Fréttablaðið - 09.02.2013, Blaðsíða 110

Fréttablaðið - 09.02.2013, Blaðsíða 110
9. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 82 „Ég var bara asni.“ SÖNGVARINN JOHN MAYER MÆTTI Í VIÐTAL Í SJÓNVARPS- ÞÁTTINN CBS THIS MORNING OG RÆDDI MEÐAL ANNARS UM ÞAU LJÓTU UMMÆLI SEM HANN HEFUR LÁTIÐ FALLA UM FYRRVERANDI KÆRUSTUR SÍNAR. Vekur lukku Haust- og vetrarlína Ostwald Helgason heldur áfram að vekja rífandi lukku meðal tískuunnenda um allan heim. Söngkonan Solange Knowles, yngri systir Beyoncé, klæddist fatnaði frá hinu hálfíslenska merki við Essence-há- tíðina í Hollywood á miðvikudag. Hátíðin, sem er til heiðurs svörtum konum í tónlistariðnaðinum, var haldin í fjórða sinn í ár. Ostwald Helgason er í eigu Ingvars Helgasonar og Susanne Ostwald. „Það er svolítið skemmtilegt að vera klukka. En það er verulega skrítin tilfinning,“ segir leikarinn Ólafur Darri Ólafsson. Hann tekur við af Ingibjörgu Björnsdóttur leikkonu sem rödd klukkunnar síðar í þessum mán- uði og mun því svara með djúpri og ómþýðri rödd sinni þegar fólk hringir í 115 og biður um tímann. Ólafur Darri verður fyrsti karl- maðurinn sem gegnir hlutverk- inu. Fyrsta Ungfrú klukka leit dagsins ljós 1937 þegar Halldóra Briem ljáði henni rödd sína. Sig- ríður Hagalín leikkona tók við af henni og var klukkan í þrjátíu ár en frá 1994 hefur Ingibjörg talað fyrir klukkuna. Núna er röðin komin að Ólafi Darra, sem hélt að enginn hringdi lengur í klukkuna þegar honum var boðið starfið. „Ég man eftir því að maður gerði það oft fyrir tíma gemsans.“ Aðspurður segist hann vera stundvís maður og því á þetta nýja starf eflaust vel við hann. „Mér finnst ég sæmilega stund- vís en ég er ekki viss um að aðrir séu sammála því.“ Ólafur Darri er einnig orðinn rödd Símans, sem hefur einmitt klukkuna á sinni könnu, og tekur hann við því starfi af leikstjór- anum Reyni Lyngdal. Leikarinn hefur töluverða reynslu af radd- setningu því hann var rödd Skjás eins þangað til fyrir áratug. Einn- ig var hann rödd Sambíóanna og N1 í mörg ár. „Ég var mjög ánægður með fyrri vinnuveitend- urna. Það var gott að vinna með þeim en hagræðingin fyrir mig felst í því að bæði er spennandi að vinna fyrir Símann og svo var ég alltaf að lesa fyrir tvö fyrir- tæki. Það er gott að vera bara á einum stað.“ Hvernig lýsir starfið sér? „Ég þarft alltaf að koma nokkrum sinnum í mánuði þegar það koma nýir hlutir sem þarf að gera. Svo eru það klassíkerar sem maður gerir bara einu sinni, eins og símsvarar og annað slíkt. Þetta er alveg smá vinna en ekki mikil.“ Aðspurður hvað það er við rödd- ina hans sem er svona eftirsóknar- vert segist hann ekki vita það með vissu. „Röddin mín er bara guðs- gjöf og ég er afskaplega þakklátur fyrir hana. Við leikarar erum síst of launaháir og hún hefur hjálp- að mér að lifa sómasamlegu lífi í þessu starfi.“ Þarftu ekki að passa vel upp á röddina, eins og söngvarar gera jafnan? „Ég segi það nú ekki en ég er hættur að reykja. Það er það sem ég er ánægðastur með að hafa lagt í púkkið.“ freyr@frettabladid.is Ólafur Darri er hin nýja ungfrú klukka Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson verður rödd klukkunnar og Símans. LES FYRIR KLUKKUNA OG SÍMANN Ólafur Darri Ólafsson mun lesa fyrir klukkuna og Símann í framtíðinni. FRÉTTABLAÐIÐA/ANTON Í janúar síðastliðnum bárust 5.880 símtöl í klukkuna, samkvæmt upplýsingum frá Símanum. 2.086 símtalanna komu úr farsímum, 3.774 úr heimasímum og 20 úr tölvusím- um. Hvert símtal kostar 25,3 krónur og var því samanlagt hringt í klukkuna fyrir tæpar 150 þúsund krónur í síðasta mánuði. Ef þessi upphæð er margfölduð með tólf gæti upphæðin numið um 1,8 milljón króna þegar árið er á enda. Þriðja hljómplata Retro Stefson, sem er samnefnd hljómsveitinni, kemur út í Evrópu og Bandaríkj- unum í mars á vegum Les Frères Stefson, sem er útgáfufélag Retro Stefson. Hún kemur út í samstarfi við breska fyrirtækið Republic of Music sem annast framleiðslu, dreifingu og markaðssetningu. Risinn Universal í Þýskalandi, nánar tiltekið Vertigo, mun því ekki gefa plötuna út. Samningur var gerður um plötuna Kimbabwe og var hann ekki endurnýjaður. Í kjölfar útgáfunnar heldur Retro Stefson í tveggja mánaða tónleikaferð um Evrópu til að fylgja henni eftir. Fyrstu tónleikarnir verða í Kennedy Center í Washington og eftir það er förinni heitið til Evrópu. Fyrst spilar hljómsveitin á bransahátíðinni by:Larm í Noregi 13. og 14. febrúar og daginn eftir á Són- ar-hátíðinni í Reykjavík. Í maí er förinni heitið til Austur-Evrópu og síðan á fjölmargar tónlistarhátíðir í Evrópu. Retro Stefson var tilnefnd til sex verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaunum fyrir nýjustu plötu sína, auk þess að vera tilnefnd til Norrænu tónlistar- verðlaunanna. - fb Gefur sjálf út plötuna erlendis Hljómsveitin Retro Stefson hefur stofnað útgáfufélagið Les Frères Stefson. RETRO STEFSON Hljómsveitin gefur sjálf út plötuna sína úti í heimi. 5.880 símtöl bárust í klukkuna í janúar 14. - 17.febrúar á Ísafirði Fyrir byrjendur og lengra komna Fossavatnsgangan á Ísafirði stendur fyrir skíðagöngu- námskeiði14.-17.febrúar n.k. í samstarfi við Skíðafélag Ísfirðinga, Ísafjarðarbæ og Hótel Í safjörð. Námskeiðið er ætlað bæði þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á gönguskíðum og þeim s em e ru lengra komnir. Leiðbeinendur með áratuga reynslu af kennslu og keppni sem flestir hafa unnið til verðlauna á Íslands- meistaramótum. Yfirkennari er Daníel Jakobsson marg- faldur Íslandsmeistari og Ólympíufari. Verð: 29.800 kr. á mann. Innifalið: Gisting í 3 nætur á Hótel Ísafirði með morgunverði. Námskeiðisgjald s em er 12.000 k r. e r innifalið. Aukanótt kostar 5.000 kr. Nestispakki - smurt af hlaðborði 900 kr. Aukagjald á nóttu ef gist er í eins manns herbergi 4.000 kr. Nánari upplýsingar í síma 456 4111 hotelisafjordur.is & fossavatn.com SÉRHÆFÐIR ÞÝÐENDUR Út er komin á vegum Forlagsins bókin Svona á að elska– leiðarvísir fyrir eldheita elskendur. Það er Sveinn Guðmarsson, fréttmaður á RÚV, sem hefur veg og vanda af því að snara ritinu yfir á íslensku. Hann ætti að vera orðinn öllum hnútum kunnugur í tungutaki Amors því áður hefur hann þýtt bækurnar Súpersex og Lostaleiki eftir kynlífsgúrúinn Tracy Cox. Og skyldi hann einhvern tímann reka í vörð- urnar þarf ekki að leita langt eftir ráðum, því eiginkona Sveins og samstarfsmaður hans á RÚV, Þórhildur Ólafsdóttir, þýddi bókina Kama Sutra eftir sama höfund fyrir nokkrum árum. - kg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.