Fréttablaðið - 11.03.2013, Qupperneq 56
11. mars 2013 MÁNUDAGUR| SPORT | 28
Fyrirmyndar
fyrirtæki
2012
SPORT
ÚRSLIT
SÍMABIKAR KARLA (ÚRSLIT)
ÍR - Stjarnan 33-24
ÍR - Mörk (skot): Björgvin Hólmgeirsson 8 (13),
Sturla Ásgeirsson 7/3 (10/4), Jón Heiðar Gunn-
arsson 4 (4), Sigurjón Friðbjörn Björnsson 3 (3),
Davíð Georgsson 3 (3), Guðni Már Kristinsson
3 (3), Sigurður Magnússon 2 (3), Ingimundur
Ingimundarson 2 (5), Halldór Logi Árnason 1 (1),
Varin skot: Kristófer Fannar Guðmundsson 18/1
(39/2, 46%), Aron Daði Hauksson (3/1, 0%),
Hraðaupphlaup: 6 (Björgvin Hólmgeirsson 3,
Sturla Ásgeirsson 1, Sigurjón Friðbjörn Björnsson
1, Sigurður Magnússon 1, )
Fiskuð víti: 4 ( Jón Heiðar Gunnarsson 3, Sigurjón
Friðbjörn Björnsson 1, )
Utan vallar: 4 mínútur.
Stjarnan - Mörk (skot): Hilmar Pálsson 4 (5),
Þröstur Þráinsson 4 (5/1), Finnur Jónsson 4 (7),
Víglundur Jarl Þórsson 3 (9), Bjarni Jónasson 2/1
(3/2), Egill Magnússon 2 (6), Guðmundur Guð-
mundsson 2 (8), Elvar Örn Jónsson 1 (1), Starri
Friðriksson 1/1 (1/1), Andri Hjartar Grétarsson 1
(2), Jakob Októsson (2),
Varin skot: Svavar Már Ólafsson 6/1 (33/4, 18%),
Brynjar Darri Baldursson (6, 0%),
Hraðaupphlaup: 4 ( Þröstur Þráinsson 2, Elvar
Örn Jónsson 1, Andri Hjartar Grétarsson 1, )
Fiskuð víti: 4 ( Þröstur Þráinsson 1, Finnur Jóns-
son 1, Starri Friðriksson 1, Sverrir Eyjólfsson 1, )
Utan vallar: 2 mínútur.
SÍMABIKAR KVENNA (ÚRSLIT)
Valur - Fram 25-22
Valur - Mörk (skot): Þorgerður Anna Atladóttir 7
(13), Dagný Skúladóttir 6/3 (7/3), Sonata Vijunaté
4 (6), Karólína Bærhenz Lárudóttir 3 (3),
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 3 (5), Ragnhildur
Rósa Guðmundsdóttir 2 (6),
Varin skot: Guðný Jenný Ásmundsdóttir 15/1
(37/3, 41%),
Hraðaupphlaup: 2 ( Dagný Skúladóttir 2, )
Fiskuð víti: 3 (Þorgerður Anna Atladóttir 1, Dagný
Skúladóttir 1, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 1, )
Utan vallar: 0 mínútur.
Fram - Mörk (skot): Birna Berg Haraldsdóttir 5
(7), Elísabet Gunnarsdóttir 5/2 (7/3), Sigurbjörg
Jóhannsdóttir 4 (6), Stella Sigurðardóttir 4 (13),
Sunna Jónsdóttir 3 (6), Ásta Birna Gunnarsdóttir 1
(2), Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir (1),
Varin skot: Guðrún Bjartmarz 12 (35/3, 34%),
Hildur Gunnarsdóttir (2, 0%),
Hraðaupphlaup: 3 ( Elísabet Gunnarsdóttir 1,
Sunna Jónsdóttir 2, )
Fiskuð víti: 3 ( Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2, Stella
Sigurðardóttir 1, )
Utan vallar: 6 mínútur.
UNDANÚRSLIT
Grótta - Fram 21-32
ÍBV - Valur 19-27
HANDBOLTI Ingimundur Ingi-
mundar son varð bikarmeistari
með ÍR í annað sinn í gær þegar
liðið lagði Stjörnuna í úrslitum
Símabikarsins.
„Þetta er aðeins öðruvísi því
2005 var ég búinn að ákveða að
yfirgefa félagið eftir tímabilið og
var ákveðinn að koma með bikar
til félagsins áður en ég færi út og
núna er ég að koma til félagsins
og þá komum við aftur með bikar-
inn í hús upp í Breiðholt. Hann er
einkar fallegur í skápnum uppi í
Breiðholti,“ sagði Ingimundur eftir
leikinn í gær en hann er kominn
heim í ÍR eftir sjö ára útlegð.
„Þetta er æðislegt. Helgin
hefur verið æðisleg og þetta hefur
heppnast fullkomlega. Þú sérð
áhorfendur okkar og stuðnings-
menn. Þetta fólk er yndislegt. Þú
sérð það á leikjum uppi í Austur-
bergi.
Það er fleira fólk í gulum vestum
en stuðningsmenn í mörgum
öðrum húsum á Íslandi. Þetta er
ótrúlegt. Þessi bikar er fyrst og
fremst félagsins og þeirra,“ sagði
Ingimundur klökkur yfir stuðn-
ingnum sem liðið fékk.
„Við undirbjuggum okkur mjög
vel fyrir leikinn og það hjálpaði
okkur að hafa spilað við Selfoss
í undanúrslitum. Við vissum að
við þyrftum að byrja vel gegn liði
sem hefur allt að vinna og engu að
tapa,“ sagði Ingimundur. - gmi
Kvaddi með bikar og
heilsar með bikar
HRESSIR Ingimundur, Sturla Ásgeirsson og Björgvin Hólmgeirsson fagna í gær en
þeir komu allir aftur í ÍR síðasta sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Það var mikil stemning
í Laugardalshöllinni í gær þegar
úrslitaleikirnir í Símabikarnum
fóru fram.
ÍR varð bikarmeistari HSÍ í
annað sinn í sögu félagsins þegar
liðið sigraði Stjörnuna í úrslitum
Símabikarsins í gær 33-24.
ÍR, sem hefur verið á mikilli
siglingu í N1-deildinni, átti aldrei
í vandræðum með 1. deildar liðið
sem komst mjög óvænt í úrslitin.
ÍR komst í 5-1 og náði sjö marka
forystu skömmu fyrir hálfleik og
var Bjarki Sigurðsson allt annað
en ánægður með að Stjarnan náði
að minnka muninn í fimm mörk
fyrir hálfleik, 18-13.
„Þeir sáu ekki til sólar gegn
vörninni í seinni hálfleik og þá
fengum við Kristófer í gang sem
hafði ekki verið eins og hann hefur
verið undanfarið. Seinni hálfleikur
var flottur hjá honum og liðinu í
heild. það var samheldni liðsins og
fólksins okkar sem skilaði þessu,“
sagði Bjarki en Laugardalshöllin
var nánast full og liðin mjög vel
studd af fjöldanum í stúkunni.
Kristófer Fannar Guðmundsson
varði frábærlega í seinni hálfleik
fyrir aftan öfluga vörn ÍR. Sóknar-
leikur ÍR var frábær allan leikinn
með Björgvin Þór Hólmgeirsson
fremstan í flokki.
„Ég sagði það fyrir bikarleikinn
við Hauka í Austurberginu að það
lið sem ynni þann leik færi alla
leið og yrði bikarmeistari. Ég veit
ekki glóruna í því hjá manni en
mig langaði hingað að klára þetta.
Ég hafði trú á verkefninu og trú
á strákunum. Þetta hefur verið að
smella betur og betur saman hjá
okkur,“ sagði Bjarki, sem lagði
leikinn upp með því að Stjarnan
ætti aldrei möguleika í leiknum
og það gekk eftir.
Gunnar Berg Viktorsson, þjálf-
ari Stjörnunnar, gekk ánægður út
úr höllinni þó hann hefði að sjálf-
sögðu viljað sjá sitt lið sigra.
„Allir leikmenn komust vel út
úr leiknum þó að við töpuðum.
Allir komust þeir vel frá helginni.
Þeir geta allir gengið ánægðir frá
þessari helgi og tekið það með
sér,“ sagði Gunnar Berg.
Frábær endurkoma Valskvenna
Valskonur vörðu bikarmeistara-
titil sinn þegar liðið vann Fram
25-22. Leikurinn var æsispennandi
enda tvö bestu lið landsins að
mætast. Safamýrarliðið var
fjórum mörkum yfir í hálfleik en
þegar Valur kemst í gírinn er liðið
illviðráðanlegt eins og sást ber-
sýnilega í seinni hálfleik.
„Þetta er algjör himnasæla,“
sagði Guðný Jenný Ásmunds dóttir,
markvörður Vals, eftir leikinn.
„Við vorum ekki nægilega
góðar í fyrri hálfleik, Fram
spilaði vörnina framarlega og við
virtumst ekki vera undir þetta
búnar. Við vorum staðar í sókninni
og þetta leit ekki nægilega vel út.
En í seinni hálfleik lagaðist þetta.
Við fórum að vinna boltann oftar
og náðum að leysa sóknirnar okkar
betur. Meðbyrinn var með okkur
og maður fann það bara að við
værum að fara að klára þetta.“
Guðný segir að þrátt fyrir
erfið leikana í fyrri hálfleik hafi
liðið aldrei misst trúna og sjálfs-
traustið.
„Við skoruðum bara átta mörk í
fyrri hálfleik en um leið og mörkin
fóru að koma gekk þetta vel.
Reynslan í liðinu er mikil og það
er vant því að spila svona leiki. Við
höfum spilað marga svona leiki við
Fram.“
Halldór Jóhann Sigfússon, þjálf-
ari Fram, var skiljanlega svekktur
eftir leik.
„Það er alltaf erfitt að tapa
bikarúrslitum og maður er mjög
svekktur en við eigum eftir
að skoða þennan leik ítarlega í
rólegheitum og finna út hvað fór
úrskeiðis,“ sagði Halldór.
„Það vantaði ákefð í liðið í
byrjun seinni hálfleiks og Valur
kemst á bragðið. Við vorum með
tökin en héldum ekki áfram því
sem við vorum að gera og þá datt
þetta niður.“
Halldór segir að reynsla Vals-
liðsins hafi komið bersýnilega í
ljós eftir hálfleikinn. „Þær eru
með gríðarlega reynslu í því að
spila svona leiki en sama má segja
um okkar lið. Það var of mikið að
tapa þessum leik á endanum með
þremur mörkum.“
Þorgerður Anna Atladóttir var
markahæst í Valsliðinu og var
valin maður leiksins.
- gmi, egm
Dagur Valskvenna og ÍR-inga
Reykjavíkurliðin ÍR og Valur fögnuðu sigri í bikarkeppni HSÍ, Símabikarnum. ÍR vann frekar auðveldan sigur
á 1. deildar liði Stjörnunnar. Valur vann svo uppgjör tveggja langbestu kvennaliða landsins undanfarin ár.
BIKARMEISTARAR Það voru Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Davíð Georgsson sem lyftu bikarnum fyrir hönd sinna félaga í
Laugardalshöllinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Meðbyrinn var
með okkur og maður fann
það bara að við værum að
fara að klára þetta.
Guðný Jenný Ásmundsdóttir Valskona