Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 10.02.2011, Qupperneq 9

Fréttir - Eyjafréttir - 10.02.2011, Qupperneq 9
Fréttir / Fimmtudagur 10. febrúar2011 9 Glitfaxaslysið snerti alla Islend- inga en hvergi varð höggið þyngra en í Vestmannaeyjum -Tólf Vestmannaeyingar fórust í þessu slysi sem enn er greypt í huga þeirra sem áttu ættingja í slysinu eða tengdust því á annan hátt þó 60 ár séu síðan FLUGVÉLAR á flugvellinum í Vestmannaeyjum: Margt hefur breyst frá því Glitfaxi fórst í janúar 1951, bæði eru flugvélarnar betri og öryggi í flugi hefur aukist. Augnabliksminning - Þegar Glitfaxi hrapaði -Gísli Valtýsson missti föðurafa sinn í slysinu - Var þá tæplega fimm ára Þann 31. janúar 1951 fórst flugvélin Glitfaxi í aðflugi að Reykjavíkurflugvelli. Hún var að koma frá Vestmanna- eyjum og um borð voru 20 manns, sautján farþegar og þriggja manna áhöfn. Það var suðvestan átt og gekk á með éljum sem var m.a. ástæða þess að bíða þurfti í Vestmannaeyjum eftir að létti til. Glitfaxi varð frá að hverfa eftir að hafa gert tilraun til að lenda í Reykjavík. í annarri tilraun var vélin komin niður í 700 fet og í stefnu á Reykjavíkurflugvöll. Ekki leist flugstjóranum á aðstæður því hans síðustu orð eru: „Við erum komnir niður í 700 fet. Ég veit ekki hvernig þetta verður." Glitfaxaslysið snerti alla íslendinga en hvergi varð höggið þyngra en í Vest- mannaeyjum. Um borð voru tólf Eyjamenn, allt fólk á besta aldri sem skildi eftir sig mörg börn, sum ennþá í móðurkviði. Þeir sem þarna fórust skildu líka eftir fjölskyl- dur og vini og í litlum bæ þekktu allir alla. Það hefur því verið dökkt skýið sem lagðist yfir samfélagið og margir í sárum sem auðvitað hafa dofnað með árunum en eru til staðar. Mennirnir sem fórust létu eftir sig 48 börn, þar af 26 innan fermingaraldurs. Þar að auki voru tvö börn hinna látnu í móðurkviði og fædd- ust skömmu eftir slysið. Alls misstu því fimmtíu börn föður sinn. Barnflesta heimil- ið var í Þingholti í Vest- mannaeyjum. Þar misstu tólf börn föður sinn og fyrirvinnu, Pál Jónsson skipstjóra Fréttir fengu nokkra sem tengjast slysinu til að rifja upp það sem gerðist og það sem á eftir fór. Guðbjörg Sigurgeirsdóttir Ómar Garðarsson. Ég á mjög sterka augnabliksminn- ingu frá Glitfaxaslysinu. Kannski blandast minningin mín eitthvað saman við það sem um var talað í kringum mig og það sem mér var sagt eftir á. Ég var tæplega fimm ára þegar slysið varð. Ég man að ég lá uppi í rúmi, annaðhvort um kvöldið eða morguninn eftir slysið. Þá kemur mamma inn í herbergið og kastar sér í rúmið á grúfu. Og ég heyri að hún er að gráta og legg hendina yfir hana og spyr hana hvað sé að. Hún segir mér að Snæbjöm afi minn sé dáinn, hann hafi hrapað með flug- vél. Pabbi kom skömmu síðar ásamt Sigurvin bróður sínum og konu hans og þau fóru fram í eld- hús og ræddu eitthvað mjög hljóð- lega. En ég hjúfraði mig upp að mömmu og skynjaði að það hafði eitthvað hræðiíegt gerst og fór að gráta líka. Um haustið áður hafði Guðný amma mín dáið eftir slys, mann- laus vömbfll rann frá Hilmisgöt- unni og á hana þar sem hún var á gangi í Bárugötunni. Fyrir mér em þessi slys mjög samtengd, enda gerðust þau með nokkurra mánaða millibili. Og mér var sagt að erindi afa til Reykjavíkur þessa örlagaríku ferð hafi verið tengt slysinu á ömmu. A þessum tíma flugu bæði Flug- GÍSLI í fangi Snæbjörns afa félag Islands og Loftleiðir til Eyja. Þennan dag var vont veður í Eyjum. Vélin frá Loftleiðum snéri við vegna veðurs en vél Flugfé- lagsins komst til Eyja en ekki aftur síns sem kallaði hann forsetann sinn. til baka. Mér var sagt að afi hafi ætlað að fljúga með Loftleiðavél- inni en af því hún sneri við, fór hann með Glitfaxa. Eftir þetta slys hélt ég alltaf með Loftleiðum, fannst það miklu ömggara og flott- ara flugfélag, en á þessum tíma var talsverður rígur milli flugfélaganna tveggja. Ég held að ég hafi næstum verið orðinn fullorðinn, þegar þessi hugsun bráði af mér. í minningunni var sagt að Snæ- bjöm afi hafi verið orðinn gamall maður þegar hann fórst, en hann var aðeins 58 ára þegar Glitfaxi hrapaði. Helsta breytingin sem ég man að varð á heimilinu eftir slysið var að við fluttum líka á neðri hæðina í húsinu Hergilsey við Kirkjuveg, en áður bjuggum við aðeins á efri hæðinni og afi og amma á neðri hæðinni. Ég man, - eða kannski að einhver hafi sagt mér það, að Snæbjörn afi hafi ein- hvern tíma tilkynnt mér að ég ætti að eiga eldhússkápinn þeirra, sem hann hafði sjálfur smíðað, - þegar hann dæi. Þegar við fluttum á neðri hæðina, tók pabbi þennan skáp niður. Útbjó klósett þar sem eldhús afa og ömmu hafði verið en áður þurftum við alltaf að fara niður í kjallara á klósettið. Skápurinn var alltaf geymdur fyrir mig og þennan skáp á ég ennþá og hann er mín helsta minning um Snæbjöm afa minn, sem kallaði mig alltaf forsetann sinn, af því að ég átti sama afmælisdag og Sveinn Bjömsson, forseti íslands. Mikil slysaár í Eyjum - Gúmmíbjörgunarbátar Fyrir og eftir Glitfaxaslysið urðu nokkur alvarleg sjóslys þar sem bátar frá Vestmannaeyjum áttu í hlut. Mannskaðar urðu í flestum þeirra en þama vom gúmmíb- jörgunarbátar að koma til sögunnar. Sönnuðu þeir gildi sitt í þremur slysanna. Sjöundi janúar 1950 var einn af ömurlegustu dögum í sögu Vestmannaeyja. Þann dag fórst vélbáturinn Helgi VE 333 við Faxasker um miðjan dag í austan ofsaveðri. Báturinn var þá að koma frá Reykjavík með vömr. Auk sjö manna áhafnar vom þrír farþe- gar um borð. Allir fómst en tveir komust upp á Fxasker. Helgi var um tíma stærsti fiskibátur sem smíðaður var hér á landi, 1939, þar til Helgi Helgason VE kom til sögunnar um 1946. Sama dag varð stórbmni í Hraðfrystistöð Vestmannaeyja. Gríðarlegar skemmdir urðu en enginn fórst í brunanum. Eldurinn kom upp eftir að vinnu lauk um daginn og var himinninn rauður fram á nótt, pakkaumbúðir fuku alla leið inn í Hlíðarbrekkur. Eldurinn mun hafa byrjað í húsi austan við stöðina Kumbalda - breiddist hratt út og komst fljótlega í aðalbygginguna. Það hefur verið einkennileg sjón fyrir skipverjana tvo af Helga sem komust á Faxasker að sjá rauðan himin yfir Heimakletti um kvöldið og nóttina. Annar skipveijinn sást á hreyfingu fram í myrkur en báðir vom látnir þegar menn komust út í Faxasker. Skipbrotsmannaskýlið á skerinu var reist tveimur til þremur ámm síðar. Rétt ári seinna, 31. janúar 1951, fórst Glitfaxi - DC 3 flugvél Flugfélags íslands í aðflugi að Reykjavíkurvelli og 20 manns fómst. Þar af tólf úr Vestmannaeyjum. Þann 12. apríl 1952 fórst Veiga VE 291 í róðri eftir að báturinn hafði fengið á sig brot. Tveir úr áhöfn bátsins fómst, en hinir sex björguðust í gúmmíbjörgunarbát. Útgerð Veigu hafði keypt þetta nýja björgunartæki 1950 - og vom þá tveir bátar keypir á Eyjaflotann hjá Vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Þetta var í fyrsta skipti sem íslenskir sjómenn björguðust með þes- sum hætti. Þann 23. febrúar 1953 fórst Guðrún VE 163 í róðri eftir að báturinn fékk á sig brotsjó og fór á hliðina. Fimm skipveijar fómst en fjórir björguðust við illan leik í gúmmibjörgunarbát sem rak upp í Landeyjasand. Þannll.apríl 1954 sökk GlaðurVE270 á leið í róður eftir að leki kom skyndilega að bátnum. Sökk hann á nokkmm mínútum. Var báturinn kominn rétt austur fyrir Bjamarey sanna gildi sitt og ekki gafst tími til að senda út neyðarkall. Gúmmfbátinn rak út á haf og lenti hann utan leitarsvæðis. Daginn eftir rakst togarinn Hull City frá Grimsby á gúmmíbjörgunarbátinn með öllum skipverjum af Glað og kom með þá til Eyja ásamt gúmmíbátnum. Glaðsmenn gáfu togaramönnum gúmmíbátinnn, sem var breskur en enginn slíkur var um borð í toga- ranum. Kvikmyndarbútur er til þegar togarinn kom til Eyja og lagðist af Básaskersbryggjunni. Samantekt Arnar Sigurmundsson. Hægt er að lesa frásagnir af þessum atburð- um t.d. í bók Guðlaugs Gíslasonar- Eyjamar í gegnum aldimar o.fl. bókum. Athyglisvert er að notkun gúmmfbjörgunarbáta mætti mikilli andstöðu á þessum ámm. Það átti eftir að breytast þegar þeir fóm að sanna gildi sitt.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.