Fréttablaðið - 11.03.2013, Síða 14

Fréttablaðið - 11.03.2013, Síða 14
11. mars 2013 MÁNUDAGUR| SKOÐUN | 14 E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 9 5 9 * M ið a ð v ið b la n d a ð a n a ks tu r BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000 Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 Sölumenn okkar eru k om in r í pá ks agírinn og b jóða margar g erðir af s parneytnum f jórhjóladrifnum bílum á spennandi páskatilboði Verið velkomin í reynsluakstur o g látið sölumenn okkar gera ykkur spennandi tilboð í nýjan fjórhjóladrifinn bíl – fyrir páska. SPENNANDI TILBOÐ SHIFT_ SKYNSAMLEG KAUP Hrikalega gott verð SKEMMTILEGASTI KOST URINN Ef þú vilt góðan jepplin g með öllu DACIA DUSTER – 4x4 Dísil, beinskiptur. Verð 4.090 þús. kr. NISSAN X-TRAIL – 4x4 Dísil, sjálfskiptur. Verð 6.690 þús. kr. Eyðsla: 5,1 l/100 km* Eyðsla: 7,1 l/100 km* SHIFT_ VINSÆLASTI SPORTJEPPINNSamkvæmt Umferðarstofu 2012 NISSAN QASHQAI – 4x4 Dísil, beinskiptur. Verð 5.090 þús. kr. Eyðsla: 4,6 l/100 km* SPARNEYTINN SUBARU Ný vél, aukinn bensínsparna ður SUBARU XV – 4x4 Bensín, beinskiptur. Verð 5.590 þús. kr. Eyðsla: 6,6 l/100 km* Á undanförnum vikum og mánuðum hafa málefni íslenskra ungmenna verið í brennidepli. Við höfum heyrt og séð dæmi um áberandi kven fyrir litningu, kynjamisrétti og klámvæðingu og séð þau nei- kvæðu áhrif sem þessi samfélags- menning hefur á viðhorf, athafnir og orðræðu unga fólksins okkar. Sem betur fer hafa viðvörunar- bjöllur kviknað og fjöldi fólks lýst yfir áhyggjum af þessu ástandi, eða brugðist við með einhverjum hætti. Við Íslendingar erum rík af því að eiga fullt af frábærum, flottum og metnaðarfullum unglingum sem við getum verið afar stolt af. En því miður hvílir skuggi yfir of stórum hópi þessarar ungu kyn- slóðar. Dæmin hafa sýnt og sannað að undan förnu að mikil viðhorfs- breyting í siðferði hefur orðið hjá hluta ungu kynslóðarinnar. Það er erfitt að nefna eina ein- staka ástæðu fyrir þessari við- horfsbreytingu en í þjóðfélagsum- ræðunni hafa ýmsir áhrifavaldar verið nefndir, svo sem mikið sjón- varpsáhorf, tölvuleikir og notkun samfélagsmiðla. Í þessum miðlum virðist stundum sem allt sé leyfilegt og fáir kippa sér upp við að í kvik- myndum og tónlistarmyndböndum sé ofbeldi, klám og önnur neikvæð hegðun normalíseruð. Við sem for- eldrar getum ekki breytt sjónvarps- dagskránni eða þróun tækninnar en við getum ekki staðið hjá án þess að gera neitt. Ung mennin í dag eru stöðugt nettengd, hvort sem það er við heimilistölvuna, í skólanum eða símanum sínum. Á netinu eru hættur sem ber að varast og þá reynir á hlutverk okkar og ábyrgð sem foreldra. Við getum sest niður hjá þeim og fylgst með hvaða síður þau eru að skoða, við hverja þau eiga samskipti í gegnum netið og rætt um ábyrga netnotkun. Við þurfum að setja þeim reglur og fylgja þeim eftir. Byggjum brú Það er staðreynd að unga fólkið okkar er að skoða klám í auknum mæli. Niðurstöður rannsókna sem Háskólinn á Akureyri birti í júlí 2012 sýna að íslenskir unglingar sækja mest í klám af þeim átta lönd- um sem rannsóknin náði til. Er þetta ásættanleg þróun? Við þurfum að velta því fyrir okkur hver skilaboðin eru með því að aðhafast ekkert. Vilj- um við að börnin okkar alist upp við kven fyrir litningu, niðurlægingu og þekkingarleysi á muninum á kynlífi og klámi? Hvernig eiga unglingarnir okkar að vita hvar línan liggur, ef við, foreldrarnir, stöndum ekki upp núna og segja hingað og ekki lengra og krefjumst betra samfélags fyrir börnin okkar? Við hjá SAMFOK, samtökum foreldra grunnskólabarna, höfum miklar áhyggjur af þessari þróun mála hjá ungu kynslóðinni og ákváðum sl. haust að leggja megin- áhersluna í vetur á að fara í sam- starf við foreldrafélög í grunn- skólum og styrkja þau til að bjóða upp á Tölum Saman verkefnið í sínum skólum. Þetta eru fyrir- lestrar fagfólks sem ætlað er að byggja brú milli foreldra og ung- linga í umræðunni um kynlíf, kyn- hegðun og kynheilbrigði. Það er einlæg ósk okkar að sem flestir for- eldrar noti tækifærið og sæki þessa fyrirlestra þegar boðið verður upp á þá í þeirra grunnskóla. Það er sömuleiðis mikið fagnaðarefni að stuttmyndin Fáðu Já hefur verið sýnd í flestum grunnskólum lands- ins á undanförnum vikum. Sú mynd mun vafalaust gefa unglingunum skýrari skilaboð. Notum tækifærið og ræðum þessi mál við börnin okkar þegar þau segja okkur frá því að myndin hafi verið sýnd í þeirra skóla, og gefa okkur þar með tæki- færi til að ræða þetta viðkvæma en vandmeðfarna mál. Frelsi fylgir ábyrgð. Ef við viljum að börnin okkar upplifi allt þetta ofboðslega frelsi sem fylgir net- inu og sjónvarpinu, þá er það okkar sem foreldra að setja mörk og hjálpa þeim að þekkja muninn á réttu og röngu. Við þurfum að hjálpa þeim að þekkja almenn siðferðismörk, horfa á hluti og at hafnir með gagnrýnum augum og kenna þeim að taka skyn- samlegar ákvarðanir. Við getum ekki ásakað einhvern einn aðila um hvernig staðan er í samfélaginu í dag. Ástæðurnar eru svo marg- þættar. En við verðum að líta í eigin barm sem uppalendur og virkir sam- félagsþegnar og taka höndum saman um að snúa þessari óheillaþróun við. Þetta er samvinnuátak okkar allra. Tölum saman Vikuna 11.–17. mars næst- komandi verður heilanum gefinn sérstakur gaumur, bæði í Fréttablaðinu sem og víða um heim. Fræðslu- vika þessi, sem á ensku nefnist Brain Awareness Week, hefur verið skipu- lögð af bandarískum góð- gerðarsamtökum, Dana Foundation, síðan árið 1996. Frá 1996 hafa þátt- takendur í 82 löndum tekið þátt í þessari kynningar- viku. Meðal annars hafa háskólar og sjúklingasam- tök staðið fyrir fræðslu á ýmsum vettvangi, svo sem í grunnskólum, fjölmiðlum og á götum úti. Allt með það að markmiði að efla almenna þekkingu á heilanum. Að þessu sinni hyggjast taugasál- fræðingar á Landspítalanum taka þátt í þessu verkefni í fyrsta sinn fyrir hönd Íslands. Markmiðið er að vekja athygli á þessu stórbrotna líffæri okkar, heilanum. Við munum birta nokkrar greinar sem tengjast heilanum og heilahreysti. Í tilefni af heilavikunni verður einnig opnuð bloggsíða á íslensku um heilann (heilahreysti. about-brains.com) þar sem fjallað verður um heilann á fjölbreyttan hátt. Að mati okkar sem vinnum með sjúklingum með heilaskaða og heila- sjúkdóma og stundum rannsóknir á þessu sviði er þörf á að efla almenna þekkingu á heilanum og starfsemi hans. Sem betur fer hefur orðið mikil vitundar- vakning varðandi mikilvægi þess að hugsa vel um líkamann. En það er eins og það gleymist stundum að heilinn sé hluti líkamans og að hans þurfi einnig að gæta. Margir eru sér þess ekki meðvitaðir að hægt sé að hafa áhrif á heilbrigði heil- ans og telja að heilinn sé óbreytan- legur eftir ákveðinn aldur. Jafn- vel heyrist sagt að við notum bara hluta hans. Aðrar ranghugmyndir um heilann lifa enn góðu lífi. Til dæmis heyrist það viðhorf að ung börn þoli heilaáverka betur en þeir sem eldri eru. Ranghugmyndir sem þessar geta beinlínis verið skað- legar heilsu fólks og mikilvægt er að leiðrétta þær. Vonandi munu fleiri hér lendir þátttakendur bætast í hópinn á næsta ári til að efla almenna þekk- ingu á heilanum. Til frekari upplýs- ingar má benda á heimasíðu heila- vikunnar: http://www.dana.org/ brainweek/ Gefum heilanum gaum! Alþjóðleg heilavika Taktu upplýsta afstöðu! Láttu ekki stjórnmála- menn, flokkslínur eða stofnanir segja þér hvað þér eigi að finnast um mikil væg málefni. Þöggun er aldrei af hinu góða. Hvers vegna vilja til dæmis öfgafullir trúar- hópar meina stúlkum að ganga í skóla? Hvers vegna hafa einræðis herrar og öfgahreyfingar víða um heim og á öllum tímum stundað bókabrennur (nú síðast í Malí)? Hvers vegna reyna ríkjandi vald- hafar sumra ríkja að takmarka aðgang að alnetinu og ritskoða efni þess? Jú, svarið er einfalt: Það er auðveldara að stjórna óupplýstum lýð! Hvers vegna reyna sumir að stöðva rannsókn og umfjöllun á afbrotum liðinnar tíðar og þagga niður í gagnrýnis röddum? Hvers vegna hvetja þeir kjósendur til að horfa fram á veginn og (þar með) hugsa minna um það sem á undan er gengið? Svarið er augljóst: Því minna sem við vitum og því fyrr sem við gleymum, þeim mun fyrr geta menn tekið upp fyrri iðju og endur tekið afbrotin. Hvers vegna vilja sumir að við ljúkum ekki samn- ingaviðræðum við Evrópusam- bandið? Er það ekki jafn augljóst? Þannig er auðveldara að segja okkur hvað okkur eigi að finnast, hvað við eigum að kjósa, ef við fáum þá að kjósa um það yfirhöfuð. Þessi afstaða er af sama meiði og mannsins sem þurfti að fá lán- aðan tjakk til að geta skipt um dekk á bílnum sínum en gaf sér niður stöðuna fyrir fram og hreytti framan í bóndann sem kom til dyra: „Þú getur bara átt þennan helv*&#$ tjakk sjálfur!“ Erum við ekki í stöðu þessa manns? Við þurfum „að skipta um dekk á bílnum svo við getum ekið“ fram veginn til betri tíma. Er ekki sjálfsagt að kanna hvaða aðstoð við getum fengið til þess? Ekki getum við lyft bílnum með handafli og skipt um dekk um leið! Ég er ekki í neinu framboði eða að mæla fyrir einhverri flokkslínu. Ég er einfaldlega að mæla fyrir framgangi skynseminnar, og því að fá að taka upplýsta afstöðu þegar þar að kemur. Kæri kjósandi! SAMFÉLAG Bryndís Jónsdóttir framkvæmdastjóri SAMFOK Margrét V. Helgadóttir formaður SAMFOK ➜ Viljum við að börnin okkar alist upp við kven- fyrirlitningu, niðurlægingu og þekkingarleysi á mun- inum á kynlífi og klámi? HEILBRIGÐIS- MÁL María K. Jónsdóttir Ph.D., sérfræðingur í klínískri taugasál- fræði og verkefnisstjóri í taugasálfræði, sálfræðiþjónusta LSH– Landakoti STJÓRNMÁL Árni Þorvaldur Jónsson arkitekt ➜ Ég er ekki í neinu fram- boði eða að mæla fyrir ein- hverri fl okkslínu. ➜ Vonandi munu fl eiri hér- lendir þátttakendur bætast í hópinn til að efl a almenna þekkingu á heilanum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.