Fréttablaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 20
KYNNING − AUGLÝSINGEldunartæki MÁNUDAGUR 11. MARS 20132 1 Framtíðin kallar Hugmyndaeldhúsið frá Ora-Ito sem hannað var fyrir Gorenje var kynnt um alla Evrópu árið 2007. Hinum sérstæða eldhús- kubbi var komið fyrir í gömlum mið- bæjum þar sem vegfarendur gátu litið nýjustu tækni í eldhúsgeiranum. Þetta framtíðar- eldhús fór aldrei í almenna fram- leiðslu en fólk gat sérpantað slíkt. 2 Í lausu lofti Naumhyggja einkennir 36E8-eldhús- eininguna frá Lago. Litríkir skáparnir eru allir veggfestir og virðast svífa í lausu lofti. 3 Gler og glæsileiki Isolar Linear-eldhúsið frá Toyo er glæsilegt. Nútímaleg hönnunin gerir það að verkum að mikið gólfpláss spar- ast. Geymslurýmið er hins vegar af skornum skammti enda fremur hugað að útliti en hagnýtri notkun. 4 Í litlu rými Circle® Kitchen frá Compact Concepts hentar sérlega vel þar sem pláss er af skornum skammti. Það nær yfir að- eins 1,8 fermetra en býr yfir öllu því sem venjulegt eld- hús þarf. Eldhúsið er hringlaga og hægt að snúa því 180 gráður. Í því eru allt frá vaski og diskum til örbylgjuofns og uppþvottavélar. Eldhús hugmyndanna Eldhús er ekki það sama og eldhús. Þó að flestir kjósi hina hefðbundnu leið geta þeir sem vilja skera sig úr valið eldhús með óhefðbundinni hönnun líkt og þau sem hér eru nefnd. Fyrirtækið Fastus selur fjöl-breytt úrval gæðavara frá leiðandi framleiðendum á sviði eldunartækja. Þar má meðal annars nefna eldhústæki frá Convo therm, Hounö, Metos, Ilsa, Wexiödisk, Hobart, Taylor og fleiri aðilum að sögn Arnar Guðmunds- sonar, deildarstjóra fyrirtækja- sviðs Fastus. „Sala á búnaði til at- vinnueldhúsa er stór hluti af starf- semi okkar. Fastus býður einnig upp á fjölbreytt úrval af borð- búnaði frá mörgum birgjum. Þar má nefna fremstan í flokki glasa- framleiðandann Arc International og postulín frá RAK og Figgjo sem eru þekkt gæðamerki auk þess sem við seljum einnig hnífapör frá ýmsum gæðaframleiðendum. Húsgögn, innréttingar, þvottavél- ar og annar búnaður fyrir þvotta- hús eru einnig mikilvægar sölu- vörur hjá Fastus. Eins og sjá má komum við víða við og bjóðum upp á breitt vöruúrval fyrir ólík- ar gerðir fyrirtækja en við höfum lengstum sérhæft okkur í hótel- og veitingageiranum ásamt mötu- neytum og atvinnueldhúsum.“ Hjá Fastusi starfa tæplega 30 starfsmenn og hafa þeir víð- tæka reynslu úr hinum ýmsu at- vinnugreinum. „Hér starfa meðal annars matreiðslumeistarar og tæknimenn við bæði sölustörf og ráðgjöf sem kemur sér vel fyrir fjölmarga viðskiptavini okkar. Einnig er hönnun og ráðgjöf í sam- starfi við arkitekta, veitingamenn og aðra hönnuði stór hluti af starfi sölumanna Fastus.“ Viðskiptavinir Fastus eru mjög fjölbreyttir og koma úr ólíkum atvinnugreinum, allt frá skipa- útgerðum og þvottahúsum til bakaría og matvælafyrirtækja. „Skólamötuneyti og önnur mötu- neyti eru einnig fjölmennur og mikilvægur viðskiptamanna hópur hjá okkur sem og hótel og önnur starfsemi tengd ferðaþjónustu.“ Að sögn Arnar er viðgerða- og varahlutaþjónusta Fastus mjög mikilvægur hluti starfseminnar. „Við erum í samstarfi við fyrir- tækið X-Tækni ehf. sem hefur á að skipa úrvalsmannskap með ára- tuga reynslu í þjónustu á þessum markaði. Viðskiptavinir okkar eru því í góðum höndum þar.“ Meðal nýlegra verkefna sem Fas- tus er að vinna að eða hefur verið að vinna að undanfarna mánuði eru til dæmis ný eldhús í Sjúkra- húsi Ísafjarðar, hjá ISS ehf., hjá Rauðku ehf. og hjá Marina hóteli. „Ekki má gleyma heilbrigðis- geiranum en stór hluti starfsemi okkar fer í að þjóna honum. Þar höfum við á að skipa úrvals starfs- fólki eins og annars staðar en í þeirri deild starfa meðal annars hjúkrunarfræðingar, l íf fræð- ingur, sjúkraþjálfari, iðjuþjálfi og f leiri sem sérhæfðir eru á þeim markaði.“ Allar nánari upplýsingar um vörur og þjónustu Fastus má nálgast á vef fyrirtækisins, www.fastus.is. Fagmennskan í fyrirrúmi Fastus þjónar mörgum ólíkum atvinnugreinum og býður upp á gott úrval eldunartækja frá vönduðum framleiðendum. Starfsmenn fyrir - tækisins hafa víðtæka reynslu úr ýmsum atvinnugreinum. Viðgerða- og varahlutaþjónusta Fastus er einnig mikilvægur hluti starfseminnar. Fastus er staðsett í Síðumúla 16 í Reykjavík. Opið er alla virka daga milli 8.30-17.00. MYND/ÚR EINKASAFNI Söluteymið á fyrirtækjasviði er skipað úrvals starfsfólki. Örn Guðmundsson er lengst til hægri. MYND/ÚR EINKASAFNI 1 3 2 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.