Fréttablaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 4
11. mars 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4 HEILBRIGÐISMÁL Berklatilfellum á Íslandi hefur fækkað mikið eftir að óvenju margir greindust með sjúk- dóminn árið 2010. Fréttir frá Dan- mörku vekja athygli en þar fjölgar berklatilfellum enn eitt árið. Í frétt á vef Kristilega dagblaðs- ins í vikunni segir að tilkynnt hafi verið um 407 tilfelli árið 2012 á móti 331 tilfelli árið 2009. Í frétt KD segir að heimilislausir og fíkniefna- notendur séu fjölmennir í hópi smit- aðra. Grænlendingar búsettir í Dan- mörku tilheyra einnig þessum hópi. Haraldur Briem sóttvarna læknir segir að hlutfall berklasmitaðra á Íslandi séu í alþjóðlegum saman- burði mjög lágt. Árin 2011 og 2012 greindust ellefu til tólf einstak- lingar með berkla. Hér á landi eru það innflytjendur sem eru í meiri- hluta. Árið 2012 greindust níu útlendingar og tveir Íslendingar. Árið 2010 greindust óvenjulega margir með berkla hér á landi, eða 21 sjúklingur. Af þeim voru 16 (71%) af erlendu bergi brotnir. Haraldur segir að fréttir frá Dan- mörku séu ekki ástæða sérstakra viðbragða hér. Athygli vekur að fjölgun berkla- smitaðra virðist einskorðast við Danmörku. Í Svíþjóð og Noregi eru berklatilfellin til dæmis helmingi færri á hverja 100 þúsund íbúa en þar í landi. - shá ➜ Árið 2012 greindust níu útlendingar og tveir Íslend- ingar með berkla hérlendis. Danir glíma við öra fjölgun berklasmita, einir Norðurlandaþjóða: Berklatilfellum fækkar aftur TRÚMÁL Starfsmenn Þjóðkirkj- unnar verða nú að skrifa undir plagg sem heimilar kirkjunni að skoða sakaferil þeirra og bak- grunn. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, sagði í gær að nauðsynlegt væri að hafa þetta fyrirkomulag á stofnunum og annars staðar þar sem börn og unglingar kæmu við sögu. Samþykkt var á kirkjuþingi 2009 að starfsmenn þyrftu að heimila bakgrunnsskoðun, en nú geta sóknarnefndir ákveðið að allir sem koma að starfi kirkj- unnar á einhvern hátt þurfi að undirgangast slíka skoðun, sagði Agnes. - bj Nýjar reglur Þjóðkirkjunnar: Geta nú skoðað bakgrunn allra AGNES M. SIG- URÐARDÓTTIR NÁTTÚRUVERND Stjórnvöld í Suður-Afríku óttast að nú stefni í metár hjá veiðiþjófum sem herja á nashyrninga á verndar- svæðum landsins og vilja að rætt verði af alvöru um möguleikann á að heimila sölu á nashyrnings- hornum eftir löglegum leiðum. Deilt er um málið á ráðstefnu um náttúruvernd sem haldin var í Taílandi nýverið, að því er fram kemur í frétt BBC. Stjórnvöld í Suður-Afríku telja fullreynt með þær aðferðir sem beitt hefur verið til að verjast veiðiþjófum, og vilja kanna hvort hægt sé að grafa undan markaði veiðiþjófanna með því að selja hornin löglega. - bj Óttast metár fyrir veiðiþjófa: Vilja selja horn nashyrninga Í HÆTTU Veiðiþjófar drápu 668 nas- hyrninga svo vitað sé í Suður-Afríku á síðasta ári. NORDICPHOTOS/AFP MALTA, AP Verkamannaflokkur- inn bar sigur úr býtum í þing- kosningum á Möltu í gær eftir að hafa verið í fimmtán ár í stjórn- arandstöðu. Leiðtogi flokksins, Joseph Muscat, tekur við sem for- sætisráðherra í dag. Verkamannaflokkurinn hlaut 55% atkvæða en Þjóðernisflokk- urinn hlaut 43% atkvæða. Þetta er stærsti sigur Verkamanna- flokksins síðan Malta öðlað- ist sjálfstæði frá Bretlandi árið 1964. Hinn íhaldssami Þjóðernis- flokkur hafði dregið úr atvinnu- leysi í landinu og hét því að lækka taxta en það dugði ekki til. - fb Þingkosningar á Möltu: Í stjórn eftir 15 ára fjarveru VENEZUELA, AP „Ég er ekki Cha- ves. Hvorki hvað varðar gáfur, útgeislun, arfleifð hans né getu til að stjórna,“ sagði Nicolas Maduro, sem tók á föstudag við embætti forseta í Venesúela við andlát Hugo Chaves. Maduro hefur tilkynnt að hann bjóði sig fram til forseta en kosningar í landinu fara fram 14. apríl. Leiðtogi stjórnarandstöð- unnar, Henrique Capriles, býður sig fram gegn Maduro. Hann nýtur stuðnings kommúnista. - fb Kosningar í Venesúela: Maduro ætlar í forsetaframboð KALIFORNÍA, AP Búið er að opna dýragarðinn Cat Haven þar sem ljón drap Dianna Hanson, 24 ára gamla konu, síðastliðinn mið- vikudag í Kaliforníu. Haldin var kyrrðarstund vegna andláts hennar þegar þessi einkarekni dýragarður opnaði aftur. Fjöl- skylda Hanson hafði lagt blessun sína yfir því að garðurinn yrði opnaður á nýjan leik. - fb Dýragarður í Kaliforníu: Opnað eftir að ljón drap konu FRÉTTASKÝRING Hverju nær stjórnin í gegn fyrir þinglok? Stjórnamálaflokkarnir eru engu nær um samninga varðandi þing- lok. Samkvæmt starfsáætlun verður þingi frestað á föstudag, svo ljóst er að fjöldi stórra mála verður ekki að lögum á yfirstand- andi þingi – og þá varla yfirhöfuð þar sem kosningar eru í nánd. Ber þar hæst frumvarp um fiskveiði- stjórnun. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að óvænt snurða hafi hlaupið á þráðinn í viðræðum um þinglok í síðustu viku. Þá kynntu Framsóknarmenn hugmyndir sínar um auðlindaákvæði í stjórn- arskrá við vægast sagt litla hrifn- ingu Vinstri grænna. Gagnrýni þeirra var óvægin, að mati Fram- sóknarmanna, og samningsvilji þeirra minnkaði fyrir vikið. Formenn stjórnarflokkanna, Árni Páll Árnason og Katrín Jakobs dóttir, lögðu í síðustu viku fram frumvarp um breytingu á stjórnarskrá ásamt Guðmundi Steingrímssyni. Það lýtur að því að gera það auðveldara að breyta stjórnarskránni. Þremenningarnir lögðu einnig fram þingsályktunar- tillögu um að Alþingi álykti að heildarendurskoðun stjórnarskrár- innar yrði lokið árið 2014. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins eru stjórnarliðar ákveðnir í að greidd verði atkvæði um þessar tillögur. Þeim hugnast lítt að fara í kosningabaráttu án nokk- urra sýnilegra sigra í stjórnar- skrármálinu. Þar á bæ er því rætt af fullri alvöru um að náist ekki að semja um atkvæðagreiðslu um þessi mál verði atkvæðagreiðsla þvinguð í gegn. Nýtt þing þarf að staðfesta slíka breytingu en hægt væri að nota málið í kosningabar- áttu í millitíðinni. Vantrauststillaga Þórs Saari verður tekin til atkvæða í dag. Þingmenn sem Fréttablaðið ræddi við búast við að hún verði felld. Hún hefur hins vegar haft áhrif á umræður um þinglok. Þar flækir margt stöðuna. Framsóknar- og sjálfstæðis- menn í Norðausturkjördæmi vilja trauðla ljúka þingi fyrr en búið er að tryggja uppbyggingu á Bakka og Reykjavíkurþingmenn horfa til nýs Landspítala. Stóra málið er því stjórnarskráin og mögulega verður ákvæði þing- skapa um að knýja fram atkvæða- greiðslu notað í fyrsta skipti á lýð- veldistímanum. kolbeinn@frettabladid.is Ósamið um þinglok Snurða hljóp á þráðinn í viðræðum stjórnmálaflokkanna um þinglok eftir gagn- rýni VG á Framsóknarflokkinn. Þingi á að ljúka á föstudag. Ósamið um öll mál. Stjórnarliðar tilbúnir til að þvinga fram atkvæðagreiðslu varðandi stjórnarskrá. REYNA AÐ SEMJA Nýkjörnir formenn stjórnarflokkanna reyna nú að semja um þinglok við stjórnarandstöðuna. Hér eru þau að kynna hugmyndir um atvinnuleysis- bætur sem ráðherrar árið 2009. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ➜ Sömuleiðis geta níu þingmenn krafist þess að greidd séu atkvæði um það umræðulaust hvort umræðu skuli lokið, umræðutími eða ræðutími hvers þingmanns takmarkaður. Úr lögum um þingsköp 224,3392 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,45 126,05 188,62 189,54 164,42 165,34 22,047 22,177 22,117 22,247 19,789 19,905 1,3118 1,3194 189,08 190,20 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 08.03.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Soff ía Sveinsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Miðvikudagur Hægur vindur um allt land LITLAR BREYTINGAR Það er lítið að gerast í veðrinu næstu daga og horfur á hægum vindi víðast hvar. Í dag verður úrkomulítið en á morgun má búast við lítilsháttar ofankomu norðanlands en á miðvikudaginn bætir heldur í úrkomu. 2° 3 m/s 4° 4 m/s 4° 2 m/s 5° 7 m/s Á morgun Hæg breytileg átt. Gildistími korta er um hádegi 4° 1° 1° 2° 2° Alicante Aþena Basel 19° 21° 14° Berlín Billund Frankfurt -2° -2° 4° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 11° -2° -2° Las Palmas London Mallorca 20° 1° 18° New York Orlando Ósló 11° 26° -3° París San Francisco Stokkhólmur 4° 19° -4° 2° 1 m/s 4° 2 m/s 2° 3 m/s 1° 9 m/s 3° 3 m/s 2° 5 m/s -2° 1 m/s 4° 2° 2° -1° 1°
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.