Fréttablaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 21
GULT FYRIR MARS
Páskarnir verða í lok mánaðarins svo það er orðið tíma-
bært að byrja á páskaföndrinu. Að minnsta kosti hjá þeim
sem eru vel skipulagðir. Gulur er litur páskanna þótt aðrir
pastellitir séu vel gjaldgengir. Þessir litir eru tískulitir
vorsins svo það fer ágætlega að skreyta með þeim.
KRAUM Margt
nýtt verður í boði í
versluninni Kraumi á
HönnunarMars að sögn
Höllu Bogadóttur fram-
kvæmdastjóra.
MYND/GVA
LAUFABRAUÐS-
HNÍFUR Kolbeinn
Ísólfsson sá um hina nýju
hönnun og Vélvík smíð-
aði gripinn, sem verður
einungis seldur í Kraumi.
Hlutir sem tengjast arfleifð Ís-lendinga eru forsvarsmönnum Kraums hugleiknir. Þannig settu
þeir á markað nýja íslenska pönnu-
kökupönnu fyrir tveimur árum og nú er
röðin komin að laufabrauðsjárninu.
„Fyrir HönnunarMars í hitteðfyrra
langaði okkur að taka einhvern þjóð-
legan hlut sem mætti hanna á nýjan
hátt. Þá datt mér í hug pönnuköku-
pannan,“ segir Halla Bogadóttir, fram-
kvæmdastjóri Kraums í Aðalstræti
10, gamla fógetahúsinu. „Á þeim tíma
vorum við nokkrir hönnuðir saman á
bókamessunni í Frankfurt og það kvikn-
aði sú hugmynd að fá þessa hönnuði til
að hanna nýtt skaft á pönnuna. Fram að
því hafði það verið innflutt en pann-
an sjálf steypt á Íslandi. Við fengum
Málmsteypuna á Hellu í lið með okkur
og listasmiðinn Mugga til að smíða
skaftið,“ lýsir Halla, en framtakið vakti
mikla lukku og athygli.
„Á sama tíma og pannan kom út
urðum við þess áskynja að það vantaði
tilfinnanlega laufabrauðsjárn. Fyrir jólin
hringdi fólk stöðugt í leit að slíku járni,
en aðeins örfáir aðilar hafa smíðað slík
og í litlum mæli,“ segir Halla. Því varð
úr að Kraum fékk nýútskrifaðan vöru-
hönnuð, Kolbein Ísólfsson, til að hanna
nýtt skaft á slíkt járn. „Járnið verður
síðan smíðað hjá Vélvík, sem er eitt
fullkomnasta renniverkstæði á landinu
með tölvustýrðar vélar. Skurðjárnið
sjálft er klassískt en aðalmarkmiðið er
að ná góðu biti á það. Allt járnið er úr
messing og fer handfangið vel í hendi,“
segir Halla, en von er á fyrstu járnunum
í verslunina í dag. Það verður einungis
til sölu hjá Kraumi og mun kosta í
kringum tuttugu þúsund krónur.
Margt annað nýtt verður á boð-
stólum hjá Kraumi á HönnunarMars.
Þar má nefna nýja
tegund af loft-
ljósum, nýjar
töskur og púða,
nýtt skart og tvo nýja fatahönnuði.
Opnunarhóf Kraums verður föstu-
daginn 15. mars frá klukkan 20 til 22
en nánari upplýsingar um uppákomur
má skoða á www.kraum.is og á www.
honnunarmars.is. ■ solveig@365.is
NÝTT JÁRN FYRIR
LAUFABRAUÐIÐ
HÖNNUN Verslunin Kraum hefur látið hanna og smíða nýtt laufabrauðsjárn.
Kolbeinn Ísólfsson sá um hönnunina og Vélvík um smíðina.