Fréttablaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 12
11. mars 2013 MÁNUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 AÐALFUNDUR HÚSEIGENDAFÉLAGSINS Aðalfundur Húseigendafélagsins 2013 verður haldinn föstudaginn 22. mars n.k. salur Ásatrúarfélagsins, Síðumúla 15, Reykjavík og hefst hann kl. 16:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. Stjórnin. S igmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar- flokksins, var í viðtali við Fréttablaðið á laugardag. Þar sagði hann frá þeim tveimur málum sem flokkurinn hans ætlar að leggja alla áherslu á í aðdraganda kosninga: skuldaafskriftir og afnám verðtryggingar. Í viðtalinu skaut Sigmundur á að skuldaafskriftirnar myndu kosta um 240 milljarða króna. Til að setja þá tölu í samhengi er hún 41,4 prósent af öllum áætluðum tekjum ríkissjóðs á árinu 2013. Sigmundur vill helst að kostnaður lendi „á þeim sem hafi hagnast á hruninu“. Síðar í viðtalinu kemur í ljós að þar á hann við kröfuhafa föllnu bankanna, sem hann ályktar að séu að mestu illir vogunarsjóðir. Að mati formannsins er bæði „réttlætan- legt“ og „framkvæmanlegt“ að gera ágóða þeirra upptækan og nota hann til að borga niður íslenskar húsnæðisskuldir. Þessar hugmyndir Sigmundar eru því miður með öllu óraun- hæfar. Hér er verið að boða klára þjóðnýtingu erlendra eigna kröfuhafa. Allar niðurfærslur á krónu- eignum kröfuhafa fara nefnilega í að vinna á snjóhengjuvand- anum. Þetta hlýtur formaður stjórnmálaflokks að vita. Og hann hlýtur líka að vita að það er ekki hægt að nota sama féð tvisvar. Því brjóta þessar tillögur gegn 72. grein stjórnarskrár landsins. Þar segir: „Eignarrétturinn er friðhelgur“. Þær eru líka í algjörri andstöðu við almennar leikreglur réttarríkisins og brot á alþjóða- samningum sem Ísland hefur skuldbundið sig til að virða. Sigmundur virðist þó að einhverju leyti meðvitaður um að þessi leið er líklega ekki gerleg þegar stigið er út úr draumheimum og viðurkennir að skuldaniðurfellingar gætu þýtt að „einhver lang- tímakostnaður lendi á ríkissjóði […] Sá langtímakostnaður verður hins vegar, áður en hann fellur til, veginn upp af efnahagslegum ávinningi“. Sigmundur réttlætir þannig útgjöld ríkissjóðs, sem mögulega geta hlaupið á hundruðum milljarða, og greiðast ekki nema með aukinni skattheimtu eða frekari niðurskurði, með því að lofa ávinningi sem hann getur ekki sagt hver er og hann hefur engar forsendur til að áætla að verði til. Af einhverjum ástæðum er afnám verðtryggingar vinsælt kosningamál hjá Framsóknarflokknum. Hugmyndirnar snúast bara um að banna ný verðtryggð útlán, sem flestir neytendur eru hvort eð er búnir að hafna með tilkomu nýrra óverðtryggðra lána. Til að barna kosningamálið, eða flækja það enn meira, þá segir Sigmundur að honum þyki óskiljanlegt „hve vextir á verð- tryggðum lánum séu háir“. Honum hefði verið nær að fletta upp hver vaxtamunur Íbúðalánasjóðs, langstærsta veitenda verð- tryggðra lána, er áður en hann lét út úr sér slíka staðhæfingu. Hann er 0,27 prósent. Viðtalið við Sigmund bendir því miður til þess að þar fari maður sem hafi ekki eytt miklum tíma í raunveruleikanum. Sama hversu vel það hljómar í eyrum skuldugra heimila að hlusta á loforð hans þá er orðið tímabært að allir sjái að keisarinn er ekki í neinum fötum. Þegar raunveruleikanum er stungið í samband og gereyð- ingarmáttur kosningavíxla Framsóknarflokksins er metinn þá er algjörlega ljóst að þeir munu hafa fleiri neikvæðar afleiðingar en jákvæðar. Þingmenn flokksins geta kallað þá sem á slíkt benda þjóðníðinga, föðurlandssvikara eða hrægammasjóðagrúppíur. Það breytir því ekki að flokkurinn er úlfur í sauðagæru. Og hver þarf á óvini að halda þegar hann á vin eins og Framsókn? Tillögur Framsóknar gætu valdið miklum skaða: Óvinur nr. 1 Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is Fyrir um ári síðan ritaði ég grein og birti opinberlega þar sem ég rakti fyrir samgönguráðherra þvílíkt ábyrgðar- leysi það væri að skera svo hastarlega niður viðhaldsfé Vegagerðarinnar að vegakerfið væri í stórhættu. Fram- lög til viðhalds vega hafa nú í fjögur ár verið undir helmingi þess sem talið er eðlilegt. Vegagerðin sjálf hefur metið að uppsöfnuð þörf fyrir viðhald sé 8-10 milljarðar eftir þessi hörmungarár. Fyrir um einu og hálfu ári fór fulltrúi fyrirtækja sem starfa við vegagerð og fulltrúi Samtaka iðnaðarins á fund samgöngunefndar þingsins. Þingmenn hlustuðu brúnaþungir á okkur útlista hættuna af því að halda ekki við slitlagi á þjóðvegum landsins. Ef það brotnar upp og burðarlag veganna skemmist kostar allt að tíu sinnum meira að gera við þann veg en ef slitlaginu er við- haldið eðlilega. Því í raun er um nýbygg- ingu vegar að ræða þegar slíkt gerist. Það var engu líkara en okkur væri ekki trúað. Embættismenn Vegagerðarinnar fóru margar ferðir með betlistaf til að útskýra hættuna og afleiðingar þess að gera ekki neitt. Árangur enginn. Hvorki þingmenn né samgönguráðherra sjálfur sáu ástæðu til að forgangsraða upp á nýtt í kerfinu svo bjarga mætti verð- mætum. Nú hrynja vegirnir hver af öðrum, Vestfjarðavegur, Súðavíkurhlíð, Þver- árfjall, og sjálfur þjóðvegur 1 er mjög víða illa farinn. Það var lokað fyrir fiskflutninga frá Vestfjörðum, það er nánast ófært fyrir smábíla um þjóðvegi milli bæja. Það er búið að vinna stór- tjón. Vegagerðarmenn og verktakar eru ekki hávær hópur og kannski er það ástæðan fyrir því að ríkistjórnin komst upp með að skera niður meira en 50% af út gjöldum til vegamála meðan annars staðar voru látnar duga eins stafs tölur. En kannski er öllum sama? Það er að koma nýtt kjörtímabil og þá kemur núverandi samgönguráðherra þetta í öllu falli ekki lengur við. Eigum við að spara til enn meira tjóns ? Sparað til enn meira tjóns SAMGÖNGUR Sigþór Sigurðsson Formaður Mann- virkis, félag bygg- inga- og jarðvinnu- verktaka í SI ➜ Ef það brotnar upp og burðarlag veganna skemmist kostar allt að tíu sinnum meira að gera við þann veg en ef slitlaginu er viðhaldið eðlilega. Saknar þjóðhagsstofnunar DV hefur fengið hinn sjóaða pólitíkus Svavar Gestsson til að skrifa um stjórn- mál fram yfir kosningar. Svavar hefur marga fjöruna sopið, var þingmaður frá 1978 til 1999, lengstum fyrir Alþýðubandalagið en undir lokin Sam- fylkinguna, ráðherra um nokkurra ára skeið og formaður Alþýðubanda- lagsins. Svavar fer í fyrstu grein sinni yfir stefnumál stjórnmálaflokk- anna og vegur og metur. Þar er margt áhugavert að finna, en athyglisverðastur er þó söknuður hans yfir Þjóðhags- stofnun. „Fyrr á árum hafði Þjóðhagsstofnun það hlutverk að reikna út tillögur stjórnmálaflokkanna.“ Það er ágætis ábending, eftir að Davíð Oddsson lagði stofnunina niður er enginn óháður aðili sem fer yfir stefnumál flokka og reiknar út hvað þau kosta. Ríkis stjórnin hefur ekki séð þörf á að endurvekja þá stofnun. Frá kjördæmi til kjördæmis Stjórnarliðarnir Steingrímur J. Sigfús- son og Björgvin G. Sigurðsson eru ekki sammála um hvort það að veita sérstakar íviln- anir vegna verkefna á Bakka þýði að sömu ívilnanir verði veittar vegna verkefna í Helguvík. Steingrími finnst ekki, en Bakki er í hans kjördæmi, Björgvin finnst það, en Helguvík er í hans kjör- dæmi. Skýrar línur dofna Katrín Júlíusdóttir fjármálaráðherra ræddi oft um það, þegar hún var iðnaðarráðherra, að skýrar línur yrðu að vera varðandi erlend fjárfestinga- verkefni. Fjárfestar yrðu að vita að hverju þeir gengu og lög um ívilnun vegna erlendrar fjárfestingar voru sett til að skýra línurnar. En, nú eru kosningar í nánd og ráðamenn þurfa að nikka til kjósenda í kjördæmi sínu. Línurnar skýru hafa því aðeins dofnað. kolbeinn@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.