Fréttablaðið - 11.03.2013, Qupperneq 54
11. mars 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 26
ÓSKARSVERÐLAUN
M.A. BESTI LEIKARI ÁRSINS
DANIEL DAY-LEWIS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
-EMPIRE
IDENTITY THIEF KL. 5.40 - 8 - 10 12
21 AND OVER KL. 10.10 14
THIS IS 40 KL. 5.40 12 / JAGTEN KL. 8 16
IDENTITY THIEF KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
IDENTITY THIEF LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
21 AND OVER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D KL. 3.40 - 5.50 L
ÓFL TTINN F ÁR JÖRÐU 2D KL. 3.40 L
THIS IS 40 KL. 6 12
DIE HARD 5 KL. 8 - 10.20 16
DJANGO KL. 9 16
HÁKARLABEITA 2 KL. 3.40 L
- H.S.S., MBL
IDENTITY THIEF KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
JAGTEN (THE HUNT) KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
THIS IS 40 KL. 10.40 12
LINCOLN KL. 6 - 9 14
LIFE OF PI 3D KL. 5.20 10
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
V I P
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AKUREYRI
R.EBERT
LA TIMES
K.N. EMPIRE
BÍÓVEFURINN/SÉÐ & HEYRT
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTABLAÐIÐ
IDENTITY THIEF 8, 10.20
OZ GREAT AND POWERFUL 5, 8
21 AND OVER 10.40
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D 6
VESALINGARNIR 6, 9
ÍSL TAL!
5%
„Það verða bara þessir einu
afmælistónleikar, enda leggjum
við hjartað í þá og það er erfitt að
endurtaka svoleiðis gigg,“ segir
söngvarinn Stefán Hilmarsson.
Stefán og samsveitungar hans
í Sálinni hans Jóns míns fagna
25 ára afmæli sínu um þessar
mundir og halda upp á það með
stórtónleikum í Vodafone-höllinni
þann 23. mars næstkomandi.
Aðdáendahópur Sálarinnar
er stór og þéttur og svo virðist
sem þeir ætli seint að detta úr
tísku. „Það er stór hópur sem
hefur fylgt okkur alveg frá
upphafi og svo verðum við varir
við það að kornungt fólk þekkir
okkur og lögin okkar. Það er
auðvitað ómetanlegt að eiga
svona breiðan aðdáandahóp,“
segir Stefán. Hljómsveitin ákvað
að höfða sérstaklega til yngri
aðdáenda sinna þegar kemur að
gestaflytjendum á tónleikunum,
því allir eru þeir yngri en
Sálverjar. „Við erum með korn-
ungt fólk með okkur á sviði sem
er nýkomið úr kassanum, eins og
Unni Eggerts, og svo erum við
með sjóaða reynslubolta eins og
Selmu Björns,“ segir hann en auk
þeirra koma meðal annars fram
Ingó veðurguð, Agnes Björk úr
Sykur, Jógvan, Stefanía Svavars
og strákarnir í Bláum Ópal. Það
vakti athygli blaðamanns að
allir þessir flytjendur, að Agnesi
undan skilinni, hafa tekið þátt í
Eurovision hér heima fyrir en
spurður hvort það hafi verið með
vilja gert segir Stefán svo ekki
vera. „Sýnir þetta okkur ekki
bara að það hafi allir tekið þátt í
Eurovision,“ segir hann og hlær.
Þrátt fyrir langan feril eru
Sálverjar þó hvergi nærri hættir
og stefna á að vera duglegir að
koma fram á afmælisárinu
og ætla til að mynda að frum-
flytja nýtt lag á tón leikunum í
lok mánaðar. „Svo drögum við
kannski aðeins saman seglin í
lok árs. Við tökum okkur allt-
af smá pásur af og til, það er
eina leiðin til að þetta gangi
upp. Þær eru samt aldrei neitt
meiri háttar. Sú lengsta er tvö
ár en annars eru það bara ein-
hverjir mánuðir hér og þar. Við
getum samt aldrei ákveðið neitt
fyrir fram í þessum efnum þar
sem enginn skilur hvernig þessi
bransi virkar, ekki einu sinni við
sjálfir,“ segir Stefán og hlær. „En
á meðan áhuginn, krafturinn og
þorstinn eru enn til staðar heldur
Sálin ótrauð áfram,“ fullvissar
hann aðdáendur um.
tinnaros@frettabladid.is
Sálin fagnar aldar-
fj órðungsafmælinu
Sálin hans Jóns míns, ein vinsælasta hljómsveit landsins, fagnar 25 ára afmæli
sínu í ár og heldur upp á tímamótin með tónleikum í Vodafone-höllinni. Agnes
úr Sykri og Unnur Eggert verða meðal ótal gestasöngvara.
SÁLIN Fáar sveitir hafa notið viðlíka vinsælda og Sálin hans Jóns míns á þeim 25 árum sem hún hefur starfað.
MYND/HALLDÓR KOLBEINS
Stefán segir Sálverja hafa gefið
út hartnær 200 lög á þessum 25
árum og hafa mörg þeirra notið
mikilla vinsælda. Það er því mikið
lúxusvandamál að velja lög til
að flytja á tónleikunum. „Þetta
er svipað og þegar fótbolta-
þjálfarar eru með stjörnuprýddan
varamannabekk,“ segir Stefán
og hlær. Meðal vinsælustu laga
Sálarinnar má nefna:
■ Á tjá og tundri
■ Kanína
■ Láttu mig vera
■ Ekkert breytir því
■ Sódóma
■ Krókurinn
■ Hjá þér
■ Undir þínum áhrifum
Um 200 lög á ferlinum
Febrúar 1988: Ákveðið var að
stofna soul-band.
Mars 1988: Fyrsta giggið haldið.
Maí 1988: Stefán er valinn sem
fulltrúi Íslands í Eurovision með
lagið Sókrates og öðlast þar með ást
þjóðarinnar, þrátt fyrir slakt gengi.
Sumar 1988: Fyrsta plata Sálarinnar,
Syngjandi sveittir, kom út. Platan
innihélt þeirra fyrsta smell, Á tjá og
tundri.
Október 1989: Önnur platan, Hvar
er draumurinn, kom út.
Febrúar 1991: Sálin tók upp nafnið
Beaten Bishops og hélt til Kaup-
mannahafnar á sína fyrstu tónleika
erlendis.
Maí 1991: Stefán tók aftur þátt í
Eurovision, nú með Eyva Kristjáns.
Þeir lentu í 15. sæti með lagið
Draumur um Nínu, sem hefur síðan
stundum verið nefnt partý-þjóð-
söngur Íslendinga.
Október 1991: Platan Sálin hans
Jóns míns kom út.
1992: Draumurinn um heimsfrægð
var látinn víkja fyrir íslenska mark-
aðnum sem sífellt varð spenntari.
Júní 1992: Hljómplatan GARG kom
út. Samhliða var gefin út nokkurs
konar heimildarmynd um hljóm-
sveitina.
Nóvember 1992: Hljómplatan Þessi
þungu högg kom út. Hún var afar ólík
öllu sem sveitin hafði sent frá sér
áður.
Júní 1995: Platan Sól um nótt kom
út.
Ágúst 1999: Sálin lék í fyrsta sinn óraf-
magnað á tónleikum í Loftkastalanum.
Október 1999: Platan 12 ágúst 99
kom út.
Október 2000: Platan Annar máni
kom út.
Október 2001: Tíunda plata
Sálverja, Logandi ljós, kom út.
Október 2003: Sálin gaf út plötuna
Vatnið í samstarfi við Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands.
Október 2005: Platan Undir þínum
áhrifum kom út.
September 2006: Sálin hélt
tónleika með Gospelkór Reykjavíkur í
Laugardalshöll.
Mars 2008: Haldnir voru 20 ára
afmælistónleikar í Laugardalshöll og
um 6.000 manns létu sjá sig.
Apríl 2008: Vatnaskil, heildarsafn
Sálarinnar, var gefið út í tveimur
veglegum kössum.
Sálin í 25 ár