Fréttablaðið - 09.02.2013, Blaðsíða 73

Fréttablaðið - 09.02.2013, Blaðsíða 73
7 Kínversk stjörnuspeki á ýmislegt sameiginlegt með vestrænni stjörnuspeki, þó það sé grundvallarmunur á þeim. Þær skipta báðar tímanum í 12 hluta, hver með sitt merki, en í kínverskri stjörnuspeki er hvert merki í heilt ár. Í báðum útgáfum eru tímabil kennd við dýr, en vestræn stjörnumerki eru ekki öll kennd við dýr. Í báðum er staðan á hringrás stjarnanna þegar maður fæðist talin ha áhrif á persónuleika fólks og lífsreynslu þeirra. Nátengd heimspeki Kínversk stjörnuspeki er nátengd kínverskri heimspeki og talar um jafnvægi yin og yang og frumefnanna mm viðar, elds, jarðar, málms og vatns. Kínverskt tímatal byggir á hringrás Júpíters um sólina, sem tekur um 12 ár. Gregoríska tímatalið er almennt notað í Kína, en kínverska tímatalið er notað fyrir stjörnuspeki og til að nna dagsetningar ýmissa hefðbundinna kínverskra hátíða. Í kínversku tímatali skiptist tíminn í 60 ára hringrásir sem fela í sér tvær styttri hringrásir, þ.e stjörnumerkjanna annars vegar og hins vegar frumefnanna. Á hverju ári er dýri hvers merkis stjórnað af einhverju frumefni og yin eða yang. Hvert merki kemur upp á 12 ára fresti en sömu samsetningar merkja og frumefna koma aðeins upp einu sinni á hverri 60 ára hringrás. Ekki bara 12 merki Það er algengur misskilningur, sérstaklega á Vesturlöndum, að dýramerkin 12 séu einu merkin. Í raun eru líka dýramerki fyrir hvern mánuð, dag og hverja klukkustund sólarhringsins. Samkvæmt kínverskri stjörnuspeki móta öll þessi merki lífshlaup og örlög manna. Því er hægt að átta sig á örlögum fólks út frá stöðu plánetanna, sólarinnar, tunglsins og halastjarnanna í sólker nu þegar fólk fæðist, ásamt því að taka með í reikninginn klukkan hvað viðkomandi fæddist, í hvaða mánuði og hvaða ár. Þar sem kínverska nýárið er ekki alltaf á sama degi, er ekki alltaf skýrt í hvaða merki fólk er. Þeir sem fæðast í janúar eða snemma í febrúar kunna að hafa fæðst áður en kínverska nýárið kom og eru þá í merki ársins á undan. Magnús Björnsson, forstöðumaður Konfúsíusar- stofnunarinnar segir Kínverja ekki hugsa mikið um stjörnuspekina í daglegu lí en hún sé rótgróin í undirmeðvitund þeirra. „Í fyrra var til dæmis gríðarleg sprengja í barneignum í Kína af því að það var ár drekans og það er talið mjög farsælt að fæðast á ári hans.“ -Oddur Freyr Þorsteinsson Ekki alltaf ljóst í hvaða stjörnumerki fólk er Í fyrra varð sprengja í barneignum í Kína því farsælt er talið að fæðast á ári drekans. Kínverskum ferðamönnum á Íslandi hefur fjölgað mikið á undanförnum árum. Í fyrra voru þeir 14.036 en árið á undan 8.784. Aukningin bara milli síðustu tveggja ára er því ,8 . Samkvæmt upplýsingum frá ferðaþjónustufyrirtækjum berast margar fyrirspurnir frá Kína og má því búast við að ferðamönnunum haldi áfram að fjölga. Jöklar vekja hvað mesta kátínu Kínverjanna enda fer lítið fyrir þeim í heimalandinu. Kröfuharðir ferðamenn „Til að anna væntanlegri fjölgun ferðamanna hingað til lands eru nokkrir Kínverjar, búsettir á Íslandi, í leiðsögunámi við Ferðamálaskóla Íslands til að undirbúa sig fyrir að ferðast með landa sína um landið. En eins og margar aðrar austrænar þjóðir eru þeir mjög kröfuharðir um að ferðin gangi snurðulaust fyrir sig og skipulag sé gott,” segir Friðjón Sæmundsson, skólastjóri Ferðamálaskólans. Ekki bara embættismenn Hann segir jafnframt að samsetning hópanna sem hingað komi ha breyst. Áður ha þetta meira eða minna verið embættismenn á vegum kínverska ríkisins en það sé ekki svo lengur og Kínverjar komi nú í skipulögðum hópum til Norðurlandanna og heimsæki Ísland í leiðinni. Margir þeirra, frá Tævan og Hong Kong, séu nokkurs konar „VIP” ferðamenn þar sem þeir virðist hafa næga peninga milli handanna. Kínverska og kínverskir siðir Fyrirhugað er að fara af stað með námskeið í mars með það að markmiði að undirbúa íslenska ferðaþjónustuaðila og aðra áhugasama fyrir að taka á móti þessum mikla fjölda Kínverja á komandi árum. Námskeiðið er samstarfsverkefni Ferðamálaskólans og Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljósa og felur í sér 40 kennslustundir sem skiptast jafnt í kínversku annars vegar og kínverska menningu, siði og venjur hinsvegar. Lögð verður megináhersla á talmál sem nýtist í ferðaþjónustu og þætti í menningu Kínverja sem hafa áhrif á samskipti þeirra. Jafnframt verður fjallað um ferðavenjur þeirra erlendis og margt eira. -Edda Sif Pálsdóttir Fe r ð a f ó l k i f r á K í n a h e f u r f j ö l g a ð h r a t t Kínverskum ferðamönnum hér á landi fjölgaði um nærri 60 í fyrra frá árinu áður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.