Fréttablaðið - 09.02.2013, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 09.02.2013, Blaðsíða 12
9. febrúar 2013 LAUGARDAGURSKOÐUN S ú vitundarvakning um kynferðisbrot gegn börnum, sem átt hefur sér stað undanfarnar vikur, er tví- mælalaust af hinu góða og stuðlar væntanlega að því að í framtíðinni verði slík brot ekki látin liggja í þagnargildi eins og svo oft hefur gerzt í fortíðinni. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu, var sagt frá um það bil einu kynferðisbrotamáli á dag í fjölmiðlum landsins á þriggja vikna tímabili í janúar. Holskefla af nýjum kærum hefur komið inn til lögreglunnar. Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og fleiri lögreglu- embætti eru í gífurlegum önnum vegna rannsóknar þessara mála og sama má segja um embætti ríkissak- sóknara. RÚV greindi frá því í gærkvöldi að hátt í hundrað kynferðisbrotamál hefðu verið kærð það sem af er ári. Að þögnin um gömul kyn- ferðisbrotamál skuli hafa verið rofin á sér þó einnig sína neikvæðu hlið. Reiðin í samfélaginu hefur sums staðar brotizt fram með dapurlegum afleiðingum. Ráðizt hefur verið á grunaða kynferðisbrotamenn og á fólk sem sagði frá kynferðisbrotum. Ásökunum um kynferðisbrot, á hendur mönnum sem hafa hvorki verið kærðir né dæmdir, hefur verið dreift á vefsíðum og með öðrum hætti. Þetta eru viðbrögð sem eiga engan rétt á sér og stuðla ekki að því að réttlætinu verði fullnægt. Sérfræðingar hafa bent á að ofbeldisfullar árásir á kynferðisbrotamenn geti til dæmis orðið til þess að börn veigri sér við að segja frá brotum ætt- ingja eða fjölskylduvina, vegna þess að þau vilji ekki að þeim verði unnið mein. Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur sagði hér í blaðinu á miðvikudaginn að umræðan um kynferðisbrot gegn börnum hefði losað um eitthvað í þjóðarsálinni og viðbrögðin væru oft hömlulaus. „Þar er fólk að fara fram úr sér og gerir einungis illt verra með því að svara harmleik með öðrum harmleik og það er dapurlegt að horfa upp á,“ segir Helgi. Allir sem bera velferð barna fyrir brjósti verða að átta sig á að eina rétta leiðin til að ná fram réttlæti í málum sem varða kynferðisofbeldi gegn börnum er hin friðsama leið sem liggur um opinbert réttarkerfi. Enginn á rétt á að taka lögin í sínar hendur í þessum málum frekar en öðrum. Á næstunni er ekki útilokað að fólk fái á tilfinninguna að kerfið vinni hægt, enda er álagið á því mikið. En þá eiga menn sízt af öllu að sóa tíma lögreglu, saksóknara og dómstóla með öðrum ofbeldisverkum sem þurfa líka sína meðferð í kerfinu. Helgi Gunnlaugsson sagði hér í blaðinu að beizla yrði reiðina og beina henni í eðlilegan farveg. „Kerfið er kannski illa búið eins og er en þá verðum við, sem samfélag, að taka á því. Samfélaginu verður að vera ljóst að kerfið megni að sjá um þessi mál.“ Þetta er allt rétt. Það væri raunar ekki úr vegi að þar til bær stjórnvöld kvæðu fastar að orði en þau hafa gert hingað til um að hið opinbera réttarkerfi verði í stakk búið að taka á kynferð- isbrotamálum og að það sé aldrei réttlætanlegt að leita annarra leiða til að ná réttlætinu fram. FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 SPOTTIÐ Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Ýmsum þótti Árni Páll Árnason, nýr leiðtogi Samfylkingar innar, leggja nokkuð skarpt á brattann þegar hann notaði þakkarræðuna á landsfundinum fyrir viku til að gera upp sakir við arfleifð forvera síns. En í ljósi aðstæðna var þetta eðlilegt. Þar kemur tvennt til. Annað er að leiðtogakjör í stjórn- málaflokki hefur ekki í annan tíma ráðist meir af pólitískum viðhorf- um og minna af persónulegum eig- inleikum. Þess hlýtur að sjást stað. Hitt er að nýr leiðtogi mun sitja uppi með kosningaúrslitin í vor. Hann má því engan tíma missa eigi að takast að losa flokkinn af því málefnalega skeri sem hann hefur steytt á. Vandinn er sá að ekki er víst að meirihluti þingflokksins líti á það sem mistök að hafa fært flokkinn til vinstri þó að almennir flokksmenn geri það eins og formannskjörið staðfestir. Reyni þingmennirnir að handjárna formanninn gæti það svo dregið enn úr trúverðugleikan- um og fækkað þingsætunum. Fyrir ári síðan talaði enginn flokkur til miðjunnar í stjórnmál- unum. Á þeirri stöðu hefur orðið grundvallarbreyting. Björt framtíð hefur tekið til sín frjálslynda kjós- endur frá Samfylkingu og Fram- sóknarflokki sem Sjálfstæðis- flokkurinn vildi ekki keppa um. Leiðtogakjörið í Samfylkingunni þýðir að flokksmenn vilji gera flokkinn að jafnaðarmannaflokki á ný og horfa meir til miðjunnar. Stóra spurningin er svo hvort landsfundur Sjálfstæðisflokksins heimilar forystunni að blanda sér af þunga í baráttuna um miðju- atkvæðin. Nýr formaður heldur á tímasprengju Ýmsi r h a fa rét t i lega bent á að formaður Samfylkingarinnar verði að fylgja yfirlýsingum sínum eftir með nýrri nálgun á því hvernig ljúka eigi umfjöllun um stjórnar- skrármálið og fiskveiðifrum- varpið. Í því sambandi verður að hafa í huga að ríkisstjórnin hefði afgreitt þessi mál á fyrsta og öðru þingi kjörtímabilsins ef hún hefði vitað hvað hún vildi og haft meiri- hluta fyrir því í eigin röðum. Metnaður forsætisráðherra virðist ekki hafa verið meiri að því er þessi tvö mál varðar en að halda þannig á hlutunum að unnt yrði að kenna Sjálfstæðis- flokknum um að þau næðu ekki fram að ganga. Það hefur tek- ist. Friðsamleg málalok eru því ekki nein málefnaleg fórn. Þau eru miklu fremur lausn því bæði málin eru farin að hrinda jaðar- fylginu frá í ríkum mæli. Launamálin á Landspítalanum eru stóra málið sem formaður Samfylkingarinnar fékk í fangið á fyrsta degi. Þau eru tifandi tíma- sprengja. Verði hún ekki aftengd er óðaverðbólga óhjákvæmileg afleiðing. Þegar búið er að gera tímasprengjur virkar þarf snör handtök ef koma á í veg fyrir skaða. Spurningunni um verð- bólgu eða stöðugleika á næsta kjörtímabili verður því svarað fyrir kosningar. Velferðarráðherra gerði þessa tímasprengju virka með alveg ein- stöku pólitísku axarskafti, sem verður eins og myllusteinn um hálsinn á ríkisstjórninni meðan hann víkur ekki. En ábyrgðin hvílir nú á nýjum formanni. Land- spítalinn getur ekki keppt um starfsfólk við grannlöndin. Það er staðreynd sem endurspeglar lélega samkeppnisstöðu þjóðar- búsins og verður ekki breytt án þess að bæta hana. Verðbólgan ræðst fyrir kosningar Hér eru miklir hagsmunir í húfi fyrir launafólk. Losi tímasprengja velferðar- ráðherrans nýja skriðu launahækk- ana sem ekki byggjast á aukinni framleiðni ber launafólkið sjálft kostnað inn í gegnum verðbólguna. Aði lar vinnumarkaðarins hyggjast horfa til Norðurlandanna við næstu endurnýjun kjarasamn- inga. Þar ræður samkeppnishæfni þjóðarbúskaparins mestu um möguleika á kjarabótum. Verði tímasprengjan á Landspítalanum ekki aftengd fer sá góði ásetningur fyrir lítið. Það sem meira er: Fari verð- bólgan af stað er útséð um að Ísland eigi kost á því á næsta kjör- tímabili að taka ákvörðun um stöðugan gjaldmiðil. Fyrir Sam- fylkinguna myndi þetta þýða að allur trúverðugleiki varðandi áformin um inngöngu í evrópska myntbandalagið hyrfi. Þegar þjóðarsáttin var gerð 1990 kröfðust aðilar vinnumarkaðarins þess að fjármálaráðherrann, Ólaf- ur Ragnar Grímsson, tæki úr sam- bandi verðbólgusamninga við opin- bera starfsmenn sem hann hafði sjálfur undirritað skömmu áður. Fyrir dómi reyndist sú aðgerð að hluta vera brot á stjórnarskrá. Sá leikur verður því ekki endurtek- inn. Nú þarf því að stemma á að ósi. En þetta gamla dæmi sýnir hversu alvarleg hættan er. Formaður Samfylkingarinn- ar vill ekki taka sæti í núver- andi ríkis stjórn. Það er skynsam- legt mat. En verði tímasprengjan hins vegar ekki aftengd með öðru móti þarf hann að endurskoða þá ákvörðun. Þetta er mikill próf- steinn. Fyrir fram er þó ekki ástæða til að ætla annað en nýi for- maðurinn ráði við hann. Evrupólitíkin í uppnámi Yoga I - Ertu með stirðan kropp - Ertu í yfirþyngd - Ertu að ná þér eftir veikindi - Ertu með vefjagigt - Ertu komin á efri árin Yoga II - Krefjandi yogaæfingar - Aukin liðleiki - Aukin styrku Kennt í Sjúkraþjálfaranum Hafnarfirði 691 0381 Kristin Björg Komdu í yoga Góð slökun, Rétt öndun Röng viðbrögð við opnun umræðunnar um kynferðisbrot gegn börnum: Að beizla reiðina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.