Fréttablaðið - 09.04.2013, Qupperneq 8
9. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
KOMDU O
G PRÓFAÐ
U
NÝR FOR
D FIESTA
SNILLDAR
BÍLL
FRÁ
FRÁ
FORD FIESTA
2.490.000 KR.
28.979 KR./MÁN*
ford.is
Ford Fiesta Trend 5 dyra, 1,0i bensín 65 hö, beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,3 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 99 g/km., fær frítt í stæði í Reykjavík í 90 mín. í senn.
Miðað er við grænan óverðtryggðan bílasamning til 7 ára og uppítökubíl / útborgun að verðmæti 760.000 kr. Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Hlutfallstala kostnaðar 10,64%.
Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
*
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Aukin þjónusta Bíldshöfða 6: Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16
Fimmtudaginn 11. apríl kl. 12-13.30 í Hátíðarsal HÍ.
LAGASTOFNUN
www.lagastofnun.hi.is
Carl Baudenbacher
forseti EFTA-dómstólsins
Undanfarin misseri hefur
EFTA-dómstóllinn fjallað um
nokkur mál sem varða lagalegar
afleiðingar falls íslensku
bankanna. Dómstóllinn hefur
einnig kveðið upp tvo fordæmis-
gefandi dóma í samkeppnisrétti.
Síðast en ekki síst hefur EFTA-dómstóllinn skýrt nokkur mikilvæg
réttarfarsleg atriði sem lúta að hlutverki æðstu dómstóla
aðildarríkjanna og heimilda Eftirlitsstofnunar EFTA til að höfða
mál vegna ætlaðra brota á EES-samningnum. Í erindi sínu mun
Carl Baudenbacher forseti EFTA-dómstólsins fara yfir og ræða
fyrirliggjandi dómafordæmi og þá þróun sem orðið hefur.
Fundarstjóri: Aðalheiður Jóhannsdóttir,
prófessor og starfandi forseti Lagadeildar HÍ.
Recent Case Law of the
EFTA Court
LAGASTOFNUN
Fyrirlesturinn verður á ensku - Allir velkomnir.
Financial Crisis - Competition Law - Procedure
IÐNAÐUR Orkuveita Reykjavíkur
(OR) dregur sig út úr samstarfi um
Hrafnabjargavirkjun. Á stjórnar-
fundi fyrir helgi var samþykkt að
heimila forstjóra Orku veitunnar
að ganga til samninga við með-
eigendur OR í Hrafnabjarga-
virkjun hf. með það að markmiði
að þeir eignist hlut Orkuveitunnar.
Haraldur Flosi Tryggvason,
stjórnarformaður OR, segir verk-
efnin undanfarið hafa snúið að því
að styrkja fjárhag Orkuveitunnar
og minnka áhættu.
„Það var metið sem svo að virkj-
unaráform þarna fyrir norðan
féllu ekki vel að þeirri vinnu, að
fengnu áliti stjórnenda um að
ákvörðunin fæli ekki í sér áhættu
varðandi framtíðarorkuöflun,“
segir hann.
Kjartan Magnússon, fulltrúi
borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis-
flokksins í stjórn OR, sagði í bókun
í fundargerð stjórnar OR að óráð-
legt væri að gefa frá sér þátttöku
í verkefninu og fækka þar með
orkuöflunarkostum fyrir tækisins
til framtíðar. Þá gerði hann
athugasemd við fyrir hugað vinnu-
lag við sölu á hlut OR í Hrafna-
björgum. Eðlilegast væri að
hámarka söluverð hlutar-
ins í gagnsæju söluferli.
H a r a ldu r F lo s i
bendir á að enn sé ekk-
ert fast í hendi varð-
andi Hrafnabjarga-
virkjun eða arð af því
verkefni. „Það sem
ýtti á þessa ákvörðun
nú er að fyrir liggur
vilji meðeigenda OR í
félaginu að fá rannsókna-
leyfi og þá þarf að
f a r a a ð
leggja fé
í verk-
efnið.“
Verð-
mæti
félagsins nú nemi hins vegar bara
um tíu milljónum króna sem sé
upplausnarvirði þess. - óká
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitunnar gagnrýnir nýja samþykkt:
OR dregur sig út úr samstarfi
um gerð Hrafnabjargavirkjunar
SUÐUR-KÓREA, AP Norður-Kóreu-
menn segjast hafa ákveðið að loka
Kaesong-verksmiðjusvæðinu tíma-
bundið og hyggjast kalla 53 þúsund
starfsmenn úr vinnu þar.
Norður- og Suður-Kóreumenn
hafa rekið Kaesong-iðnaðar svæðið í
sameiningu rétt norðan við hlutlausa
svæðið á milli ríkjanna tveggja.
Á svæðinu starfa 120 fyrir tæki.
Með lokuninni hafa Norður-Kór-
eumenn skorið á síðustu tengsl sín
við nágrannana í suðri. Lokun verk-
smiðjanna þykir sýna að stjórnvöld
í Pjongjang eru tilbúin að eyðileggja
fyrir eigin hagkerfi til þess að sýna
reiði sína í garð Suður-Kóreu og
Bandaríkjanna. Svæðið er efnahags-
lega mikil vægt fyrir Norður-Kóreu.
Ástandið á Kóreuskaganum hefur
sem kunnugt er versnað undan-
farnar vikur, ekki síst eftir sam-
eiginlegar heræfingar S-Kóreu og
Bandaríkjanna. N-Kóreu menn hafa
hótað því að ráðast gegn Bandaríkj-
unum. Stjórnvöld í Suður- Kóreu
sögðust í gær ekki sjá nein merki
um að Norður-Kóreumenn væru að
undirbúa kjarnorkusprengingu, en
þau telja líklegt að tilraunaeldflaug
verði skotið á loft á næstu vikum.
- þeb
Stjórnvöld N-Kóreu ætla að loka sameiginlegu iðnaðarsvæði á næstunni:
Skera á síðustu tengsl við suðrið
VIÐ LANDAMÆRIN Vörubílar snúa til
Suður-Kóreu frá Kaesong. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HARALDUR FLOSI
TRYGGVASON KJARTAN
MAGNÚSSON