Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.03.2013, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 11.03.2013, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 11. mars 2013 | SKOÐUN | 15 Í mínu daglega starfi kem ég oft að málefnum barna með misalvar legar geð- raskanir og þekki því mjög vel þá þröskulda sem mæta bæði börnum og for- eldrum. Það er mín til- finning að á undanförnum árum hafi þeim börnum fjölgað sem sýna ýmiss konar kvíðaraskanir og vanlíðan. Á hverjum degi glímir fjöldi fjölskyldna við vandamál sem fylgja geðröskun barna og ung- linga. Fjölskyldur upp- lifa erfiðleika og vanmátt við að rekja sig áfram í kerfinu og leita eftir þeirri aðstoð sem þörf er á. Það er óásættanlegt að búa við þær aðstæður að aðeins þau börn sem eiga mjög erfitt komist nær fyrirvaralaust til fagfólks, en samt getur sú bið skipt vikum eða mán- uðum. Öll börn sem á einhvern hátt glíma við geðraskanir eiga rétt á aðgengilegri aðstoð fagfólks. Því fyrr sem hægt er að grípa inn í og vinna með barnið, þeim mun lík- legra er að góður árangur náist. Framsóknarflokkur álítur að unnt væri að hjálpa mun fyrr fleiri börnum og unglingum ef heilsu- gæslustöðvarnar hefðu á að skipa teymi sérfræðinga með sálfræð- ingum og félagsráðgjöfum. Það þarf að auka stoðþjónustu í grunn- og framhaldsskólum; náms- og starfsráðgjöf og félagsráðgjöf en jafnframt auka aðgengi að sál- fræðingum og skólahjúkrunar- fræðingum. Það er ekki nægilegt að sinna aðeins veiku barni. For- eldrar þurfa á góðri ráðgjöf að halda og systkini þurfa líka sinn stuðning. Það segir sig sjálft að fjölskyldutengsl og daglegt líf inni á heimilum barna með geðrask- anir fara úr skorðum og oft hefur ástandið varað árum saman þegar aðstoð fæst. Viðvarandi biðlisti Með reglulegu millibili er rætt um skort á þjónustu við börn og unglinga sem glíma við geðræn vandamál. Fyrr í vetur var rætt um hugmyndir um að loka aðstöðu á Sjúkrahúsinu á Akureyri og í tengslum við þá um fjöllun kom fram að á Barna- og unglingageð- deildinni – BUGL – er viðvarandi biðlisti, allt að ári. Ef af lokun verður fyrir norðan má gera ráð fyrir að álagið aukist enn frekar á BUGL og biðlistar lengist en að jafnaði má reikna með að um hundrað börn séu á biðlista. Í dag er aðeins hægt að aðstoða þau börn sem að mati sérfræðinga á BUGL glíma við hvað erfiðastan vanda. Önnur börn, sem ekki eru eins illa stödd, fá ekki aðstoð þó svo að þeirra staða sé slæm og raski á ýmsa vegu vellíðan og daglegu lífi þeirra. Í þeim tilfellum verða for- eldrar að greiða fyrir kostnaðar- sama þjónustu sálfræðinga og lækna úti í bæ. Hver vika og hver mánuður sem líður án þess að veikt barn fái hjálp er óviðunandi. Þeir sem eiga börn með geðrask- anir eða vinna með krökkunum finna sárlega fyrir skorti á úr- ræðum og þjónustu. Með þessu er á engan hátt verið að hallmæla því starfi sem fagfólk er að sinna dagsdaglega, heldur verið að vekja athygli á því að enn betur þarf að sinna þessum málaflokki. Efla ætti nærþjónustu Það þarf að grípa sem fyrst inn í ef barn eða unglingur sýnir merki röskunar á geði. Almennur kennari í leik-, grunn- eða framhaldsskóla hefur litla sem enga sérþekkingu á meðhöndlun geðraskana. Öll skóla- stig reyna eftir bestu getu að sinna þessum nemendum en eins og staðan er í dag er álagið á skólana gríðarlegt. Skólakerfi okkar er alls ekki í stakk búið að sinna börnum með geðraskanir svo vel sé. Þó svo að börn að 18 ára aldri hafi aðgang að sálfræðingum á vegum sveitar félags eru þeir í flestum til- fellum störfum hlaðnir og biðlistar mæta þeim sem kalla eftir hjálp. Síðan tekur við greining vandans en sjaldnast býðst sérstök meðferð hjá sálfræðingum skólanna, málum er vísað áfram innan kerfisins eða út til sjálfstætt starfandi fagfólks. Í framhaldsskólum er jafnvel enn erfiðara að fá aðstoð sálfræðinga og hjúkrunarfræðinga. Það er mikið rætt um hátt brottfall úr framhalds- skólum og því ekki úr vegi að spyrja sig hvort skortur á forvörnum, ráðgjöf og aðstoð þegar kemur að geðrænum vandamálum geti átt sinn þátt í brottfallinu. En í gegn- um ráðgjöf fá nemendur aðstoð og ráðleggingar og þar gefst þeim tækifæri til að tjá sig um líðan sína og upplifun. Þó svo að við sem samfélag verðum að sýna aðhald í útgjöldum er ég sannfærð um að með aukinni ráðgjöf og snemmtækri íhlutun sparist í raun háar upphæðir, fyrir utan aðalávinninginn, sem er bætt líðan og geðheilbrigði yngstu kyn- slóðanna, og það dregur úr álagi á fjölskyldur. Það er nauðsynlegt að standa vörð um starf semina á BUGL. Auk þess endurskoða skipulag og starfsferla á deildinni, athuga hvort ekki sé hægt að tengja enn betur saman þjónustu sveitarfélaga og ríkis og skoða með hvaða hætti foreldrar fái stuðning við að leita til sjálfstætt starfandi fagfólks. Í samfélagi sem þarf að forgangsraða fjármunum getur verið erfitt að velja og hafna en við höfum ekki rétt á að horfa í hina áttina þegar kemur að andlegri vel- ferð barnanna okkar. Við verðum að vera vel á verði, tryggja góðar forvarnir, greiningar, úrræði og eftirfylgd. Geðheilbrigðismál barna eru forgangsmál islandsbanki.is | Sími 440 4000 Við bjóðum góða þjónustu E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 9 2 6 Fundur um séreignarsparnað 12. mars Íslandsbanki og VÍB bjóða á fróðlegan fund um séreignarsparnað. Fáðu yfirsýn yfir þær fjölmörgu ávöxtunarleiðir sem eru í boði og vertu klár á réttindum þínum varðandi séreignarsparnað. Meniga námskeið 14. mars Á ég rétt á launahækkun? Hver er munurinn á séreignar- og skyldusparnaði? Hvenær og hvernig má ég taka séreignina mína út? Hvernig er sparnaðurinn skattlagður? Hvaða ávöxtunarleiðir eru í boði? Fundurinn er öllum opinn og verður haldinn í útibúi Íslandsbanka á Kirkjusandi. Boðið verður upp á kaffiveitingar. Þriðjudaginn 12. mars kl. 16.30 - 17.30 Næsta námskeið verður í húsnæði Íslandsbanka á Suðurlandsbraut 14, 3. hæð (inngangur á vesturgafli). Boðið verður upp á samlokur og gos. Nýttu þér ókeypis námskeið Íslandsbanka í Meniga heimilisbókhaldinu. Meniga heimilisbókhaldið, sem nú er hluti af Netbanka Íslandsbanka, hjálpar þér að ná yfirsýn yfir fjármál heimilisins og finna raunhæfar leiðir til sparnaðar. Nánari upplýsingar og skráning á islandsbanki.is/namskeid Nánari upplýsingar og skráning á islandsbanki.is/namskeid Við bjóðum námskeið og fræðslu Fimmtudaginn 14. mars. kl. 17.30 -19.30 HEILBRIGÐIS- MÁL Fanný Gunnarsdóttir skipar 4. sæti á lista Framsóknar fl okks- ins í Reykjavík- norður ➜ Í dag er aðeins hægt að aðstoða þau börn sem að mati sérfræðinga á BUGL glíma við hvað erfi ðastan vanda. Önnur börn, sem ekki eru eins illa stödd, fá ekki aðstoð þó svo að þeirra staða sé slæm og raski á ýmsa vegu vellíðan og daglegu lífi þeirra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.