Fréttablaðið - 11.03.2013, Page 44

Fréttablaðið - 11.03.2013, Page 44
FÓLK| Sýningin er haldin í fjórða sinn og má í raun segja að um uppskeruhátíð vöru- og iðnhönnuða sé að ræða. „Í fyrra var enn betri þátttaka en þá voru þeir 37. Það er hins vegar frekar mikið að sýna á hverju ári enda ferlið á bak við hverja vöru oft langt og strangt sem skýrir ef til vill fjölda þátttakenda í ár,“ segir sýningarhönnuðurinn Kristín María Sigþórsdóttir sem hefur umsjón með sýn- ingunni. „Í fyrra var sýningin haldin í Brim-húsinu við gömlu höfnina og var afar vel heppnuð. Í ár verður hún í Hörpu en þar verða einnig Félag húsgagnaframleiðenda, Epal og Reykjavík Fashion Festival. Þarna verður því sannkallaður suðu- pottur,“ bætir hún við. Kristín María segir hópinn fjöl- breyttan í ár og að sýningargestir komi til með að sjá afar ólíka hluti; húsgögn, nytjahluti, skraut- muni og margt fleira. „Þetta er ört stækkandi fag og í því er mikil gróska. Sýningin er þar af leiðandi mikilvægur vettvangur til að koma afurðunum á framfæri. Vöru- og iðnhönnun er einn angi skapandi greina þar sem verið er að skapa verðmæti með hugviti. Fólk fer afar mis- munandi leiðir og ferlið er ólíkt, bæði hvað varðar efni og hugmyndafræði. Það sem vöru- og iðnhönn- uðir eiga þó sameiginlegt er að þeir skapa vörur eða hluti sem hægt er að framleiða. Ferlið fram að framleiðslu er mörgum hulið og ekki allir sem gera sér grein fyrir því hversu mikil þró- unarvinna liggur að baki,“ segir Kristín María. Hún hvetur alla til að líta við í Hörpu og skoða þessar nýjungar í hönnunar- flórunni en sýningin verður opin fram á sunnudag. Opnunarhófið á fimmtudag hefst klukkan 20. UPPSKERUHÁTÍÐ Í HÖRPU VÖRU- OG IÐNHÖNNUN Félag vöru- og iðnhönnuða, sem er skipað rúmlega hundrað félagsmönnum, heldur samsýninguna Samsuðu í Hörpu um helgina og verður opnunarhóf á fimmtudag. Þar sýna átján hönnuðir ólík verk; allt frá húsgögnum til upplifunarhönnunar, kertum til gervilima. SUÐUPOTTUR Kristín María lofar fjölbreyttri hönnunarflóru í Hörpu um helgina og hvetur alla til að mæta og berja nýjungarnar augum. „Til að búa til flotta umgjörð og gera þetta mögulegt nutum við liðsinnis styrktaraðilanna Islofts, BYKO og Plastprents.“ MYND/GVA KRUKKA Sköpun með endurnýtingu og virðingu að leiðarljósi eftir Daníel Hjört Sigmundsson og Lindu Mjöll Stefánsdóttur. Þau vinna með hráefni sem er gamalt eða dæmt úr leik og vekja það til lífs á ný. 500 g hveiti 3 tsk. lyftiduft 100 g sykur 8 dl mjólk 2 egg 1 tsk. vanilludropar 300 g bláber 150 g rifinn hrámarsípanmassi Smjörklípa Setjið þurrefnin í skál. Bætið fimm desilítrum af mjólk við og hrærið vel. Setjið eitt egg í einu út í og hrærið vel á milli. Bætið svo afganginum af mjólkinni og vanilludropunum við. Setjið loks rifið marsípan og ber út í blönduna. Bræðið smjör á pönnu og steikið litlar lummur. Berið fram með sírópi og smjöri. Eins er hægt að sigta smá flór- sykur yfir. LUMMUR MEÐ BLÁ- BERJUM OG MARSÍPANI Lummur eru herramannsmatur. Hér er hefðbundin uppskrift með skemmtilegri viðbót. Marsípanið gefur sparilegan keim og bláberin eru frískandi. ■ NÝR PÚÐI ÚR ULL Dyggðapúðinn er glæný vara frá vöruhönnuðinum Marý. Púðinn er viðbót við Dyggðateppið sem Marý sendi frá sér fyrir nokkrum árum og líkt og teppið er púðinn prjónaður úr ís- lenskri ull. Á púðanum má lesa dyggðirnar, svo sem þolin- mæði, jákvæðni og heiðar- leiki. Framleiðslu púðans ætlar Marý að fjármagna gegnum Karolinafund.com en hún mun frumsýna Dyggðapúðann á HönnunarMars með hönnunar- hópnum … Love Reykjavík en hópurinn sýnir í Epal. Sjá www. mary.is og á Facebook. DYGGÐAPÚÐI MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *S am kv æ m t p re nt m ið la kö nn un C ap ac en t G al lu p nó v. -s ep t. 20 12 Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU Það er hvergi betri staður fyrir fjölpóst en inni í Fréttablaðinu. 60% landsmanna skoða fjölpóst. Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað! 75% íbúa höfuðborgarsvæðisins lesa Fréttablaðið daglega. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi orn@365.is Útvegum einnig hagstæð verð í prentun. SAMFÉLAGSVERÐLAUN FRÉTTABLAÐSINS visir.is/samfelagsverdlaun að senda t ilnefninga r er til miðn ættis þann Frestur til 14. mars Save the Children á Íslandi EKKI ER ALLT SEM SÝNIST Stóll þarf ekki bara að vera stóll. Inga Sól Ingibjargardóttir blandar saman gömlum og nýjum aðferðum og útkoman er ekki alltaf fyrirsjáanleg. HEIMSLJÓS Ljós innblásin af jörðinni, tunglinu og mars eftir Maríu Sjöfn Dupuis Davíðsdóttur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.