Fréttablaðið - 14.02.2013, Síða 22
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 22
Hvað greiði ég fyrir
mennta- og heilbrigðis-
kerfið? Hvernig verja ráð-
herrar ráðstöfunarfé sínu?
Við hvaða fyrirtæki skipta
opinberar stofnanir? Oft
heyrast spurningar á borð
við þessar en misjafnt er
hvort opinber gögn liggja
fyrir sem svara þeim.
Að mínu mati eiga upp-
lýsingar sem varða það
hvernig skattfé almenn-
ings er varið að vera
öllum aðgengilegar. Með
tölvutækni nútímans er það líka
vel mögulegt. Á þetta hefur Bret-
inn Tim Berners-Lee, sem oft er
nefndur faðir internetsins, bent.
Hann hefur nýlega sagt að næsta
bylting á netinu muni snúast um
opið aðgengi að gögnum. Árið
2009 skoraði Tim á stjórnvöld,
menntastofnanir og fyrirtæki að
opna gögn. Áskorunin snýst um að
birta fjölda gagnapakka á netinu.
Þar eru þeir aðgengilegir öllum,
þeim má dreifa og miðla á hvaða
sniði sem er, undir opnum leyfis-
skilmálum.
Fyrstu skrefin
Á örfáum árum hefur orðið mikil
þróun í þessum málaflokki um
allan heim. Bretar og
Bandaríkjamenn hafa
verið í broddi fylkingar
og lagt áherslu á aukið
aðgengi að gögnum. Sem
dæmi birta bresk stjórn-
völd meira en 9.000 gagna-
pakka á vefsíðunni http://
data.gov.uk. Þar getur fólk
til dæmis skoðað útgjöld
ráðuneyta, stofnana og
sveitarfélaga. Þá má nálg-
ast annars konar upplýs-
ingar, t.d. landfræðilegar.
Hér á landi erum við
skemmra á veg komin í þessum
málum. Í því skyni að auka birt-
ingu fjárhagsupplýsinga ríkisins
setti ég á dögunum, ásamt for-
sætisráðherra, á fót starfshóp sem
vinna á tillögur í þessum efnum.
Hópurinn er að skoða hver ættu
að vera fyrstu skref ráðuneytis-
ins í birtingu fjárhagsupplýsinga
og skilar hann tillögum sínum
á næstu vikum. Vonast er til að
vinna hópsins geti nýst í fram-
haldinu við stefnumótun og opnun
fleiri gagnapakka. Takmarkið
ætti að mínu mati að vera að gögn
um tekjur og útgjöld ríkisins séu
aðgengileg hverjum þeim sem vill
kynna sér þau. Ný upplýsingalög
gefa tóninn fyrir þessa vinnu. Þar
er skýrt tekið fram að persónu-
greinanleg gögn eru undanskilin
birtingu.
Nýsköpun og hagræðing
Fyrir utan sjónarmið um lýðræði og
gagnsæi sem liggja að baki birtingu
opinberra gagna eru önnur veiga-
mikil rök. Opin gögn geta stuðlað að
nýsköpun í samfélaginu. Gott dæmi
eru fyrirtæki eins og Datamarket
og vefsíðan Gogn.in, en þau vinna
með þau gögn sem eru aðgengileg í
dag. Þá má einnig stuðla að hagræð-
ingu í opinberri stjórnsýslu, t.d. með
sjálfsafgreiðslu á fyrirspurnum,
vinnusparnaði við gagnagreiningu
og einföldun á mati áhrifa efnahags-
legra aðgerða.
Frjáls aðgangur að gögnum á
borð við fjárhagsupplýsingar ríkis-
ins leiðir til upplýstara samfélags
og aukins valds almennings. Birt-
ing þeirra veitir aðhald og hvetur til
ráðdeildar. Þess vegna er hún brýn.
Áður en álit Feneyja-
nefndar um frumvarp að
nýrri stjórnarskrá hefur
komið út í heild á íslensku
hafa fjölmiðlar hent á lofti
nokkur atriði úr því sem
talist gætu „alvarlegar
athugasemdir“. Hitt þykir
síður fréttnæmt, eins og
gengur, sem nefndin hefur
gott að segja um frum-
varpið.
En hvers eðlis eru þær
og hve alvarlegar eru
þær? Og hve alvarlegar,
stórar og margar hefðu
athugasemdir nefndarinnar orðið
um núverandi stjórnarskrá?
Nefndin bendir á að málskots-
réttur forseta Íslands geti valdið
togstreitu milli hans og þingsins
þar sem hætta sé á að annar aðil-
inn lúti illa í lægra haldi.
En í nýrri stjórnarskrá er þessi
réttur þó orðinn mun takmarkaðri
en í núverandi stjórnarskrá af
því að frumkvæði kjósenda hefur
verið bætt við og þörfin á aðkomu
forsetans því minnkuð.
Einnig eru sett nauðsynleg
tímatakmörk og kveðið skýrt
á um hvenær þjóðaratkvæða-
greiðsla geti fallið niður, en gat í
núverandi ákvæði 26. greinar olli
deilum 2004 um það hvort niður-
felling þjóðaratkvæðagreiðslu þá
hefði verið stjórnarskrárbrot.
Vilji þjóðar
Meirihluti kjósenda hefur látið
sér það vel líka að undanförnu
að forsetinn hafi málskotsréttinn
sem Feneyjanefndin gerir athuga-
semdir við.
Spurningin er því þessi: Hvort á
vilji þjóðarinnar um þetta efni að
ráða eða Feneyjanefndin? Eigum
við að fella málskotsrétt forsetans
niður úr núverandi stjórnarskrá
af því að Feneyjanefndin gerir
athugasemdir við hann?
Þetta er spurningin um pólitísk-
an vilja þjóðarinnar.
Tökum þá hliðstæðu að Fen-
eyjanefndinni væri falið að gefa
álit á stjórnarskrá Bandaríkj-
anna og að hún benti á að neitun-
ar- eða frestunarvald forsetans
gæti skapað togstreitu þingsins
og forsetans þar sem annar aðil-
inn gæti lotið illa í lægra haldi.
Myndu Bandaríkjamenn breyta
stjórnarskránni út af þessu áliti?
Það hygg ég að væri ólíklegt og
líklegra væri að pólitískur vilji
bandarísku þjóðarinnar sé að
viðhalda núverandi vald-
dreifingu, valdmörkum
og valdtemprun sem felst
í ákvæðum um samskipti
forseta og þings.
Feneyjanefndin bendir
á að Alþingi hljóti mikil
völd samkvæmt frum-
varpi stjórnlagaráðs og
að það geti skapað „þrá-
tefli og óstöðugleika“.
Nú er það svo að í
skýrslu rannsóknarnefnd-
ar Alþingis og umræðum
um völd og virðingu
Alþingis hefur um árabil
verið kvartað yfir því að fram-
kvæmdarvaldið hafi beitt löggjaf-
arvaldið ofríki svo að Alþingi hafi
orðið að máttlausri afgreiðslu-
stofnun fyrir ríkisstjórnir.
Þess vegna er gert ráð fyrir
því í frumvarpi stjórnlagaráðs að
skerpa á þingræðinu sem hluta
af aukinni valddreifingu og vald-
temprun sem hamlað geti sumu af
því sem skóp aðdraganda hruns-
ins.
Feneyjanefndin bendir á að
skapast geti „þrátefli“ í samskipt-
um þings og ráðherra. Það getur
auðvitað gerst ef áfram er við-
haldið því andrúmslofti hótana og
trúnaðarbrests sem þjakað hefur
íslensk stjórnmál.
Skoðum hliðstæðu. Í nágranna-
löndum okkar ýmsum eru minni-
hlutastjórnir algengar.
Ef Feneyjanefndin gæfi álit
um það gæti hún bent á að slíkt
ástand gæti skapað togstreitu og
þrátefli. En samt hefur það ekki
gerst í þessum löndum af því að
valdtemprunin og valddreifingin
hefur leitt af sér annað og betra
stjórnmálaástand samvinnu og
samræðu en hér ríkir.
Feneyjanefndin bendir á að
vald einstakra ráðherra sé mikið
í frumvarpi stjórnlagaráðs. En
hvað myndi hún segja um núver-
andi ástand þar sem hver ráð-
herra um sig er í raun einráður á
sínu sviði þegar hann vill það við
hafa og ráðherrar telja að þeir
beri ekki hver ábyrgð á gerðum
annars?
Kærkomið álit
Í nýrri stjórnarskrá yrðu ákvæði
sem draga eiga úr vanköntum
þessa ástands með því að sköp-
uð sé samábyrgð ráðherra hvers
á gerðum annars sem þeir geti
ekki skorast undan nema með sér-
stakri bókun um það efni.
Álit Feneyjanefndarinnar er
kærkomið inn í umræðuna um
stjórnarskrána og hefði betur
verið farið að óskum stjórnlaga-
ráðs á sínum tíma um að fá það
álit strax þegar frumvarpið kom
fram.
Álitið skerpir á sýn okkar um
það hvers vegna meirihluti þátt-
takenda í þjóðaratkvæðagreiðslu
lét í ljós þann pólitíska vilja að
leggja meginatriði frumvarps
stjórnlagaráðs til grundvallar
nýrri og betri stjórnarskrá, þar
með talda aukna valddreifingu og
valdtemprun með auknu þingræði
og að forsetinn geti verið þáttur í
auknu beinu lýðræði.
Frumvarpið tekur fyrirmyndir
í stjórnarskrám þeirra þjóða þar
sem stjórnarfar er einna best og
farsælast þótt valdinu sé dreift
og það geti kallað á togstreitu um
stefnu og aðferðir. Úr því hafa
þessar þjóðir unnið á þann veg að
ástand íslenskra stjórnmála sting-
ur í augu í samanburðinum.
Feneyjanefndin telur völd for-
seta Íslands lítil samkvæmt frum-
varpinu en forsetinn sjálfur telur
þau mikil. Ætli raunveruleik-
inn liggi ekki þarna á milli, að
þau verði í heild svipuð og verið
hefur?
Ef menn vilja að engin hætta
sé á þrátefli milli valdþátta geta
menn farið þá leið, sem reynd
var forðum: „Ein Volk, ein
Führer“. Eða unað því að Alþingi
sé afgreiðslustofnun fyrir fram-
kvæmdarvaldið.
Ég hef hér að ofan rakið nokkur
atriði sem Feneyjanefndin bendir
á og rökstutt þá skoðun mína að
þau felli ekki þann vilja sem kom
fram í þjóðaratkvæðagreiðslu að
leggja frumvarp stjórnlagaráðs
til grundvallar nýrri stjórnar-
skrá. Það tel ég aðalatriði máls-
ins sem og það að rofið sé það
raunverulega þrátefli neitunar-
valds minnihlutans sem hefur í
70 ár komið í veg fyrir að loforð
landsfeðranna um nýja stjórnar-
skrá sé efnt.
➜ Meirihluti kjósenda
hefur látið sér það vel líka
að undanförnu að for-
setinn hefði málskotsréttinn
sem Feneyjanefndin gerir
athugasemdir við.
➜ Frjáls aðgangur að
gögnum á borð við fjárhags-
upplýsingar ríkisins leiðir
til upplýstara samfélags og
aukins valds almennings.
Hve „alvarlegar“ eru athuga-
semdir Feneyjanefndarinnar?
Opin gögn og upplýst þjóð
UPPLÝSINGAR
Katrín
Júlíusdóttir
fj ármála- og efna-
hagsráðherra
NÝ STJÓRNAR-
SKRÁ
Ómar Þ.
Ragnarsson
fv. fulltrúi í stjórn-
lagaráði
Fæst án lyfseðils
Verkir í
hálsi og
öxlum?
Verkjastillandi og
bólgueyðandi við
verkjum í hálsi
og öxlum!