Fréttablaðið - 09.02.2013, Blaðsíða 90

Fréttablaðið - 09.02.2013, Blaðsíða 90
9. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 62 BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 KROSSGÁTA PONDUS Eftir Frode Øverli GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman MYNDASÖGUR Árni minn, ég er ósköp ánægður með þennan friðartón í þér. Mig langar því að segja þér hundasögu eina til að styrkja þig enn fremur í þeirri trú að best sé að ræða álitamál á friðsamlegum nótum. Á HAUSTDÖGUM byrjaði ég að skokka á morgnana. Var það nokkur raun hinn fyrsta dag því þolið var lítið en svo er þar ófrýnilegur hundagarður á leiðinni. Þar eru ófáir hundar af ýmsum gerðum, kannski ekki svo ósvipað Sam- fylkingunni. Þegar ég skokka fram hjá þessum ferfætlingaflokki hefjast upp þessi ægilegu ýlfur, gelt og gól. Mér var brugðið enda ekki vanur því að standa frammi fyrir heilum flokki sem virðist hafa það efst á stefnuskránni að rífa mig í sig. EN AUÐVITAÐ skildi ég líka þessi viðbrögð. Það er eflaust óskemmtilegt að vera með næmt þefskyn og fá svo bullsveitta mann- skepnu í grenndina. Þegar ég fór að skokka í annað sinn bar ég nokkurn kvíð- boga fyrir því að fara fram hjá þessum óvinum mínum. En viti menn, einungis einn hundur fór að gelta alveg upp á sitt einsdæmi en hinir stóðu með skottið milli lappanna meðan ég dreifði svitalyktinni við túnfótinn. ÞANN þriðja skokkdag mætti ég skelfi- lega illa lyktandi enda var ég í sömu sokk- unum þessa þrjá daga. En hundarnir lágu bara í leti og skelltu skollaeyrum við þess- ari lyktarmengun. Þeir hefðu örugglega ekki einu sinni gelt þó ég hefði hent óhreina tauinu inn til þeirra. ÞETTA minnti mig nokkuð á viðbrögð mannfólksins hér á Spáni við þeim skít sem nú hefur borist út. El País sagði á dögunum frá hliðarreikningum Lýðflokksins þar sem svartar greiðslur fóru til Mariano Rajoys forsætisráðherra og annarra frammá- manna flokksins. Fyrstu viðbrögð voru álíka viðtökum hundanna á mínu fyrsta skokki. Menn sýndu í sér vígtennurnar og geltu hátt en nú eru flestir komnir í sínar venjulegu hundastellingu og taka lífinu með ró eða öllu heldur láta lífið taka sig í ró. ÞETTA er alveg rétt hjá þér, Árni, að grafa stríðsöxina. Þú sem varst vitni að því þegar fólk reifst eins og smalahundar og kettir á þínu stjórnarheimili. Nú þegar þú ert orðinn húsbóndi í flokknum skaltu brýna fyrir fólki að skella ekki skolti um leið og það finnur skítalykt né vera að elta ólar á hverjum ketti. Minnugur þess að þeir sem stökkva strax upp á nef sér með ýlfri og gelti eru venjulegast ósköp fljótir að setja skottið á milli lappanna. Árni Páll og smalahundarnir Holy Diver! Sjáðu fótsporin! Getur það verið? Enginn vafi! Ég hef ekki séð hana á pöbbnum í fleiri ár! Nei...það var dálítið erfitt fyrir hana þegar ég og Kamilla byrjuðum saman! Þitt starf snýst um að halda á þessu skilti og dansa til að vekja athygli. Svona? OPIÐ HÚS Sýndu mér hvernig þú dansar. Ég dansa svona! Þetta er í síðasta skipti sem við kaupum nokkuð í hundrað- kallabúðinni! Mmmmm...er þetta ekki gott? Ég myndi seg ja að kvöldið í kvöld sé bæði æðis- legt og ótrúlegt. Æðislegt því við erum loksins saman ein... ...og ótrúlegt því við erum að eyða því í að kaupa tannkrem og einnota bleyjur. Hugsaðu um þetta sem erindi villtrar rómantíkur. OPIÐ HÚS LÁRÉTT 2. sæti, 6. ógrynni, 8. hvers vegna, 9. hlé, 11. öfug röð, 12. skran, 14. hökutoppur, 16. drykkur, 17. frjó, 18. pota, 20. til, 21. steypuefni. LÓÐRÉTT 1. líkami, 3. skammstöfun, 4. svelgja, 5. persónufornafn, 7. formaður, 10. hald, 13. gras, 15. auðga, 16. taumur, 19. frá. LAUSN LÁRÉTT: 2. sess, 6. of, 8. hví, 9. lot, 11. on, 12. drasl, 14. skegg, 16. te, 17. fræ, 18. ota, 20. að, 21. gifs. LÓÐRÉTT: 1. hold, 3. eh, 4. svolgra, 5. sín, 7. forseti, 10. tak, 13. sef, 15. gæða, 16. tog, 19. af. Eysteinn Sigurðsson / Löggiltur fasteignasali Skeifan fasteignasala / Suðurlandsbraut 46 108 Reykjavík / Sími 568 5556 / skeifan@skeifan.is Um er að ræða glæsilegt 156 fm einbýlishús á einni hæð ásamt 28 fm bílskúr. Samtals 184 fm á þessum frábæra stað í Árbænum. 5 svefn- herbergi. Fallegar innréttingar og gólfefni. Glæsilegar stofur með arni. Mjög fallegur garður með stórri timburverönd og skjólveggjum. Á pall- inum er heitur pottur og sturtuaðstaða með heitu og köldu vatni. Góð aðstaða til að setjast niður og njóta útsýnis yfir Elliðaárnar. Flott eign á fallegum stað. Hiti í gangstígum og bílaplani. Verð 55,9 millj. Gerið svo vel að líta inn sölumaður frá Skeifunni verður á staðnum og tekur á móti ykkur. Glæsibær 18 - Árbær Einbýlishús á einni hæð Opið hús í dag laugardag á milli kl. 14 og 15 OPI Ð H ÚS FAGRIHJALLI 9 - Kópavogi OPIÐ HÚS sunnudag 10. febrúar frá kl 15:00 - 17:00 Sérlega fallegt 233,4 fm einbýlishús á tveim hæðum með fimm góðum svefnherbergjum, bílskúr og glæsilegum suðurgarði með sólverönd og heitum potti. Möguleiki er að nýta hluta neðri hæðar sem aukaíbúð. Sjöfn (GSM 899-3183) og Jón (GSM-861-6030) taka þá vel á móti gestum og sýna húsið. OPIÐ HÚS Save the Children á Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.