keypti harmoniku úr dán- arbúi Reynis Leóssonar hins sterka, gott hljóðfæri. Tónlistarferill Guðmanns nær aftur til þess er hann byrjaði að glamra á orgel 14

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.