Fréttablaðið - 09.04.2013, Blaðsíða 24
KYNNING − AUGLÝSINGSumardekk & bílar ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 20138
Vegna hagstæðara gengis krón-unnar sér Bílabúð Benna sér fært að lækka verð á öllum
nýjum Chevrolet-bílum. Verðlækkunin
á Chevrolet er mismunandi eftir teg-
undum en getur numið allt að 400 þús-
und krónum. „Tölur sýna að bílafloti
landsmanna hefur verið að eldast mun
hraðar en annars staðar,“ segir Bene-
dikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar
Benna. „Við finnum sterkt fyrir þörf hjá
fólki til að endurnýja bíla sína og því er
það ánægjulegt að fylgjast með styrk-
ingu krónunnar undanfarið og geta
látið íslenskra neytendur njóta þess.“
Captiva lækkar um 400.000 krónur
Chevrolet hefur verið að auka mark-
aðshlutdeild sína jafnt og þétt með
breiðari línu af Chevrolet-bílum. „Það
eru margir spennandi hlutir að gerast
hjá Chevrolet, en sem dæmi um verð-
lækkanir núna fer sjö sæta sjálfskipti
dísiljeppinn, Chevrolet Captiva, úr kr.
6.890 þúsund niður í 6.590 þúsund og
einn vinsælasti smábíllinn á landinu,
Spark, kostar nú 1.790 þúsund.“
Nýir bílar lækka í
verði hjá Bílabúð Benna
Lækka frá 100-400 þúsund. Ástæðan er sterkara gengi íslensku krónunnar.
Við finnum
sterkt fyrir
þörf hjá fólki
að endurnýja
bíla sína og því
er það ánægju-
legt að fylgjast
með styrkingu
krónunnar
undan farið og
geta látið
íslenskra
neytendur
njóta þess.
Benedikt Eyjólfsson
Á ráðstefnu um „verndandi vegi“, sem verður haldin á Hótel Sögu í dag, heldur
Michael Dreznes, varaforseti
International Road Federation,
fyrirlestur og kynnir nýjustu
hugmyndir um öruggari vegi og
um samtökin IRF.
Michael Dreznes er mjög virtur
fyrirlesari um umferðaröryggi.
Hann heldur námskeið víða um
heim og kemur við á Íslandi á leið
sinni til Brussel, þar sem hann
verður með fyrirlestur og á fundi
í tengslum við umferðaröryggis-
mál.
Markmiðið að fækka umferðar-
slysum um 50% fyrir 2020
Hann hefur starfað í umferðar-
öryggisgeiranum í fjölda ára.
Dreznes er í vinnuhópnum „De-
cade of Action“, átaki Sameinuðu
þjóðanna fyrir Stólpa 2 sem
fjallar um innviði samgöngu-
mannvirkja.
Markmið áratuga aðgerða Sam-
einuðu þjóðanna er að fækka
alvarlegum umferðarslysum
um 50% á heimsvísu fyrir árs-
lok 2020. Ísland er aðili að þessu
verkefni og starfar nú vinnu-
hópur að því á vegum innan-
ríkisráðuneytisins.
Ráðstefna um „verndandi vegi“
Michael Dreznes, virtur fyrirlesari um umferðaröryggi, fjallar um innviði samgöngumannvirkja.
Michael Dreznes heldur fyrirlestur á Hótel Sögu í dag um umferðaröryggi.