Fréttablaðið - 14.02.2013, Page 30

Fréttablaðið - 14.02.2013, Page 30
FÓLK|TÍSKA Það vakti athygli hversu margar fyrirsætur voru með skipt í miðju þegar vortískan var kynnt. Arnar Tómasson, hársnyrtir hjá Salon Reykja- vík, er mikill tískuáhugamaður og segir að skýring sé á þessu. „Jú, það er skýring á þessu. Fyrst vil ég þó nefna að miðju- skipting hentar ekki öllum. Fyrirsætur eru undantekning, enda eru þær valdar sér- staklega í starfið og eru andlitsfríðar. Það eru aðeins þeir sem eru með fallegt nef sem þola miðjuskiptingu því hún beinir athyglinni að því. Nefið virðist stærra þegar hárinu er skipt í miðju,“ útskýrir Arnar og bætir við að betra sé að skipta hárinu hálfum sentímetra frá miðjunni. „Það virkar eins og miðjuskipting en at- hyglinni hefur verið beint frá nefinu.“ Hárið virðist vera sítt og frjálslegt hjá mörgum fyrirsætanna eða tekið í hnút í hnakkann. „Þetta er vor- og sumartískan. Fléttur hafa verið vinsælar og sömuleiðis snúðar. Það er þó mismunandi hversu lagnar konur eru við að setja greiðslur í hárið,“ segir Arnar og heldur áfram. „Hins vegar, þegar maður skoðar Dior-haust- tískuna fyrir 2013, eru allar fyrirsætur stutthærðar. Það segir manni að kreppan sé búin og hárið styttist með haustinu.“ Arnar segir ástæðu þessara vinsælda síða hársins þá að konur hafi farið sjaldnar í klippingu á undanförnum kreppuárum. „Stutta hárið þarf miklu meiri umhirðu og nauðsynlegt að snyrta það á fimm vikna fresti. Síða hárið þarf ekki að snyrta nema á þriggja mánaða fresti og kostnaðurinn þar af leiðandi minni. Fólk hefur verið að teygja tímann að koma í klippingu. Sítt hár hefur alltaf verið algengt á þrengingartímum.“ Hann segist horfa bjartsýnn fram á síðsumar og haust. „Ég tel að konur velji aftur stutta hárið og fallega klipp- ingu,“ segir Arnar sem er á leið til Parísar þar sem nýjasta hártískan verður sýnd. „Ég er að fara á sýningu Haute Coiffure Française og mun því vita allt um nýjustu tískuna í næstu viku.“ ■ elin@365.is SKIPT Í MIÐJU KREPPUHÁR Sýningarstúlkur hjá helstu tískuhúsum heimsins voru síðhærðar og með skipt í miðju þegar vortískan 2013 var kynnt. Sítt hár er einkennandi fyrir kreppu, segir Arnar Tómasson hárgreiðslumaður. STUTTA HÁRIÐ KEMUR Arnar Tómasson segir að með haustinu verði stutta hárið komið aftur eftir nokkuð mörg kreppuár þar sem konur hafa safnað hári. GUCCI GIVENCHY VALENTINO CHANEL MYND/AFP ■ GJAFIR Valentínusardagurinn er í dag. Þessi dagur er helgaður ástinni og á uppruna sinn í Evrópu á 14. öld. Dagurinn er alltaf haldinn 14. febrúar á degi heil- ags Valentínusar. Í Bandaríkjunum, Bretlandi og Frakk- landi hefur það lengi verið til siðs að færa ástinni sinni gjöf á þessum degi. Önnur lönd hafa á undan- förnum árum tekið þennan sið upp. Á Ís- landi höfum við hins vegar bóndadag og konudag og finnst því mörgum óþarfi að bæta Valentínusardegi við. Það er þó ávallt í lagi að tjá ást sína á einhvern hátt, jafnt þennan dag sem aðra. Falleg rós kætir og það gera sömuleiðis súkkulaðihúðuð jarðarber. DAGUR ÁSTARINNAR 10.000 dúnsængur Við fögnum 10.000 ánægðum viðskiptavinum og bjóðum fleiri í hópinn með risatilboði á öllum dúnsængum. Settu nafnið þitt í pott í verslun og þú getur unnið sæng fyrir alla fjölskylduna Mind Xtra 1.000 • 3.000 • 5.000 AÐEINS 3 VERÐ Á ÚTSÖLUVÖRUM SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR Erum við hliðina á Herra Hafnarfirði á 2. hæð. S. 572 3400

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.