Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.02.2013, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 14.02.2013, Qupperneq 28
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 28 Á landsfundi Samfylking- arinnar um liðna helgi var samþykkt framsækin og fjölbreytt menntastefna flokksins. Tekur stefnu- mótunin til allra sviða menntamálanna og legg- ur grunn að nýrri sókn í menntamálum nú þegar rofar til í ríkisfjármál- um. Stikla ég hér á eftir á nokkrum af helstu atriðum ályktunarinnar, en hún er ítarleg og efni í nokkrar greinar. Í ályktun landsfundar segir að Samfylkingin byggi menntastefnu sína á rótgrónum gildum jafnað- armanna um jöfnuð og félagslegt réttlæti. Samfylkingin vill skapa skólakerfi sem veitir öllum tæki- færi til þess að verða fullgildir þátttakendur í samfélagi skap- andi, starfandi og menntaðs fólks. Annað meginhlutverk skólanna er að flytja þekkingu á milli kyn- slóða. Verkefni okkar er að gera þær breytingar á menntakerfinu sem setja manninn sjálfan í önd- vegi, með hliðsjón af grunngildum jafnaðarstefnunnar. Þetta eru háleit og metnaðarfull markmið og er það rakið í álykt- uninni hvernig flokkurinn ætlar að ná þeim á næstu árum. Annars vegar með róttækum breytingum á menntakerfinu og hins vegar með auknum fjárfestingum í skólum landsins með það að markmiði að hlutfall þeirra sem ekki hafa lokið viðurkenndu starfs- eða fram- haldsskólanámi á íslenskum vinnu- markaði lækki úr 30% í 10%. Aukið vægi verk- og tæknigreina Mikil spurn er eftir verk- og tækni- menntuðu fólki á vinnumarkaði en hlutfallslega fáir nem- endur leggja stund á slíkt nám. Leggjum við áherslu á að auka þarf vægi verk- og tæknigreina í íslensku skólakerfi og auka kynn- ingu fyrir nemendur og forráðamenn þeirra á rúm- lega hundrað námsbraut- um sem í boði eru í slík- um greinum. Í ályktuninni segir að til að fjölga nem- endum í verk- og tækni- námi sé nauðsynlegt að efla samstarf milli skóla og atvinnulífs, fjárfesta í búnaði til verk- og tæknikennslu, stuðla að opnari framhaldsskóla og nýsköpun í kennsluháttum. Sérstaklega þarf að auka verklega kennslu og verk- efnabundið nám. Leita þarf samstarfs við aðila vinnumarkaðarins og samtök for- eldra um kynningu fyrir nemendur á fjölbreyttum verklegum störfum í íslensku atvinnulífi, innan skóla og á vinnustöðum. Leggja þarf áherslu á styttri námsbrautir sem valkost fyrir nemendur. Öflugt verk- og tækninám er lykil atriði í því að spyrna gegn brottfalli og ná til nemenda svo þeir ljúki námi á framhaldsskóla- stigi. Það eykur enn líkurnar á að nemandinn komi aftur inn í skól- ann síðar til að bæta við sig námi. Nýjar stuttar námsbrautir í verk- námi á borð við þær sem Sjávar- útvegsskólinn í Grindavík býður upp á undirstrika árangurinn sem ná má með þessum hætti. Öflugir háskólar– aukið samstarf Háskólamenntun er að mati okkar jafnaðarmanna afdráttarlaust for- senda atvinnuþróunar, hagsæld- ar og velferðar í samfélaginu. Við viljum efla háskóla í landinu til að þeir standist áfram samjöfnuð við alþjóðlega háskóla varðandi kennslu og rannsóknir. Mikilvægt er í áföngum að hækka framlög til háskólanna til að jafna stöðu þeirra við háskóla í öðrum norrænum ríkj- um. Það er forsenda eflingar skóla- stigsins á næstu misserum. Auka þarf samstarf og verka- skiptingu háskóla í landinu með það fyrir augum að auka gæði og fjölbreytni náms samhliða því að tryggja jafnt aðgengi að námi óháð búsetu, efnahag eða félagslegri stöðu. Landsfundur vill að stuðlað verði að formlegu samstarfi allra háskóla í landinu um framtíðar- stefnumótun háskólastigsins. Þar verði m.a. hugað að samræmdu rekstrarformi háskólanna, fjár- mögnun háskólastofnana, kennslu og rannsóknum, aukinni sérhæf- ingu eftir fræðasviðum og betri tengslum við atvinnulíf og sam- félag. Hvað varðar mikinn fjölda skóla á háskólastigi í okkar fámenna landi viljum við að stefnt verði að sameiningu opinberu háskólanna í þeim tilvikum þar sem sýnt er að það muni auka gæði námsins og hagkvæmni. Samfylkingin telur það vera á ábyrgð ríkisins að fjármagna grunnmenntun allra á háskólastigi á viðurkenndum fræðasviðum og telur brýnt að gæta jafnræðis varð- andi kostnaðarþátttöku nemenda á mismunandi skólastigum. Ný sókn í menntamálum Í ágúst síðastliðnum hóf VR að nýju að þjónusta atvinnulausa félagsmenn sína. Felst sú þjónusta í vinnumiðlun, náms- og starfsráðgjöf og síðast en ekki síst í handleiðslu atvinnuleitenda í gegnum refilstigu bótakerfisins með fræðslu um réttindi og skyldur þeirra innan þess. Markmið þessarar þjónustu er fyrst og fremst að efla hvern og einn einstakling þannig að hann eigi meiri mögu- leika til virkrar þátttöku á vinnu- markaði. Þjónustan hefur mælst vel fyrir en verkefnið er sannarlega mikið að vöxtum. Merkilegt hefur verið fyrir VR að fá meiri innsýn í stöðu þeirra félagsmanna sinna sem orðið hafa fyrir atvinnumissi. Ljóst er að margir hafa átt um sárt að binda í þeim efnum á síðustu árum og ekki ofsögum sagt að reynt hafi mjög á þolrifin hjá mörgum í því tilliti. Ástæða er til að taka ofan fyrir þeim sem ekki missa móðinn þrátt fyrir atvinnumissi og oft og tíðum árangurslausa atvinnuleit um lengri eða skemmri tíma. Umsóknum ekki svarað Síðustu misserin hafa fá störf verið í boði. Mikið atvinnuleysi samfara þeirri staðreynd veldur því að fjöldinn allur af umsóknum berst um hvert það starf sem auglýst er. Í því ástandi ber alltof mikið á því að umsóknum sé svarað seint og illa – sé þeim yfir höfuð svarað. Eðlilega geta nokkrar vikur farið í yfirferð og meðhöndlun umsókna og þá getur lokaferill ráðn- ingar einnig tekið drjúgan tíma. Hins vegar er með öllu óþolandi ef umsækj- endur fá ekki svar við umsókn sinni, óháð því hvort svar- ið hafi jákvæð formerki eða nei- kvæð. Svörunarleysið getur valdið atvinnuleitendum miklu hugar- angri og við hjá VR tökum heils- hugar undir það með mörgum okkar félagsmanna að það feli hreinlega í sér lítilsvirðingu gagn- vart þeim einstaklingum sem í hlut eiga. Reynsla þeirra sérfræð- inga sem starfa hjá VR að mál- efnum atvinnuleitenda bendir til að þessi framkoma sé algengari hér en í nágrannalöndunum og því má jafnvel segja að svörunarleys- ið sé þjóðlegur ósiður. Þessi plag- siður atvinnurekenda er hins vegar mikill óþarfi og þeir sem eru í leit að nýju starfsfólki þurfa litla sem enga vinnu að leggja á sig til þess að kippa þessum málum í liðinn. Þessi litla ábending felur ekki í sér gagnrýni á alla atvinnurek- endur, því fer fjarri, og margir vinna faglega úr þeim umsóknum sem þeim berast. Þeir taki þessa ábendingu hins vegar til sín sem ástæðu hafa til. Það kostar ekkert að fylgja sjálfsögðum mannasiðum – ekki einu sinni á vinnumarkaði. Mannasiðir á vinnumarkaði➜ Öfl ugt verk- og tækninám er lykilatriði í því að spyrna gegn brottfalli og ná til nemenda svo þeir ljúki námi á framhaldsskólastigi. MENNTUN Björgvin G. Sigurðsson formaður allsherjar- og menntamála- nefndar Alþingis ATVINNA Stefán Einar Stefánsson formaður VR ➜ Í því ástandi ber alltof mikið á því að umsóknum sé svarað seint og illa – sé þeim yfi r höfuð svarað.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.