Fréttablaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 18
11. mars 2013 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 18 Breiðholtskirkja á 25 ára vígslu- afmæli í vikunni. Margt verður gert til hátíðabrigða að sögn Gísla Jónas- sonar sóknarprests sem hefur verið prestur kirkjunnar frá því að hún var vígð og gott betur. „Við höldum upp á afmælið allan afmælisdaginn, eldri borgarar verða með hátíðlega samveru og svo er hátíðarmessa um kvöldið. Næsta sunnudag verður kórinn okkar svo með metnaðarfulla tónleika,” segir Gísli Jónasson, sóknarprestur Breið- holtskirkju. Kirkjan á 25 ára vígsluafmæli á miðvikudag en söfnuðurinn í þessu elsta hverfi Breiðholts er mun eldri. „Breiðholtssókn varð til árið 1972 en fyrstu íbúarnir fluttu í hverfið rétt fyrir áramótin 1967 til 1968. Fyrst um sinn var messað í Bústaðakirkju en frá árinu 1973 hafði söfnuðurinn aðsetur í Breiðholtsskóla og þar var hann þangað til kirkjan var vígð árið 1988,“ segir Gísli sem hóf störf hjá prestakallinu árið 1986. „Kirkjan var lengi í byggingu, fyrsta skóflu- stungan var tekin 1978. Þess má geta að fyrsti presturinn í sókninni, séra Lárus Halldórsson, hafði látið af störfum þegar kirkjan var vígð,“ segir Gísli. „Það breytti náttúru- lega öllu að fá kirkjubyggingu, tæki- færin til að halda úti öflugu kirkju- starfi urðu svo miklu meiri eftir að við fluttum í húsið.“ Gísli segir að kirkjustarfið í sókninni sé viðamikið en þó hafi sóknin orðið illilega fyrir barðinu á niðurskurði síðan 2008. „Það er mjög sláandi að sóknargjöld eru í krónutölu nánast þau sömu og árið 2006. En við fáum náttúrulega miklu minna fyrir þennan pening, eins og gefur að skilja, því allt hefur hækkað svo í verði. Við höfðu því þurft að draga saman seglin, grisja í starfshaldi og ung- lingastarf og barnakórar hafa lagst af. Þessi þróun er bagaleg. Það hefur bjargað okkur að við áttum varasjóð sem við höfðum ætlað að nota til að setja lyftu á milli hæða hér í húsinu. Við hættum við þau áform korteri í hrun, sem betur fer, það klingdu ein- hverjar viðvörunarbjöllur, kannski að ofan,“ segir Gísli kankvís. Talið berst aftur að afmælishátíð- inni. „Ég hvet sem flesta til að koma og fagna með okkur. Það verður sér- stök hátíðarmessa klukkan átta á mið- vikudagskvöld þar sem frú Agnes M. Sigurðardóttir biskup prédikar,“ segir Gísli að lokum. Þess má geta að boðið verður upp á afmæliskaffi að messu lokinni þar sem meðal annars verða sýndar ljósmyndir frá bygg- ingarsögu kirkjunnar og úr safnað- arstarfinu. Á sunnudaginn verða síðan sér- stakir afmælistónleikar Kórs Breið- holtskirkju þar sem meðal annars verður frumflutt afmælistónverkið „Rennur upp um nótt“ eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson tónskáld við ljóð Ísaks Harðarsonar. sigridur@frettabladid.is TÍMAMÓT Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn www.kvedja.is 571 8222 82o 3939 svafar 82o 3938 hermann Elsku móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐMUNDA PETERSEN STEFÁNSDÓTTIR lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 7. mars. Hún verður jarðsungin frá Áskirkju þriðjudaginn 12. mars kl. 15.00. Steinar Petersen Greta B. Petersen Birna Petersen Ken Håkon Norberg Gunnar Petersen Elva Gísladóttir Eva Petersen Gunnar Arnar Gunnarsson Viktor, Emilia, Anna Alexandra, Steinar, Oliver og Brynjar. Byggingin breytti öllu 25 ára vígsluafmæli Breiðholtskirkju verður í vikunni. Margt verður gert til hátíðarbrigða. GÍSLI JÓNASSON Gísli Jónasson hefur verið prestur Breiðholtskirkju frá því að hún var vígð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MERKISATBURÐIR 1810 Napóleon Bonaparte gengur að eiga Maríu Lovísu, dóttur Frans 1. Austurríkiskeisara. 1894 Fyrsta kókflaskan er seld í sælgætisbúð í bænum Vicks- burg í Mississippi. 1907 Íþróttafélag Reykjavíkur er stofnað. 1922 Mahatma Gandhi er fangelsaður fyrir borgaralega óhlýðni. 1935 Frönsk skonnorta strandar á Slýjafjöru í Vestur-Skaftafells- sýslu. 1941 Línuveiðarinn Fróði verður fyrir árás þýsks kafbáts suður af Vestmannaeyjum. Fimm sjómenn fórust í árásinni. 1950 Kvikmynd Óskars Gíslasonar, Síðasti bærinn í dalnum, er frumsýnd. 1971 Lög eru sett um happdrættislán ríkissjóðs til fjáröflunar fyrir vega- og brúargerð um Skeiðarársand. 1984 Vélbáturinn Hellisey frá Vestmannaeyjum sekkur og allir farast nema einn maður, Guðlaugur Friðþórsson. 1990 Litháen verður sjálfstætt ríki með Vytautas Landsbergis sem forseta. 2001 Jón Arnar Magnússon, hlýtur silfurverðlaun í sjöþraut á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss. Mikhail Gorbatsjov varð aðal- ritari Komm- únistaflokks Sovétríkjanna þennan mánaðardag árið 1985. Hann tók við leiðtoga- embættinu af Konstantín Tsjernenko og reyndi að breyta ásýnd flokksins með um- bótum og endurskipulagningu. Ólíkt fyrirrennurum sínum sendi hann hvorki sovéskar herdeildir til að kveða niður frelsisbaráttu íbúa Mið-Evrópu 1989 né meinaði þýsku ríkjunum sameiningu 1990. Eins og Íslendingar muna kom Gorbatsjov hingað til lands til fundar við Ronald Reagan í Höfða 1986 en hann var settur í þriggja daga stofufangelsi af harðlínumönnum í ágúst 1991. Hann sagði af sér embætti 25. desember 1991. ÞETTA GERÐIST: 11. MARS 1985 Gorbatsjov verður leiðtogi Sovétríkjanna Nemendaópera Söngskólans í Reykja- vík hefur sett á laggirnar óperusýn- ingu í Iðnó sem nefnist Gondólagæjar og glæsipíur. „Þetta er gamanópera sem er unnin út frá verkum þeirra W.S. Gilbert og Arthurs Sullivan sem unnu söngleiki saman í lok 19. aldar,“ segir Hrönn Þráinsdóttir, píanóleikari og kennari í Söngskóla Reykjavíkur. Hrönn lýsir sýningunni sem léttri, skemmtilegri og uppfullri af húmor. „Hópurinn, sem samanstendur af sex strákum og tólf stelpum, er ein- staklega efnilegur og fjölhæfur. Þau syngja, dansa og leika. Þetta eru nemendur sem komnir eru á fram- haldsstig í söngnámi og eru að stíga sín fyrstu skref á sviði.“ Hrönn segir það að setja upp sýn- ingu af þessu tagi vera langt ferli. „Við byrjuðum að æfa í október í fyrra og í rauninni er það ég sem byrja ferlið með tónlistinni og svo tekur leikstjórinn við. Það er Sibylle Köll sem leikstýrir hópnum en nemend- urnir hafa fengið að taka mikinn þátt í uppbyggingunni með Sibylle og læra þannig mikið.“ Miða á sýninguna er hægt að nálgast í Iðnó, á Midi.is og í Söngskóla Reykjavíkur. „Við munum sýna verkið þrisvar, fyrsta sýningin er í kvöld kl 20.30 og hinar eru á þriðjudag og miðvikudag á sama tíma. Þetta er sýning sem vert er að skoða,“ segir Hrönn. -gha Skemmtileg og uppfull af húmor Nemendaóperan hefur sýningar á verkinu Gondólagæjar og glæsipíur. Á ÆFINGU Nemendur á æfingu verksins Gondólagæjar og glæsipíur í Iðnó.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.