Fréttablaðið - 14.02.2013, Síða 32
FÓLK|TÍSKA
Löng, farsæl reynsla og sanngjarnt verð er lykillinn að vinsældum fermingarhlaðborða veisluþjónustu Magnúsar Inga Magnússonar,
veitingamanns á Sjávarbarnum. „Við leggjum
áherslu á hefðbundin, klassísk hlaðborð þar sem
gæðin eru í fyrirrúmi,“ segir Magnús Ingi. „Ánægð-
ir viðskiptavinir hafa sagt við mig að það væri
jafnvel dýrara að sjá sjálfir um veisluna, fyrir utan
vinnuna og stressið sem því fylgir.“ Heitt og kalt
hlaðborð kostar aðeins 1.990 kr. á mann og kaffi-
hlaðborð 1.690 krónur. „Ég legg áherslu á að veita
faglega ráðgjöf og setjast niður með viðskipta-
vinunum svo að ekkert fari á milli mála hverjar
óskir þeirra eru. Hægt er að halda veisluna hjá
okkur en við komum líka með veislu föngin í
heimahús eða veislusalinn.“ Nánari upplýsingar,
meðal annars um alla réttina á hlaðborðunum, er
að finna á vef Sjávarbarsins, sjavarbarinn.is.
Leikkonan og framleiðandinn Lena
Dunham, sem flestir þekkja úr
þáttunum Girls, hefur tekið að sér nýtt
og spennandi verkefni eftir því sem
fram kemur á vefsíðu Vogue.
Hún mun, ásamt Jenni Konner,
öðrum framleiðanda Girls, vera að
vinna að nýjum grínþætti um tísku-
heiminn. Þátturinn mun bera heitið
„All dressed up and everywhere to
go“ og verður byggður á minningum
hinnar 85 ára gömlu Betty Halbreich.
Halbreich þessi er persónulegur
aðstoðarmaður kaupenda og er
fræg fyrir að hafa árið 1976 stofnað
fyrstu slíku þjónustudeildina í lúxus-
deild stórverslunar. Hún hefur klætt
stjörnur á borð við Meryl Streep og
Söruh Jessicu Parker. Hún aðstoðaði
einnig við að hanna heildarmynd sjón-
varpsþáttanna Sex and the City.
Hún er þekkt fyrir heiðarleika og
fyndni svo og gott auga fyrir tísku og
stíl.
Sjónvarpsstöðin HBO hefur keypt
réttinn að endurminningum Halbreich
og tilkynnt um aðkomu Dunham
að verkefninu. Ekki hefur þó verið
gefið út hvenær von er á þáttunum á
skjáinn.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
FAGLEG RÁÐGJÖF
„Við leggjum áherslu
á hefðbundin, klass-
ísk hlaðborð þar sem
gæðin eru í fyrirrúmi,“
segir Magnús Ingi.
KLASSÍSK HLAÐBORÐ
Sjávarbarinn kynnir
DUNHAM Lena Dun-
ham vinnur að nýjum
sjónvarpsþáttum sem
byggðir verða á ævi-
minningum Betty Hal-
breich en sú hefur klætt
ófáar stjörnur í gegnum
árin.
NORDICPHOTOS/GETTY
NÝR GRÍNÞÁTTUR
UM TÍSKUHEIMINN
GOTT VERÐ
Hægt er hafa
samband beint
við Magnús Inga
í síma 696-5900 eða
með tölvupósti,
magnusingi@
gmail.com.
Nýlega sótti Apple-fyrirtækið
um einkaleyfi fyrir sérstökum
skónema sem lætur notandann
vita hvenær tími er kominn til
að fá sér nýja skó. Nemanum er
komið fyrir í botni, hæl eða sóla
skósins. Hann skynjar þegar
skórinn er í notkun og leggur
saman tímana. Eftir fyrir fram
ákveðinn tímafjölda, til dæmis
500 klukkutíma notkun, byrjar
neminn að gefa frá sér hljóð-
eða ljósmerki og gefur þannig
til kynna að tími sé kominn
til að fá sér nýja skó. Önnur
möguleg virkni gæti verið sú að
neminn skynji breytt álag eftir
því sem sólinn eyðist og gefi
frá sér hljóð- og ljósmerki. Þar
sem gert er ráð fyrir hátalara í
nemanum væri vel mögulegt að
hann léti notandann vita með
orðum. Svo hver veit nema í
framtíðinni muni skórnir garga
á mann þegar maður á síst von
á því, KAUPTU SKÓ!
KAUPTU SKÓ!
Fyrirlesarar og kennarar
HELGARNÁMSKEIÐ
Valentínusarhelgi, - heilsa, hvíld og gleði
15. – 17. febrúar 4 herb. laus
1. – 3. mars Enn laust – pantið tímanlega
Sími 512 8040 | www.heilsuhotel.is | heilsa@heilsuhotel.is
Ásdís Ragna
Einarsdóttir
grasalæknir
Sigga Kling Ágústa Hildur
Gizurardóttir,
yogakennari
Valentínusarhelgi
HEILSUNÁMSKEIÐ 2013
8. – 22. mars
Heilsunámskeið 2 vikur, uppselt.
SUMARIÐ
3. – 17. maí
Heilsunámskeið 2 vikur,
enn laust
7. – 21. júní
Pantið tímanlega
- vinsælasti tíminn
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín