Fréttablaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 2
11. mars 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Davíð Óskar, er þetta ekki algjört „Mystery“? „Maður hefði haldið að land sem ber nafnið Ísland gæti útvegað snjó, þannig að jú, þetta er algjör ráðgáta.“ Davíð Óskar Ólafsson hjá fyrirtækinu Mys- tery sem heldur utan um kvikmyndina Málm- haus. Mikið snjóleysi á Suðurlandi hefur tafið tökurnar. SKIPULAGSMÁL Hópur unglinga hefur undanfarið safnast saman í niðurníddu húsi í Hjartagarðinum, gamla Hljómalindarreitnum við Laugaveginn, og haldið þar partí um helgar. Þegar ljósmyndari Frétta- blaðsins kom á staðinn síðla á laugar dagskvöld hafði nokkurn fjölda ungmenna drifið að. Þau biðu þess að komast inn í húsið. Lögreglan hefur verið beðin um að koma og rýma húsið að minnsta kosti einu sinni. „Það getur verið að það hafi ein- hverjir verið undir lögaldri í hópnum,“ segir miðborgar stjórinn Jakob Frímann Magnússon. Hann segir hættulegt að vera í húsinu því gólfin séu óörugg og þökin líka. „Það er margoft búið að negla fyrir hlera en þau virðast alltaf finna sér leiðir þarna inn,“ segir hann um unglingana sem venja komur sínar þangað. „Það er búið að aftengja rafmagn og hita og þarna eru fúlir innviðir sem geta hlotist alvarleg slys af ef menn falla á milli hæða. Það er heldur ekki ólíklegt að eitthvað kvikt sé búið að koma sér þarna fyrir.“ Jakob segist skilja vel að ungling- ar vilji hittast um helgar og halda partí en þetta hús sé ekki heppilegt til þess. „Fyrir unglinga undir átján ára er alltof lítið í boði til afþrey- ingar í miðbænum. Það er eins og það nenni enginn að standa fyrir svona starfsemi fyrir ungt fólk.“ Unglingar hafa fengið að stunda veggjakrot í Hjartagarðinum og leika sér á hjólabrettum, auk þess sem menningarstarfsemi hefur farið þar fram á sumrin. „Þetta hefur verið mjög kærkom- ið athvarf fyrir ungt fólk, sérstak- lega þá sem eru í heimi veggjalist- ar, hjólabretta og tónlistar,“ segir Jakob Frímann. Húsin hafa verið í eigu Lands- bankans en voru nýverið seld fyrirtækinu Þingvangi sem ætlar að hefja fram- kvæmdir um næstu mánaðamót. Jakob Frímann vonast til þess að nýju eigendurnir verði í sam- starfi við borgina um að hafa einhvers konar borgartorg á svæðinu þar sem Hjarta garðurinn er núna. „Því hefur verið vel tekið en það er ekki búið að fast- setja hvers eðlis það verður.“ freyr@frettabladid.is Ungmenni skemmta sér í hættulegu húsi Lögreglan hefur þurft að rýma niðurnítt hús við Hjartagarðinn í miðborginni. Hópur unglinga hefur undanfarið stundað partíhald í húsinu um helgar. Miðborg- arstjóri segir hættulegt að vera í húsinu, þök og gólf séu óörugg og innviðir fúnir. UNGLINGAR Í PARTÍHUG Unglingar í Hjartagarðinum biðu eftir því síðastliðið laugardagsvöld að þeim yrði hleypt inn í húsið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Það er búið að aftengja rafmagn og hita og þarna eru fúlir innviðir sem geta hlotist alvarleg slys af ef menn falla á milli hæða. Jakob Frímann Magnússon PÁFAGARÐUR Þrátt fyrir þá leynd, sem hvílir yfir páfakjöri, telja fréttaskýrendur nokkuð ljóst að efni úr leyniskýrslu, sem Benedikt XVI. lét gera á síðasta ári, muni hafa veruleg áhrif á valið. Páfi fól þremur kardínálum að rannsaka leka úr Páfagarði til fjöl- miðla, sem afhjúpaði spillingu sem tengdist verktakavinnu í Páfagarði. Rannsóknin leiddi ýmislegt fleira misjafnt í ljós, þar á meðal til- vist leynilegra samtaka samkyn- hneigðra þjóna kirkjunnar í Róm. Kardínálarnir 115, sem á morgun verða lokaðir inni þangað til þeir hafa komist að niðurstöðu um næsta páfa, munu væntanlega spyrja ítar- lega út í efni skýrslunnar. Ef í ljós kemur eftir á að þeir hafi valið kardínála sem tengdist ein- hverjum þeim myrkraverkum sem um er getið í skýrslunni gæti það nefnilega haft afar slæm áhrif fyrir næsta páfa og kaþólsku kirkjuna í heild. Og er varla á bætandi eftir hremmingar síðustu ára vegna kyn- ferðisbrotamála. - gb Upplýsingar úr leyniskýrslu til páfa gætu ráðið úrslitum í páfakjörinu: Kardínálar vilja sjá leyniskýrslu FJÖLMIÐLAR Sunna Valgerðardóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu, var verðlaunuð fyrir bestu umfjöllun ársins. Þá hlaut Gunnar V. Andrésson, ljósmyndari á Fréttablaðinu, verðlaun fyrir bestu umhverfisljós- mynd ársins. Blaðamannaverðlaun ársins 2012 voru afhent í Gerðarsafni á laugardag. Það er Blaðamannafélag Íslands sem veitir verðlaunin. Sunna hlaut verðlaunin fyrir „áhrifamikla, heild- stæða og vel unna röð fréttaskýringa um stöðu geð- sjúkra“, eins og segir í rökstuðningi dómnefndar: „Fréttaskýringaflokkur Sunnu tók með yfirgrips- miklum hætti á flóknu og vandasömu vandamáli sem skoðað var frá mörgum hliðum.“ Jóhann Bjarni Kolbeinsson, fréttamaður á RÚV, hlaut verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins og Sigmar Guðmundsson í Kastljósinu fékk verðlaun fyrir viðtal ársins. Það var svo Ragnar Axelsson, ljósmyndari á Morgunblaðinu, sem fékk blaðamannaverðlaun ársins fyrir umfjöllun og myndir af stórum pollum á Grænlandsjökli sem voru til marks um óvenju mikla bráðnun jökulsins. - gb Sunna Valgerðardóttir á Fréttablaðinu hlaut Blaðamannaverðlaun: Verðlaunuð fyrir fréttaskýringar VERÐLAUNAHAFAR 365 MIÐLA Baldur Hrafnkell Jónsson kvikmyndatökumaður, Sunna Valgerðardóttir blaðamaður, Gunnar V. Andrésson ljósmyndari og Egill Aðalsteinsson kvik- myndatökumaður. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GRÆNLAND Tónlistarhúsið í Kulusuk á Grænlandi gjöreyðilagðist í eldi í gærmorgun. Slökkvilið bæjarins fékk ekkert við ráðið vegna veður- ofsa. „Húsið var gamalt timburhús sem einn af kennurum bæjarins, Henrik Plötzsch, hafði eytt miklum tíma í að gera upp núna í vetur,“ segir Hjörtur Smárason, sem býr í Kaupmannahöfn en hefur unnið við að markaðssetja ferðaþjónustu á svæðinu. Að sögn grænlenska dagblaðsins Sermitsiaq vaknaði nágranni um sexleytið að morgni við hávaða í eldvarnarbjöllu hússins. Eitt versta óveður sem komið hefur á þessum slóðum var þá í hámarki. Hjörtur segir íbúa bæjarins telja líklegast að kviknað hafi í húsinu út frá skor- steini þegar hann fauk í óveðrinu. - gb Eldsvoði í Kulusuk á Grænlandi: Tónlistarhús eyðilagðist í eldi LOGAÐI GLATT Talið er að kviknaði hafi í út frá skorsteini í óveðri sem geisaði. MYND/LARS-PETER STERLING STROMPURINN SETTUR Á SINN STAÐ Slökkviliðsmenn unnu að undirbúningi páfakjörs á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FERÐAÞJÓNUSTA Örlygur Hnefill Örlygsson, hótelstjóri á Húsavík, vill að Íslendingar geri sér meiri mat úr bandarískum geimförum sem komu hingað til lands til að búa sig undir tunglferðir. Alls komu níu af þeim tólf mönnum sem lentu á tunglinu hingað til lands árin 1965 og 1967. Einn geimfaranna laumaði íslenskum 25-eyringi með sér til tunglsins. Talið er að þetta sé eini peningurinn sem farið hefur verið með í slíka ferð. - gb Sér möguleika í geimförum: Vill reisa styttu af Armstrong LÖGREGLUMÁL Maður varð fyrir tilefnislausri líkamsárás í Grafar vogi á laugardagskvöldið. Hann fékk hnefahögg í andlitið og hlaut slæma áverka. Meðal annars brotnuðu í honum tennur. Maðurinn, sem er á tvítugs- aldri, ók bifreið sinni um hverfið og tók þá eftir því að önnur bifreið elti hann. Þegar hann stöðvaði bifreiðina kom öku- maður hinnar bifreiðarinnar einnig út og réðst á hann. Árásar- maðurinn ók síðan af vettvangi og var hans leitað í gær. - gb Líkamsárás í Grafarvogi: Árásarmanns leitað í gær STJÓRNMÁL Atli Gíslason og Bjarni Harðarson vinna nú að stofnun framboðslista sem á að heita Regnboginn – fyrir sjálf- stæði Íslands og sjálfbæra þróun. Í frétt á vefsíðu Suðurfrétta segir að Bjarni hafi verið á Eyrar- bakka að safna undir skriftum til að geta sótt um listabókstaf. Atli sagði í samtali við Suðurfréttir að hér væri um að ræða regnhlífar- samtök. Atli vildi ekki tjá sig um málið þegar fréttastofa Vísis hafði samband við hann í gær. Ekki náðist í Bjarna. - gb Atli og Bjarni í framboð: Undirbúa nýjan framboðslista SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.