Fréttablaðið - 11.03.2013, Side 15
MÁNUDAGUR 11. mars 2013 | SKOÐUN | 15
Í mínu daglega starfi kem
ég oft að málefnum barna
með misalvar legar geð-
raskanir og þekki því
mjög vel þá þröskulda sem
mæta bæði börnum og for-
eldrum. Það er mín til-
finning að á undanförnum
árum hafi þeim börnum
fjölgað sem sýna ýmiss
konar kvíðaraskanir og
vanlíðan. Á hverjum degi
glímir fjöldi fjölskyldna
við vandamál sem fylgja
geðröskun barna og ung-
linga. Fjölskyldur upp-
lifa erfiðleika og vanmátt
við að rekja sig áfram í kerfinu og
leita eftir þeirri aðstoð sem þörf er
á. Það er óásættanlegt að búa við
þær aðstæður að aðeins þau börn
sem eiga mjög erfitt komist nær
fyrirvaralaust til fagfólks, en samt
getur sú bið skipt vikum eða mán-
uðum. Öll börn sem á einhvern hátt
glíma við geðraskanir eiga rétt á
aðgengilegri aðstoð fagfólks. Því
fyrr sem hægt er að grípa inn í og
vinna með barnið, þeim mun lík-
legra er að góður árangur náist.
Framsóknarflokkur álítur að
unnt væri að hjálpa mun fyrr fleiri
börnum og unglingum ef heilsu-
gæslustöðvarnar hefðu á að skipa
teymi sérfræðinga með sálfræð-
ingum og félagsráðgjöfum. Það
þarf að auka stoðþjónustu í grunn-
og framhaldsskólum; náms- og
starfsráðgjöf og félagsráðgjöf en
jafnframt auka aðgengi að sál-
fræðingum og skólahjúkrunar-
fræðingum. Það er ekki nægilegt
að sinna aðeins veiku barni. For-
eldrar þurfa á góðri ráðgjöf að
halda og systkini þurfa líka sinn
stuðning. Það segir sig sjálft að
fjölskyldutengsl og daglegt líf inni
á heimilum barna með geðrask-
anir fara úr skorðum og oft hefur
ástandið varað árum saman þegar
aðstoð fæst.
Viðvarandi biðlisti
Með reglulegu millibili er rætt
um skort á þjónustu við börn og
unglinga sem glíma við geðræn
vandamál. Fyrr í vetur var rætt
um hugmyndir um að loka aðstöðu
á Sjúkrahúsinu á Akureyri og í
tengslum við þá um fjöllun kom
fram að á Barna- og unglingageð-
deildinni – BUGL – er viðvarandi
biðlisti, allt að ári. Ef af lokun
verður fyrir norðan má gera ráð
fyrir að álagið aukist enn frekar
á BUGL og biðlistar lengist en
að jafnaði má reikna með að um
hundrað börn séu á biðlista. Í dag
er aðeins hægt að aðstoða þau börn
sem að mati sérfræðinga á BUGL
glíma við hvað erfiðastan vanda.
Önnur börn, sem ekki eru eins
illa stödd, fá ekki aðstoð þó svo
að þeirra staða sé slæm og raski á
ýmsa vegu vellíðan og daglegu lífi
þeirra. Í þeim tilfellum verða for-
eldrar að greiða fyrir kostnaðar-
sama þjónustu sálfræðinga og
lækna úti í bæ. Hver vika og hver
mánuður sem líður án þess að
veikt barn fái hjálp er óviðunandi.
Þeir sem eiga börn með geðrask-
anir eða vinna með krökkunum
finna sárlega fyrir skorti á úr-
ræðum og þjónustu. Með þessu
er á engan hátt verið að hallmæla
því starfi sem fagfólk er að sinna
dagsdaglega, heldur verið að vekja
athygli á því að enn betur þarf að
sinna þessum málaflokki.
Efla ætti nærþjónustu
Það þarf að grípa sem fyrst inn í
ef barn eða unglingur sýnir merki
röskunar á geði. Almennur kennari
í leik-, grunn- eða framhaldsskóla
hefur litla sem enga sérþekkingu á
meðhöndlun geðraskana. Öll skóla-
stig reyna eftir bestu getu að sinna
þessum nemendum en eins og
staðan er í dag er álagið á skólana
gríðarlegt. Skólakerfi okkar er alls
ekki í stakk búið að sinna börnum
með geðraskanir svo vel sé. Þó
svo að börn að 18 ára aldri hafi
aðgang að sálfræðingum á vegum
sveitar félags eru þeir í flestum til-
fellum störfum hlaðnir og biðlistar
mæta þeim sem kalla eftir hjálp.
Síðan tekur við greining vandans
en sjaldnast býðst sérstök
meðferð hjá sálfræðingum
skólanna, málum er vísað
áfram innan kerfisins eða
út til sjálfstætt starfandi
fagfólks.
Í framhaldsskólum er
jafnvel enn erfiðara að
fá aðstoð sálfræðinga og
hjúkrunarfræðinga. Það
er mikið rætt um hátt
brottfall úr framhalds-
skólum og því ekki úr vegi
að spyrja sig hvort skortur
á forvörnum, ráðgjöf og
aðstoð þegar kemur að
geðrænum vandamálum geti átt
sinn þátt í brottfallinu. En í gegn-
um ráðgjöf fá nemendur aðstoð
og ráðleggingar og þar gefst þeim
tækifæri til að tjá sig um líðan
sína og upplifun.
Þó svo að við sem samfélag
verðum að sýna aðhald í útgjöldum
er ég sannfærð um að með aukinni
ráðgjöf og snemmtækri íhlutun
sparist í raun háar upphæðir, fyrir
utan aðalávinninginn, sem er bætt
líðan og geðheilbrigði yngstu kyn-
slóðanna, og það dregur úr álagi
á fjölskyldur. Það er nauðsynlegt
að standa vörð um starf semina
á BUGL. Auk þess endurskoða
skipulag og starfsferla á deildinni,
athuga hvort ekki sé hægt að
tengja enn betur saman þjónustu
sveitarfélaga og ríkis og skoða með
hvaða hætti foreldrar fái stuðning
við að leita til sjálfstætt starfandi
fagfólks. Í samfélagi sem þarf að
forgangsraða fjármunum getur
verið erfitt að velja og hafna en við
höfum ekki rétt á að horfa í hina
áttina þegar kemur að andlegri vel-
ferð barnanna okkar. Við verðum
að vera vel á verði, tryggja góðar
forvarnir, greiningar, úrræði og
eftirfylgd.
Geðheilbrigðismál barna eru forgangsmál
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
9
2
6
Fundur um séreignarsparnað 12. mars
Íslandsbanki og VÍB bjóða á fróðlegan fund um séreignarsparnað.
Fáðu yfirsýn yfir þær fjölmörgu ávöxtunarleiðir sem eru í boði og
vertu klár á réttindum þínum varðandi séreignarsparnað.
Meniga námskeið 14. mars
Á ég rétt á launahækkun?
Hver er munurinn á séreignar- og skyldusparnaði?
Hvenær og hvernig má ég taka séreignina mína út?
Hvernig er sparnaðurinn skattlagður?
Hvaða ávöxtunarleiðir eru í boði?
Fundurinn er öllum opinn og verður haldinn í útibúi Íslandsbanka
á Kirkjusandi. Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Þriðjudaginn 12. mars kl. 16.30 - 17.30
Næsta námskeið verður í húsnæði Íslandsbanka á
Suðurlandsbraut 14, 3. hæð (inngangur á vesturgafli).
Boðið verður upp á samlokur og gos.
Nýttu þér ókeypis námskeið Íslandsbanka í Meniga
heimilisbókhaldinu.
Meniga heimilisbókhaldið, sem nú er hluti af Netbanka
Íslandsbanka, hjálpar þér að ná yfirsýn yfir fjármál
heimilisins og finna raunhæfar leiðir til sparnaðar.
Nánari upplýsingar og skráning
á islandsbanki.is/namskeid
Nánari upplýsingar og skráning
á islandsbanki.is/namskeid
Við bjóðum
námskeið
og fræðslu
Fimmtudaginn 14. mars. kl. 17.30 -19.30
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Fanný
Gunnarsdóttir
skipar 4. sæti á lista
Framsóknar fl okks-
ins í Reykjavík-
norður
➜ Í dag er aðeins hægt að
aðstoða þau börn sem að
mati sérfræðinga á BUGL
glíma við hvað erfi ðastan
vanda. Önnur börn, sem
ekki eru eins illa stödd, fá
ekki aðstoð þó svo að þeirra
staða sé slæm og raski
á ýmsa vegu vellíðan og
daglegu lífi þeirra.