Fréttablaðið - 14.02.2013, Blaðsíða 35
KYNNING − AUGLÝSING Fermingarkjólar & skór14. FEBRÚAR 2013 FIMMTUDAGUR 3
Það er algengur misskiln-ingur að svartur grenni og klæði af aukakíló,“ segir
Fríða verslunareigandi Curvy.
is. „Þetta snýst allt um að finna
snið sem hæfa vaxtarlaginu og
klæðast litum eða munstrum
sem blekkja augað svo líkaminn
virðist grennri en ella.“
Curvy dásamar mjúkar línur
og er í daglegum tengslum við
nýjustu tískustrauma fyrir yngri
konur.
„Á Íslandi hefur lengi gerst
að stelpur með mjúkar línur
gleymist þegar kemur að tísku-
fatnaði í stærri stærðum. Því
rættist ósk þeirra þegar Curvy
fann frábær vörumerk i sem
framleiða tískufatnað í stærri
númerum svo allar konur geti
notið þess að klæða sig fallega,
óháð aldri,“ segir Fríða sem
einnig á glæsilega kjóla á mæður
fermingarstúlkna sem hún segir
oft vilja líka „skvísa sig upp“ fyrir
fermingardaginn.
„Það sem hefur verið áberandi
vinsælast fyrir fermingardaginn
eru blúndur, bjartir litir, blóm og
munstraðir kjólar. Ég hvet stelp-
urnar til að vera óhræddar við
að máta því útkoman kemur oft
ánægjulega á óvart. Litir geta
til dæmis gjörbreytt útlitinu,
frískað upp litaraftið, gert augun
bjartari og um leið fer fólk að taka
eftir öðru en holdafarinu,“ segir
Fríða. „Okkur finnst ekkert jafn
skemmtilegt og að aðstoða stelp-
urnar við að finna á sig réttu
sniðin og fötin sem henta þeim
best.“
Fríða segir fermingarkjóllinn
ekki eiga að vera málamiðlun og
að stelpur eigi ekki að sætta sig
við að klæðast því skásta sem þær
finna.
„Sjálf átti ég í miklum erfið-
leikum með að finna fermingar-
kjól á sínum tíma því lítið var í
boði fyrir stelpur í stærðum 42
og yfir. Því var farið búð úr búð
en ekkert fannst í hefðbundnum
tískuverslunum og það hjálpaði
ekki sjálfstraustinu.“
Fríðu finnst miklu skipta að
stelpur sem koma í Curvy líði vel
í fötum sínum, séu ánægðar með
sig og fari sáttar út.
„Það er einstaklega gefandi
að sjá þær ljóma þegar þær loks
finna föt á sig og hafa meira að
segja úr úrvali fallegra klæða að
velja. Jafnvel þótt maður sé með
einhver aukakíló þýðir það ekki
að maður geti ekki verið f lottur.
Ég finn það bara sjálf þegar ég hef
tekið mig aðeins til og er komin
í föt sem klæða mig vel. Þá líður
manni svo miklu betur með
sjálfan sig. Það er öfundsvert að
líða vel í eigin skinni, burtséð frá
holdafari, og slíkt sjálfstraust er
aðlaðandi og skín í gegn.“
Curvy.is er í Nóatúni 17 . Kíktu
líka á www.curvy.is eða á Fa-
cebook-síðuna hjá Curvy www.
facebook.com/curvychic.
Útgeislunin segir allt
Tískuverslunin Curvy.is er himnasending fyrir stelpur og ungar konur sem vilja tolla í tískunni og vera flottar til fara. Þar fæst nú heillandi
úrval sumarlegra og fallegra fermingarkjóla fyrir stúlkur sem nota stærðir 42-58 og vilja skarta sínu fegursta á fermingardaginn.
Blómamunstur og bjartir litir eru
hæstmóðins í vor og sumar.
Stelpur og ungar konur með mjúkar línur
hafa úr mörgu og flottu að velja í Curvy.
Fríða opnaði Curvy.is fyrst sem netverslun árið 2011 en í október 2012 opnaði hún glæsilega tískuverslun í Nóatúni 17. MYNDIR/VILHELM