Fréttablaðið - 12.02.2013, Side 10
12. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
4
3
0
ATVINNUMÁL HB Grandi hefur
ákveðið að breyta rekstri sínum
umtalsvert og við það missa 34
sjómenn skipspláss sín. Störfum
í landvinnslu fjölgar hins vegar
um fimmtíu við breytingarnar.
Ástæða breytinganna er betri
afkoma landvinnslu félagsins og
skerðingar á aflaheimildum þess.
Þetta var meðal þess sem var
kynnt starfsmönnum á fundi í
gær, en fyrr höfðu sjómenn feng-
ið upplýsingar um fyrirhugaðar
breytingar. Þar kom fram að HB
Grandi hefur ákveðið að leggja
frystitogaranum Venusi og frysti-
togaranum Helgu Maríu verð-
ur breytt í ísfisktogara. Á næsta
fiskveiðiári mun félagið því gera
út þrjá frystitogara í stað fimm en
fjóra ísfisktogara í stað þriggja.
Auk togaranna gerir HB Grandi
út þrjú uppsjávarveiðiskip.
Vilhjálmur Vilhjálmsson, for-
stjóri HB Granda, segir það mat
félagsins að meiri verðmæta-
sköpun muni felast í því að vinna
aflann í landi frekar en frysta
hann á sjó, meðal annars vegna
aukinnar eftirspurnar erlendis
eftir ferskum sjávarafurðum.
„Það má segja að undanfarin ár
hafi það gefið meiri framlegð að
vinna með ísfiskskipum og land-
vinnslu. Afkoma frystitogara
hefur verið að slakna á þessum
tíma. Við horfum til þess að meiri
framtíð sé í markaði með ferskan
fisk,“ segir Vilhjálmur.
Ástæðan fyrir fækkun í tog-
araflota HB Granda er fyrst og
fremst ónægar aflaheimildir, að
sögn Vilhjálms. Undanfarin þrjú
ár hafa bolfisksheimildir félagsins
minnkað um 3.445 þorskígildis-
tonn.
Við breytingarnar mun sjó-
mönnum félagsins væntanlega
fækka úr 320 í 286, en störfum í
landvinnslu mun fjölga um fimm-
tíu. Stöðugildum hjá fyrirtæk-
inu mun því fjölga um sextán við
breyting arnar. Alls starfa um 800
manns hjá HB Granda.
En hvernig verður staðið að
breytingum áhafna skipanna?
„Það má segja að það verði stokk-
að upp á öllum skipunum, eins og
við ræddum við sjómennina okkar
í gær. Við lítum alls ekki á þetta
sem einkamál okkar og þeirra á
Venusi, til dæmis,“ segir Vilhjálm-
ur, sem útilokar ekki að einhverj-
ir vilji grípa tækifærið og fara í
land.
Helgu Maríu verður siglt til
Póllands í almennt viðhald þegar
aflaheimildir skipsins hafa verið
veiddar, og verður breytt í ísfisk-
togara. Skipasmíðastöðvar í Pól-
landi voru með lægstu tilboðin í
verkið, mun lægri en frá íslensk-
um fyrirtækjum.
svavar@frettabladid.is
Það má segja að undanfarin ár hafi það gefið meiri
framlegð að vinna með ísfiskskipum og landvinnslu.
Afkoma frystitogara hefur verið að slakna á þessum tíma.
Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda
Grandi fækkar sjómönnum
en fjölgar störfum í landi
HB Grandi gerir miklar breytingar á rekstri. Betri afkoma landvinnslu og skertar aflaheimildir ástæðan. Einu
skipi lagt og frystiskipi breytt til ísfiskveiða. Sjómönnum fækkar um 34 en 50 störf skapast í landi.
VIÐ BRYGGJU Ekki er litið á uppsagnirnar sem einkamál áhafnanna á Venusi og
Helgu Maríu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HEILBRIGÐISMÁL Strætó styður
við Blóðbankann og hvetur
farþega til að gefa blóð. Á vef
Strætó segir að í hverjum vagni
sé plakat sem minni á nauðsyn
blóðgjafa, en til að mæta þörfum
samfélagsins þurfi bankinn 70
blóðgjafa á dag.
„Auðvelt er að taka strætó í
Blóðbankann og hægt er að fara
inn á strætó.is og finna hvaða
leið hentar þér. Blóðbankinn í
Reykjavík er á Snorrabraut 60
og Blóðbankinn á Akureyri er á
Fjórðungssjúkrahúsinu,“ segir á
Strætó. Þá megi sjá staðsetningu
blóðbankabílsins á www.blod-
bankinn.is. - óká
Auglýsa blóðgjöf um borð:
Strætó styður
Blóðbankann
STUÐNINGUR Í hverjum strætisvagni
verður plakat um nauðsyn blóðgjafar.
SJÁVARÚTVEGUR
Strandaði við Eyjar
Loðnuskipið Kap VE-4 strandaði í
Vestmannaeyjahöfn í gærdag, aðeins
nokkur hundruð metra frá bryggju.
Skipið losnaði eftir um tvær klukku-
stundir, þegar flætt hafði nógu mikið
að. Skipstjórar í Eyjum hafa kvartað
yfir hrygg sem myndast þegar skrúfur
Herjólfs þyrla upp sandi í höfninni, að
sögn RÚV.